Vikan


Vikan - 29.03.1972, Side 15

Vikan - 29.03.1972, Side 15
FRAMHALDSGREIN Seytjánda desember 1968 var Barböru, tvítugri dóttur Flórída-auðkýfingsins Roberts Mackle rænt og hún grafin lifandi í þröngri viðarkistu. Jafnskjótt og ræningjarnir höfðu Kaft samband við fjölskylduna ákvað Robert Mackle að borga lausnarféð, hálfa milljón dollara. Hann fékk FBI í lið með sér og skildi peningana eftir í ferðatösku á tilteknum stað. Nokkrum klukku- stundum siðar var taskan horfin, og Mackle hélt að allt hefði gengið að óskum. En þá fékk FBI tilkynningu frá lögreglunni á staðnum: tveir lög- regluþjónar í eftirlitsferð höfðu fund- ið töskuna og tekið hana með sér til lögreglustöð varinnar! Víða í Bandaríkjunum er talsverður rígur milli FBI, alríkislögreglunnar, og lögreglunnar á hverjum stað. Sam- starf þeirra er oft klént. Þannig varð það í Miami í því máli, sem hér segir frá. Þegar Robert Mackle um morg- uninn nítjánda desember skildi ferða- töskuna með lausnarfénu eftir við múr- vegginn lága, sem lokaði Fair Isle Street, var það með vitund og vilja FBl. En FBI hafði ekki látið lögregl- una á staðnum vita að fyrirhugað vœri að ganga að kröfum rœningjans. Og það hirðuleysi hefði getað haft örlaga- rík áhrif. Klukkan þrettán mínútur fyrir fjög- ur að morgni fékk Robert Mackle til- kynningu um hvar hann skyldi skilja peningana eftir og hann ók tafarlaust út á aðalveg eitt. Um það leyti var Paul Self lögregluþjónn að drekka kaffi í nœturkaffihúsi við sama veg. Þegar hann var búinn úr bollanum, hélt hann áfram eftirlitsferð sinni og ók suður eftir aðalveginum. Þegar hann kom auga á bíl, sem lagt hafði verið á Fair Isle Street, dokaði hann við og leit á hann. Þetta var blár stöðvarvagn, módel 1966. Enginn var í honum og dyrnar voru lœstar. Baksætið var fullt af föt- um og töskum. Self leit á skráningar- númerið: P 72098 Massachusetts 1968. Self vissi ekki að FBI vissi að mann- rœningjarnir voru á bláum stöðvar- vagni með Massachusetts-númeri, framleiddum erlendis. Hann vissi yfir- höfuð ekkert um þetta sérstaka mann- rán nema það, sem hann hafði heyrt í útvarpinu og lesið í blöðunum. En það var ótrúlegt að gestur í einhverri af villunum umhverfis færi að leggja bíl sínum í Fair Isle Street. Self akvað að ganga úr skugga um hver bileigandinn væri og bað um liðstyrk frá stöðinni gegnum senditœki bílsins síns. Svo ók hann til vegarins að brúnni, sem ligg- ur yfir á Fair Isle, og beið. Þar hafði hann Volvo-bílinn stöðugt innan sjón- múls. Þegar klukkuna vantaði tuttugu og fimm mínútur í fimm hafði Robert Mackle loksins fundið staðinn. þar sem hann átti að skilja peningana eftir. Mannrœninginn hafði sagt að hann skyldi hafa til marks blikkandi vasa- Ijós, en nú sáust engin slík Ijósmerki. Robert Mackle óttaðist nú að hann hefði komið of seint. En hann skildi töskuna eftir hjá múrnum, og á heim- leiðinni bað hann til Guðs að rœning- inn kœmi aftur og nœði í töskuna. Þegar klukkuna vantaði nítján min- útur í fimm hringdi mannrœninginn heim til Mackles og spurði hversvegna Mackle hefði ekki komið með pening- ana. Hann var fullvissaður um að Mackle hefði lagt af stað með þá. Á meðan hafði William Sweeney lög- regluþjónn komið lil móts við Self við veginn að brúnni. Sweeney taldi lík- legast að einhver ástfangin skötuhjú vœru á bílnum og að þeim vœri því óhætt að bíða átekta. Nokkrar mínút- ur yfir fimm sáu þeir manneskju Jcoma gangandi i um hundrað og fimmtíu metra fjarlœgð frá sér í stefnu á Volvó- inn. Þeir ákváðu að kynna sér mann þennan nánar og stigu inn í bíla sína. I þeirri svipan kom Self auga á aðra manneskju, sem kom á ská yfir veginn í áttina að Volvonum. Hún var á milli hundrað og fimmtíu og tvö hundr- uð metra frá þeim og hélt á einhverju. Sélf gaf Sweeney merki um að gefa .þessari manneskju gætur en einbeitti sér sjálfur að hinni fyrri. Sweeney snaraðist út úr bílnum og gekk í áttina til ,,síns“ manns. En áður hafði hann talað inn í senditækið: — Þetta er 961. Ég veiti eftirför hvítum manni fótgangandi. Þegar hann kom út úr bllnum, tók sá sem hann stefndi á eftir honum og tók á sprett í áttina að South Miami Avenue. Sweeney sá hann hlaupa út á Southwest Road og beint að hálfs ann- ars meters hárri stálþráðagirðingu, sem var við rætur brattrar brekku. Bakvið girðinguna tók við stígur upp að sex akreina vegi. Sweeney kom að girðingunni í sömu svÍDan og maðurinn var kominn yfir og {ekinn á sprett að nýju. — Stanz! æpti Sweeney. — Stanzaðu eða ég skýt! Maðurinn sneri sér hægt við og Sweeney hélt að hann ætlaði að gefast udd. En svo sá hann að maðurinn var með byssu. Án þess að miða hleypti Sweeney af tveimur skotum og kast- aði sér síðan flötum. Flóttamaðurinn svaraði ekki í sömu mynt. Þegar Sweeney stóð unp var hann horfinn. Sweeney gekk aftur til bíls síns og ók tilbaka að Vo'vonum. í skininu frá billjósunum kom hann allt í einu auga IKLOM RÆNING7A 3. HLUTI á tvær töskur, sem lágu á grasivaxinni ræmunni milli akreinanna. Það var kvenveski og venjuleg ferðataska. Hann opnaði veskið fyrst. í því voru sundfitjar, köfunargríma, sundgler- augu, málband úr stáli og tvær raf- hlöður í vasaljós. Á veskinu stóð hvít- um bókstöfum nafnið Ruth Eisemann. Sweeney opnaði ferðatöskuna. Hún reyndist troðfull af dollaraseðlum. Stundarkorni síðar kom Self lög- regluþjónn einnig á vettvang. Hann hafði einnig misst af manneskju þeirri er hann elti. Klukkan var orðin meira en sex um morguninn þegar þeir Sweeney og Self komu með ferðatöskuna á lögreglu- stöðina í Miami. Þeir voru hinir hreyknustu. Þegar hér var komið hafði Barbara Mackle legið í fimmtíu klukkustundir, yfir tvo sólarhringa, í þröngri kistu hálfan meter í jörðu niðri einhvers- staðar fyrir utan Atlanta í Georgíu. Mikinn hluta þess tíma hafði hún orðið að þreyja í myrkri, þar eð lampinn hennar var útbrunninn. ,,Ég hugsaði aftur um að deyja. Þrisvar eða fjórum sinnum hugsaði ég: Þetta verður þá líkkistan mín. Síðan hugleiddi ég hver myndi finna mig og hve langt liði þangað til. Kannski yrði það einhver bóndinn. Eða éinhver sem ætlaði að byggja hérna hús. Eftir tíu ár? Eða tuttugu? Þegar mér leið hvað verst sagði ég hátt við sjálfa mig: Ég bind enda á þetta strax. Fyrst ég á að deyja hér hvort eð er, vil ég fá það afstaðið. Svo tók ég viftuna úr sambandi. Það yrði hlýtt og kæfandi og innan skamms gæti ég ekki dregið andann. En svo herti ég mig upp. — Eitthvað hlýtur að gerast. Pabbi borgar. Og hann hefur einhver ráð með að finna mig. Ég tók viftuna hvað eftir annað úr sambandi. Þyturinn í henni pirraði mig. Þegar ég hafði hana ekki í sam- bandi varð loftið í kistunni þungt og . kæfandi. Ég man að ég hugsaði nokkr- um sinnum sem svo: þetta er átórgott, nú sofna ég. Þannig líður tíminn fljót- ast. Það. var gott og ég faan að mér varð hlýrra. Ég er viss um að mér rann í brjóst, en hve lengi veit ég ekki. En þegar ég vaknaði hugsaði ég: En ef ég nú sofna fyrir alvöru með viftuna úr sambandi, hvernig kemst þá loftið inn? Ég kafna þá kannski í svefni. Svo Framhald á bls. 47.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.