Vikan


Vikan - 29.03.1972, Side 47

Vikan - 29.03.1972, Side 47
OG ALDREI ÞÆR ÁTTU AÐ SKILJA Framhald af bls. 9. lagi: Við fyrri aðgerðina, telp- urnar voru þá orðnar þriggja mánaða, losuðu þeir í sundur ennisbeinin og heilahimnurnar, eftir að vera búnir að fullvissa sig um að telpurnar hefðu að- skilda heilastarfsemi. Vonirnar glæddust. Mánuði síðar losaði Baldwin það sem eftir var af samvöxnum beinum. Meðan á þeirri aðgerð stóð komust telp- urnar í verulega lífshættu, þeg- ar skorið var á slagæð, sem þær höfðu sameiginlega. En það tókst að stöðva blóðrásina og telpunum var borgið. Djúpfryst heilahimna var látin þekja sár- in og þar yfir hörundshlutar úr kálfsfóstrum. Eftir ársdvöl á sjúkrahúsinu fengu telpurnar að fara heim. Þær voru þá farnar að ganga. Þegar þær sáu nakin andlit fjölskyldunnar, ráku þær upp ferleg öskur. Þær voru orðnar svo vanar því að allir sem um- gengust þær hefðu grímu fyrir vitunum. Þær voru með eins- konar hjálma yfir höfðunum og þegar það vakti forvitni, hekl- aði móðir þeirra á þær húfur, sem skýldu hjálmunum. Nú eru tvíburasysturnar hraustir táningar. Þær hafa plasthlífar yfir blettunum sem vanta höfuðbein og geta nú greitt hárið þar yfir. Þær eru fullkomlega eðlilegar og eiga sömu áhugamál og hugðarefni og aðrir unglingar ... í Göttingen voru nýlega að- skildir tvíburar, sem voru sam- vaxnir á höfðunum, en þeir iifðu aðeins nokkra klukkutíma eftir aðgerðina. ýf ELIZABETH TAYLOR Framhald af bls. 22. þeirra raunverulega heimili og þar ganga báðar dæturnar í skóla. Synirnir Michael og Christo- pher eru oft hjá föður sínum, en þeim líkar líka vel sambýl- ið við Richard Burton. Á erf- iða tímabilinu í Róm urðu þeir oft að verja heiður móður sinn- ar í skólagarðinum. Liz komst að því þegar hún spurði þá hvers vegna þeir komu svo oft heim úr skólanum með skrám- ur og sundurtætt föt. Elizabeth Taylor hefur aldrei þurft að berjast fyrir móður- rétti sínum fyrir dómstólum, en hún segir að ef hún þyrfti að ganga í gegnum slíka reynslu, myndi hún „berjast eins og pardus og jafnvel ekki hika við að drepa.“ (Hún hef- ur líka lýst því yfir að hún myndi klóra augun úr hverri þeirri konu sem renndi þeim til Richards Burton). EKKI NEINAR KVIKMYNDAGRILLUR Börn Elizabeth. Taylor hafa aldrei fengið að ala með sér nokkrar grillur viðvíkjandi kvikmyndaleik. Að vísu hefur annar sonurinn sýnt áhuga í þá átt og Liza hefur líka mik- inn áhuga á leiklist, en á því sviði er móðir þeirra ströng. Hún heldur fast við það að ekki skuli fleiri börn í hennar fjölskyldu eyðileggja æskuár sín í kvikmyndaheiminum. Hún gerði eina undantekningu með Lizu, þegar hún var ellefu ára. Telpunni var boðið lítið hlutverk í París og fékk leyfi til að taka því tilboði. En síð- an ekki til sögunnar meir. Allt slíkt verður að bíða þar til Liza verður tuttugu og eins árs. Þá má hún gera hvað sem hún vill. (En arf fá börnin ekki fyrr en þau verða tuttugu og fimm ára). Annars er Elizabeth fyrir löngu búin að fyrirgefa móður sinni hörkuna, sem eyðilagði æsku hennar. Foreldrar henn- ar búa nú í glæsilegu húsi við Beverley Hills og sambandið við dótturina er með mestu ágætum. Á sama hátt hafa þau hjón- in samband við fjölskyldu Burtons í Wales, og hún fer þangað með manni sínum svo oft sem tækifæri gefst. Þar hittir hún fólk, sem lætur kvikmyndastjörnuna gleymast og Elizabeth Burton nýtur þess að fá að vera í friði. Þar geta þau jafnvel setzt inn á knæpu, án þess að nokkur maður skipti sér af þeim og geta líka blandað sér saman við föstu gestina. Burtonhjónin njóta þess að vera saman og það vilja þau helzt vera alla tuttugu og fjóra tíma sólarhringsins. Þess vegna reyna þau oft að fá hlutverk í sömu kvikmyndunum og ef það tekst ekki, þá fylgja þau hvort öðru eftir til þeirra staða sem valdir eru til upptöku. Því er líklega ekki hægt að neita að Elizabeth er afbrýðisöm og það getur átt sinn þátt í því að hún vill ekki vera fjarvist- um við eiginmanninn. En vin- ir þeirra segja að þau njóti alltaf samvistanna, hvort sem þau eru heima hjá sér eða ann- ars staðar. Slúðurdálkahöfundar halda örugglega áfram iðju sinni hvað Taylor—Burton-hjónun- um viðkemur. Þau hafa aldrei getað dulið neitt fyrir um- heiminum og þau „viðurkenna" að þau verði hamingjusamari með hverju árinu sem líður. Þótt Elizabeth Taylor sé nú orðin fertug og amma í ofaná- lag, þá eru það engar hömlur á lífsgleði hennar. Hún er nú orðin grennri en áður og hef- ur öðlazt skilning á raunveru- legum verðmætum og hún er líka fegurri en nokkru sinni fyrr. Aðdráttarafl hennar er líka jafn mikið og áður. ☆ i KLOM ræningja Framhald af bls. 15. að ég setti viftuna í gang aftur og þá varð kalt, of kalt til að ég gæti sofnað. Kuldinn var það versta. Kuldinn og bleytan. Vatnið sem draup niður úr lokinu var að gera mig vitlausa. í hvert sinn sem ég hreyfði mig varð ég að hagræða teppinu. Þegar ég hafði það alveg yfir mér fékk ég ekki vott af lofti. En þegar ég ýtti því ofan af mér, lak á mig og mér varð ískalt." f bláa Volvónum var það margt að átta sig á að FBI hafði þegar fyrir hádegi öðlast vit- neskju um hverjir báðir ræn- ingjarnir voru. FBI í Boston staðfesti hiklaust að eigandi bílsins væri George Deacon, sem starfað hafði við Massa- chusetts Institute of Technology en síðar flutt sig til háskólans í Miami. f bílnum fundust nokkrar töskur og svart koffort með rennilás. f koffortinu var grænn lykill að mótelherbergi. Hann gekk að herbergi 153, Rodeway Inn — mótelinu sem Barböru Mackle hafði verið rænt frá. f skrifblokk, sem einnig fannst í koffortinu, voru nokkr- ar venjulegar hvítar vélritun- ararkir. Á þremur þeirra fundu FBI-snæiararnir þrykkt af orð- in: „ROBERT MACKLE: He.rra minn, dóttur yðar hefur verið rænt. . .“ Með þessum orðum hófst, fiárkröfubréfið. f koffortinu voru líka tvö blöð rifin úr atvinnuskrá Mi- ami-símaskrárinnar. Þar voru utanáskriftir og símanúmer ka- þólsku kirkjunnar. Og sá fyrsti, sem mannræninginn hafði hringt til, hafði verið kaþólsk- ur prestur. Móðir Barböru hafði sagt svo frá að sá smávaxnari ræningj- anna hefði verið með grímu. í Volvónum fannst rauð, prjónuð skíðagríma með svörtum og hvítum röndum. FBI-mennirn- ir fundu líka tuttugu millilítra ampúlu með deyfilyfinu xylo- cain ásamt ellefu sprautunálum og nokkrum sprautum. Og svo sem til að taka af allan vafa fannst líka í bílnum ávísanahefti með prentuðum nöfnum: Herra George D. og frú Dorothy Deacon ásamt heimilisfangi Deocons í Miami. Það varð einnig ljóst að fé- lagi Deacons í glæpnum var ung kona að nafni Ruth Eisemann- Schier. f svartri handtösku lá peningaveski hennar og þrjú vegabréf, tvö frá heimalandi hennar Hondúras og eitt gefið út af Bandaríkjunum. Þar var einnig stúdentsskírteini hennar frá Miami-háskóla ásamt öðru skírteini, sem veitti henni leyfi tii að vera á sjórannsóknastöð háskólans eftir að vinnu þar lyki. í handtöskunni voru enn- fremur tveir flugfarmiðar gefn- ir út á G. Deacon og S. Post, en samkvæmt þeim ætluðu þessar manneskjur að fljúga til Las Vegas föstudaginn tuttugasta desember. Miðarnir giltu aðeins aðra leið. í einni ferðatöskunni fann FBI sjö ljósmyndir. Ein þeirra var af George Deacon, krafta- lega byggðum manni með mik- ið skegg svart. Hann lá á rúmi með lögregluhúfu yfir kynfær- unum. Að öðru leyti var hann nakinn. Önnur mynd sýndi Ruth Eise- mann-Schier í ögrandi stell- ingum, í nærbuxum og brjósta- haldara einum fata. Af hinum myndunum hafði aðeins ein nokkra þýðingu. Hún var af Barböru Mackle. Hún lá með lokuð augu. Undir höku hennar hafði einhver sett spjald með orðinu „Rænt“. Kerfi FBI var nú fyrir alvöru sett í gang og fljótlega skilaði það enn meiri upplýsingum um ræningjana. George Deacon hafði byrjað að vinna á sjórannsóknastof- unni í Miami fyrsta júní 1968. Sem aðstoðarmaður við rann- sóknir hafði hann um átta þús- und og fimm hundruð dollara í árslaun. Ruth Eisemann-Schier var fædd áttunda nóvember 1942 í E1 Hatillo í Hondúras. f marz 1967 hafði hún tekið próf í 13. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.