Vikan


Vikan - 29.03.1972, Page 7

Vikan - 29.03.1972, Page 7
MIG DREYMDI FJÓLUBLÁU SKÓRNIR Draumurinn, sem mig langar til að fá ráðinn, er á þessa leið: Ég og vinkona mín vorum að fara á ball. Þegar við komum að skemmtistaðnum, kallar til mín kona: „Góða hafðu hann bara, hann er hvort sem er alltaf að spyrja um þig“. Þegar hún leit við, sá ég, að þetta var gömul skólasystir mjn. Strax og inn í húsið var komið, þurftu allir að fara úr skónum. Ég hafði keypt mér nýja skó og var mjög ánægð með þá. Þeir voru fjólubláir. Ég fór úr mínum skóm eins og hinir, en þegar ég ætlaði að sækja þá eftir skamma stund, voru þeir horfnir ásamt öllum öðrum skóm. Eftir voru aðeins einir gamlir og ljótir skór, sem mér fannst vera ætlaðir mér. En um leið og ég leit til dyranna, sá ég hvar stúlka var að fara út með skóna mína. Ég veitti henni eftirför, en fyrir utan hitti ég systur mína og mág. Þau buðust til að aka mér á eftir stúlkunni. Mér sýndist hún fara upp í ljósa bifreið með G-númeri. Bifreiðin stöðvaðist fyrir framan hús nokkurt hér í borg, og fór stúlkan þar inn. Ég fór strax á eftir henni. Þegar inn var komið fannst mér stúlkurnar vera orðnar tvær. Ég sagðist vilja fá skóna mína, en þær kváðust ekki hafa þá. Þær hlógu hgra og drógu dár að mér. Eftir alllangt þref án árangurs, fannst mér ég sjá stálpað barn. Ég tók því kverktaki og bað það að segja mér, hvar skórnir mínir væru. Þá fékk ég þá loksins. Síðan fór ég heim og sagði þá móðir mín, að X hefði hringt í mig. Ég hélt áfram upp á loft, þar sem ég bý. Mér fannst inngangurinn ólíkur því, sem hann er í raun og veru. En þegar ég var komin upp, sá ég hvar rauð flauelisábreiða hafði verið lögð á upphækkaðan bekk. Mér fannst þetta eiga að vera fyrir kistu, en enga kistuna sá ég. Á ábreiðunni lá hins vegar Tiálsband, sem ég er nýlega búin að kaupa mér. Systir mín sá, að mér brá við þessa sjón, en sagði: „Góða láttu þetta ekki á þig fá. Þær eru bara að hrella þig‘í. Ég ætlaði að taka hálsbandið, en er ég tók það, sá ég, að það hafði klofnað í tvo hringi og tók annan. Síðan fór ég aftur á skemmtistaðinn, en fann hvergi vinkonu mína. Hljómsveitin var farin, aðeins einn maður var að spila á píanó og eintómir karlmenn stóðu við bar- inn. Þannig endaði þessi draumur. Beztu þakkir fyrir birtinguna. SOS ÞaS er almennt talið vera fyrir skömm og skaða að dreyma slitna og rifna skó og fyrir tjóni að týna skóm. Og að dreyma Síkkistu getur táknað vanvirðu. Allt ber þetta því að sama brunni. Eitthvað mun gerast í lífi þínu, sem veldur þér leiðindum, en þó fer allt vel að lokum — þar sem þú færð aftur þína fjólubláu skó. VÍSA VIKUNNAR ÖFUG SPOR Mörgum angar aldrei vor, eiga fang við blæinn, og þeir ganga öfug spor ævilangan daginn. I FULLRIALVORU OF HRAÐAR BREYTINGAR í bókinni „Future Shock“ eftir Alvin Toffler, sem mikla athygli hefur vakið vestan hafs, leiðir höfundur rök að því, að breytingar á lifnaðarháttum nútímafólks séu orðn- ar svo örar, að mörgum reynist þær ofviða. Ríkjandi hug- myndir um tíma, rúm, starf, trúarbrögð, kynferðismál og hjónaband breytast stöðugt með þeim afleiðingum, að fjöldi fólks ruglast alveg í ríminu. Oþarfi er að fjölyrða um átök þau og árekstra, sem svo mjög einkenna okkar tíma, milli kynslóða, menningarheilda, foreldra og barna. Toffler álítur, að orsök þessa glundroða megi að miklu leyti rekja til aukins hraða hinna sífelldu breytinga. Skoðun höfundar byggist á fjölmörgum tölulegum stað- reyndum um daglegt líf nútímafólks, sem of langt yrði að teha upp hér. Skal því látið nægja að drepa á fáein atriði. Barn, sem nú er að komast á táningsaldurinn, er um- kringt helmingi meira magni af nýjum, tilbúnum hlutum en það var við fæðingu. Sífellt fleiri vörur, sem við notum, eru nú eingöngu framleiddar til notkunar í stuttan tíma, áður en þeim er fleygt. í rauninni er heimili nútímans orðið að stórri vinnsluvél, sem hlutir streyma gegnum með sífellt meiri hraða. Menn tengjast núorðið hlutum í um- hverfi sínu og rjúfa síðan þau tengsl með meiri hraða en nokkru sinni hefur áður tíðkazt. Hraði breytinganna hefur meðal annars þau áhrif, að mönnum finnst allt vera „til bráðabirgða". Við tengjumst ekki aðeins dauðum hlutum lauslegar en áður, heldur einnig fólki. Fólk streymir inn og út úr lífi okkar með meiri hraða en áður. Búferlaflutningar eru tíðari en áður og „hreyfanleiki“ fólks meiri. Það getur reynzt erfitt að viðhalda tengslum við gamla vini og kunningja, þegar starfið, búsetan og þjóðfélagsaðstaðan breytist. Fyrri kyn- slóð tengdist aðeins fáum einstaklingum persónulegum böndum, en þau tengsl voru varanleg og entust alla ævi. Nú verður einstaklingurinn að aðlagast lauslegri og skammvinnri persónutengslum. Ef börn í skólabekk eru spurð að því, hvort nokkur hafi misst bezta vin sinn eða vinkonu á síðasta ári vegna flutninga, — þá eru margar hendur á lofti. Menning nútímans einkennist af auknum breytingahraða, og börn okkar alast upp við áður óþekktar aðstæður. Margir yppta vafalaust öxlum yfir áhyggjum af þessu til- efni og segja sem svo, að allt sé breytingum undirorpið og heimurinn hafi verið að breytast frá örófi alda. En hraði breytinganna hefur aldrei verið meiri en nú, og það er einmitt hann, sem Toffler varar við. Hann telur óstöðug- leika nútímalífsins hafa óheillavænleg áhrif á sálarlíf okkar og leiða til einmanakenndar, einangrunar og lífsflótta. Enginn vill láta væna sig um íhaldssemi, og hingað til hefur verið álitið, að vonlaust væri að ætla sér að sporna við rás tímans og breytinganna. En Alvin Toffler leggur einmitt til, að það verði gert — ella sé voðinn vís. Jón S. Bergmann. G. Gr.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.