Vikan


Vikan - 29.03.1972, Page 19

Vikan - 29.03.1972, Page 19
nýtt hljómplötufyrirtæki SCORPION, Jón Ármannss., áður annar að- alaðstandandi Tónaútgáfunnar, hefur stofnað nýtt hljómplötu- fyrirtæki, SCORPION. Tóna- útgáfan heldur áfram að starfa, en Akureyringurinn Pálmi Stefánsson verður einn með hana. Þessar breytingar áttu sér stað um sl. áramót, og mun engin sérstök ástæða hafa vald- ið, allavega engin „leiðindi“, eins og þeir Jón og Pálmi orð- uðu það. „Við höfum báðir unnið að þessu í frístundum okkar,“ sagði Pálmi nýlega í símtali, „og þar sem við erum uppteknir við aðalatvinnu okk- ar á mismunandi árstímum, ákváðum við að hætta sam- starfinu.“ Pálmi rekur verzl- unina Tónabúðina, á Akureyri, en Jón rekur Popphúsið í Reykjavík. Pálmi mun halda nafni Tóna- útgáfunnar en samningur fyr- irtækisins við Björgvin Hall- dórsson lendir hjá Jóni. Ýmis- legt er í bígerð hjá báðum að- ilum, og t.d. er Scorpion að bíða eftir plötu þeirra Jóhanns og Magnúsar úr pressun, verið er að skrifa undir samninga við Hannes Jón Hannesson og fleiri. Tónaútgáfan sendi frá sér þriggja laga plötu með Guðmundi Hauki fyrr í þess- um mánuði (sjá hljómplötu- gagnrýni); fjögurra laga plata með „Lítið eitt“ átti að koma á markaðinn um miðjan þenn- an mánuð (annars mun Jón Scorpion halda tríóinu og fyr- irhugar LP-pIötu); tveggja laga plötur með Rúnari Gunn- arssyni og Geirmundi Valtýs- syni (bónda frá Hvammstanga, áður með „Flamingo") eru væntanlegar í apríl-maí og í undirbúningi er langþráð LP- plata með Hljómsveit Ingimars Eydal. ☆ Loks hefur verið hafizt handa við plötu meS Ingimar & Co, HLJÓMPLÖTU- GAGNRÝNI GUÐMUNDUR HAUKUR ÞRJÚ LÖG — MONO TÓN AÚTGÁFAN Þessi plata var tekin upp i Lundúnum fyrir ári síðan og ber það svo greinilega með sér, að hún er nú nánast úrelt. Auk þess er yfir henni einskon- ar vortilfinning — jafnvel sum- artilfinning — og ekki er það til að bœta úr skák. Á A-hlið er lagið „Woodstock“ eftir Joni Mitchell og hefur Guðmundur Haukur kallað það í texta sín- um „MYND“. Öll undirspil eru erlend, þannig að til lítils er að vera að rœða það nánar, en nœr öruggt má telja, að Guðmund- ur hefur verið all svakalega taugaóstyrkur þegar hann fór mn í upptökuherbergið og er útkoman sú, að hann nœr sér aldrei almennilega á strilc. Text- inn er það sem engilsaxar myndu kalla „weird“; Joni Mitchell tókst í sínum texta að sameina hugsanir heillar kyn- slóðar á einfaldan og auðskil- inn hátt, en því miður tekst Guðmundi það ekki. Hinum megin eru lögin ,,ALLT ER HORFIÐ MEÐ ÞÉR“ og „NÚ KEM ÉG HEIM“. Fyrri textinn er mjö persónu- legur og að líkindum saminn cður en hann varð að veruleika; ef ekki, þarf einhversstaðar að leiðrétta mikinn misskilning. Hitt lagið er frá Tom Jones (!) og fjallar á heldur óspennandi hátt um það þegar maður kem- ur heim til hennar og allt það. Guðmundur Haukur getur gert miklu betur en hann gerir á þessari plötu, en þó hann sé sjálfur að reyna að gera „ein- hverja hluti“, falla þeir um sjálft sig vegna þess drulluhátt- ar sem var á með útkomu plöt- únnar. Sennilega hefði þessi plata hlotið mýkri viðtökur hér á ritstjóm Vikunnar og annars staðar fyrir ári síðan P.S. „Takk“ til Rabba. 13. TBL. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.