Vikan - 10.05.1972, Blaðsíða 13
að var þriðjudagurinn 20. júlí.
Ég var að eftirlitsstörfum
með ýmsum verkefnum, sem
starfsmenn mínir voru að
vinna við, bæði í Ytri-Njarð-
vík og eins í Innri-Njarðvík. Þrátt
fyrir að veður var eins gott og hægt
var að hugsa sér, logn og sólskin,
hvergi sást ský á himni, leið mér
ekki sem hezt. Ég átti að vgra hyrj-
aður í sumarfríi, en fannst ég ekki
geta hlaupið frá, þegar svona mik-
ið var óunnið af verkefnum Raf-
veitunnar, ég var með hugann aust-
ur í Vopnafirði, því félagar mínir
höfðu byrjað að veiða í Selá þar um
inorguninn, en inín stöng var ónot-
uð í ánni. Ég hafði látið þau orð
falíá við þá, að það gæti vel farið
svo, að ég' kæmi fljúgandi. ef veður
leyfði, og yrði með þeim einn dag
eða svo, af þremur, sem við áttum
í ánni.
Klukkan 8 um kvöldið lagði ég
svo áf stað í flugvél frá Keflavíkur-
flugvelli, og ætlaði að lenda í Vopna-
firði klukkan 10.55. Veður var eins
unj kvöldið og það liafði verið all-
an daginn, logn og heiðskírt. Eftir
að ég hafði fiogið fyrir Akranes og
norður undir Álftanes, tók ég stefnu
á Arnarvatnsheiði, flaug norðan við
Langjökul og beint á Mývatn. Þeg-
ar ég hafði tekið stefnu á Vopna-
fjörð, kallaði flugstjórnin í Reykja-
vík mig uppi og sagði mér að þoka,
sem kæmi af liafi, væri að loka
flugvellinum á Vopnafirði. Ég til-
kynnti flugstjórn, að ég mundi lenda
við Mývatn og hafa samband við þá
í síma eftir lendingu þar. Ég lenti
við Mývatn við þau skilyrði að sól-
in, sem var að ganga til viðar, skein
heint í augun á mér, og töluverður
vindur, sem var nú kominn að
austan, var þvert á braut.
Eftir að hafa tilkynnt um lend-
ingu til flugstjórnar, fékk ég mér
hressingu á hótel Reynihlíð. Ég sett-
ist innan um gesti hótelsins í setu-
stofunni. Víða hef ég farið um
landið og tel mig þekkja mjög
marga, en þarna var ekki eitt ein-
asta andlit sem ég kannaðist við
Ég hafði ekki setið lengi, þegar miö
H
L