Vikan


Vikan - 26.10.1972, Side 24

Vikan - 26.10.1972, Side 24
BRIMKLÓ í HUMATT Ljósm. PJetur rfaack Nú í byrjun október tók til starfa ný hljómsveit og hlaut hún eftir miklar vangaveltur rlafnið Brimkló. Hljómsveitina skijla þrfr úr hljómsveitinni Ævintýri, sem lagði upp laupana fyrir u.þ.b. níu mánuðum. Þeir eru Arnar Sigurbjörnsson, Björgvin Halldórsson og Sigurjón Sig- hvatsson. Tií liðs viö þá eru þeir Hannes Jön og Ragnar Sigurjóns- son. Þetta eru allt kunnug nöfn og hefur hvert um sig verið kennt við ófáar hljómsveitir. Ragnar, trommuleikari hljóm- sveitarinnar, er upprunalega frá Akranesi og lék að sjálfsögðu með Dumbó, þegar sú hljómsveit var og hét. Nú síðast var hann meö Mánum. Þá bjó hann á Selfossi, en harin hefur nú flutzt i bæinn. Að eigin sögn var þaö tilbreytingar- leysið fyrir austan og löngunin til þess aö gera eitthvaö nýtt, sem varö þess valdandi aö hann ákvað að leggja land undir fót og freista gæfunnar I stóru borginni bak við fjöllin háu. Ragnar er 23 ára og hefur spilað i 8 ár. edvard sverrisson músik með meiru Arnar hefur nú spílað i samtalt 9 ár. Ferill hans hófst i hljóm- sveit, sem Tiét Strengir. Siðan tóku við Toxic, Flowers og nú siðast Ævintýri. Það fór aldrei á milli mála, að Arnar var meðal okkar beztu gítarleikara þegar hann var i Flowers og Ævintýri. Væntanlega nær hann sér aftur á strik fljótt, það er ekki um svo auðugan garð góðra gítarleikara að gresja. Hannes Jón hefur og verið i nokkrum hljómsveitum, þó svo að hann hafi nú siðast að mestu troðið einn upp. Hann hefur látið frá sér fara plötu. L.P plötu sem hlotiö hefur nokkra viðurkenn- ingu. Feril sinn sem hljómiistamaöur hóf Hannes Jón i Tónum. Það er nú orðið nokkuð langt siðan, liklega ein sjö ár. Við af Tónum tók svo Sfynx, svo Næturgalar, þá Fiðrildi og nú sfðast Brimkló. Fiðrildi var eins og flestir vita þjóðlagatrló. Hannes Jón hefur samið töluvert af lögum og verða væntanlega einhver þeirra flutt af Brimkló 1 framtiðinni. Hannes Jón er 23 ára gamall. Sigurjón er 20 ára og er i Verzlunarskólanum. Ferill hans spannar einnig nokkrar hljóm- sveitar og fer brátt að vera erfitt að finna hljóðfæraleikara I bænum, sem aðeins hefur verið i einni hljómsveit Hljómsveitirnar, sem Sigurjón var I hétu: Kjarnar, Falkon, Mods, Flowers og nú siðast Ævin: týri. Eitthvað hefur hann samiö af Iögum og textum. Björgvin hefur verið söngvari þriggja hljómsveita. :Bendix, Flowers og Ævintyri. Hann hefur m.a. gefið út eina sólóplötú. Fyrir utan aö vera ágætur söngvari, spilar Björgvin nokkuð vel á munnhörpu. Það er eitt það hljóö- færi, sem Islenzkar hljómsveitir hafa notað ákaflega litið, en kemur oft skemmtilega út I popp- múslk. Nú hef ég lltilega minnst á alla meölimi Brimklóar. Þá er ekki úr vegi aö fjalla aðeins um það, sem Brimkló. f.v. Kagnar Sigurjónsson, Björgvin Halidórsson, Sigurjón Sighvatsson, Hannes Jón Hannesson og Arnar Sigurbjörnsson. þeir hafa ætlað sér að gera I framtiöinni. Nú bregður svo við, að þeir hafa alls ekki i huga að gefa út plötu. Slíkt virðist vera oröinn höfuðverkur allra meiri- háttar hljómsveita hérlendis, enda hafa Islendingar ávallt sótzt eftir þvi sem erfiöast er að fá. En sem sagt, engin plata frá Brimkló I býgerð eins og er. Þegar þeir félagar voru spuröir um stefnu I músikmálum, svaraði Hannes Jón af bragöi. — Segðu bara aö hún sé I humátt—, og þá vitum við það. En séu þeir ynntir nánar eftir þessu, kemur I ljós, að þeir hafa hugsað sér að spila eitt- hvaö fyrir alla. Eitthvað fyrir alla er nú til dags, I fólksmergðinni, nokkuð fjölbreytt dagsskrá, eða svo skyldi maður i'það minnsta ætla. En hvort sem Brimkló spilar eitthvað fyrir alla eða allt fyrir einhverja, er einn hlutur vls, Samkeppnin milli hljómsveita hér á Reykjavikursvæöinu er hörö og hljómsveitirnar eru hver annarri betri. Brimklóin verður þvi örugglega að hafa klória slna úti nótt sem nýtan dag, til þess að öðlast þá viðurkenningu og vin- sældir sem hver hljómsveit stefnir án efa að. 24 VIKAN 43. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.