Vikan - 10.01.1974, Side 6
stjarna”
Hvað er hægt að gera, ef móðir tnanns
er átrúnaðargoð siðustu kynslóðar og
systir manns er átrúnaðargoð þeirrar,
sem nú lifir? Lorna Luft kann bara eitt
svar við þeirri spumingu — að verða
stjama sjálf. Vandamál hennar er að
komast fram úr skugganum, sem
skyggir á hana — skugga móðurinnar
Judy Garland og skugga systurinnar
Lizu Minelli.
Ljóskastararnir beinast að henni,
hún breiðir út faðminn — og
áhorfendur standa á öndinni.
Nýir hæfileikar birtast á sviðinu,
hún stendur þarna fyrir framan
hljómsveitina.
Það er eitthvað aðdáanlega
kraftmikið við rödd hennar.
Hljóðneminn bregzt, en þrátt
fyrir það hljómar rödd hennar
eðlilega fyrir leik hljómsveitar-
innar. Ahrifin minna óneitanlega
á áhrifin, sem tvær aðrar konur,
hafa haft á áhorfendur sina.
Og það eru gallarnir tveir við
Lorna Luft, stúlkuna tvitugu
meö stjörnudóminn á sveimi allt i
kringum sig. Það tefur fyrir
henni, að móðir hennar var Judy
Garland. Og þaö gerir henni enn
erfiðara fyrir, að hún er hálf-
systir Lizu Minelli.
Hæfileikar hennar eru tæpast
kunnir austan Atlantshafsins og
hún á erfitt uppdráttar vestan
þess. Ef henni tekst að fá fólk til
að gleyma þvi, að hún er dóttir
Judy Garland, á sama hátt og
Lizu hefur tekizt að láta fólk
hætta að tengja nafn sitt móður
sinni, þá er hún komin hálfa leiö
upp á himininn. Hún verður að
sannfæra áhorfendur um, að hún
og Liza eigi ekkert sameiginlegt
nema hæfileikana.
„Þið haldið kannski, að það sé
auðveldara af þvi að ég átti fræga
móður og jafnvel enn frægari
systur,” segir hún. ,,En ég skal
segja ykkur eins og er. Það er
helmingi erfiðara þess vegna.
Auðvitað hefur nafn móður
minnar opnað vissar dyr fyrir
mér. En ég skal lika bæta þvi við,
að þær dyr verður að ganga i
gegnum. Og þegar i gegn er
komið, er betra aö standa sig, þvi
að þá hafa stór nöfn ekkert gildi
lengur.”
Og hún burðast með tvö stór
nöfn, sem gera henni ekkert gott.
A einkennilegan hátt hefur frami
hennar snúizt i margvislegar
ófarir.
,,Allir tala viö mig um Lizu.
Hvernig byrjaði hún fyrst aö
syngja? Hefur hún hjálpað þér
mikið? Hefur hún stutt þig fjár-
hagslega? Höfum við sama
smekk á karlmönnum?
Allir virðast vona, að við reynum
að spilla hvor fyrir annarri. Viljið
þið fá að vita, hvað ég segi við
fólk, sem spyr um svona lagað?
Hún er einfáldlega bezti vinur
minn. Og ef einhver vill fá stúlku
til þess að tala illa um beztu vin-
konu sfna, þá ætti sá hinn sami að
snúa sér að einhverri annari en
mér.”
Þrátt fyrir þessar staðhæfingar
talar Lorna gjarnan um Lizu
systur sina. Hún kallar hana aidrei
hálfsystur þó að þær eigi ekki
sama föður. Faðir Lizu er
Vincente Minelli, sem stjórnaði
hinni frægu mynd Judy Garland
„Meet Me In St. Louis. Faðir
Lornu er Sidney Luft, sem fram-
leiddi myndina, sem ber heiti,
sem gæti eins verið grafskrift á
leiði Judy Garland ,,A Star Is
Born”. t þeirri þynd var saga
Garland sögð einkar fallega i
einum einasta söngtexta ,,I Was
Born In A Trunk".
Lorna Luft fæddist ekki i
kofforti. Hún fæddist eftir að tveir
brotnir úlnliðir skildu Judy
Garland og MGM — kvikmynda-
félagið endanlega aö skiptum, en
þetta kvikmyndafélag bæði
skapaði hana og eyðilagði. En það
batt ekki endi á goðsöguna. Og
bæði Lorna og Liza eru afkvæmi
ævintyrapersónunnar.
Lorna er yngri dóttir Judy
Garland og hún hefur ekki enn
lagt heiminn að fótum sér. en hún
ætlar sér að gera það. Hún er ekki
tiltakanlega falleg stúlka. en hún
hefur laglegan vöxt og andlit
hennar er tjáningarrikt. Hún er
ekki i neinum vandræðum með aö
svara fyrir sig.
„Þið viljið tala um miimmu og
þið viljið tala um Lizu”, segir
hún. Hún er orðin vön þvi og henni
finnst það næstum orðið eins og
gamansemi.
„Mér finnst dásamlegt að tala
um mömmu”. bætir hún við og sé
grannt hlustaði eftir, titrar rödd
hennar litið eitt og augun glampa,
þegar hún minnist móður sinnar.
En hún er fljót að ná stjórn á til-
finningum sinum aftur.
,,Hún kenndi mér”, segir hún
aðdáunarlega blátt áfram,” að
treysta aldrei nokkrum manni.
Hún kenndi mér að umboðsmenn
og annað þess háttar fólk, reyndi
alltaf að hagnast á manni og nota
mann i sina eigin þágu.”
Eitt kenndi Judy Garland ekki
dóttur sinni. Hún kenndi henni
ekki, hvernig á að horfast i augu
við harmleik. „Hvers vegna hefði
mamma átt að kenna mér það.
' Hún hugsaði ekki mikið um
sorgir. Ég man aldrei eftir þvi að
hún hafi verið sorgbitin. Mér
■ fannst hún alltaf vera að reyna að
skemmta sér og njóta lifsins.”
,,Og þegar ég rifja upp
stundirnar með henni, fæ ég ekki
skilið af hverju fólk spyr sumra
6 VIKAN 2. TBL.