Vikan


Vikan - 22.05.1974, Side 5

Vikan - 22.05.1974, Side 5
Þroskaþjálfun Kæri Póstur! Mig langar til að leita til þin i vandræðum minum, þvi að ég get hvergi fengið svör viö þessum spurningum, hvorki hjá mömmu minni eða kennurum. Ég vona þess vegna, að þú getir leystúr þessum spurningum fyrir mig. Ég yröi mjög þakklát. Hér koma svo spurningarnar: 1. Er ekki til skóli hér á landi sem heitir Þroskaþjálfaskóli? 2. Hvar er hann til húsa, ef hann er til? 3. Hverjum á ég að skrifa til að fá upplýsingar um skólann? Með kæru þakklæti og fyrir- fram þökk. Lesandi. Póstinum er þaö sönn ánægja að leysa úr þessum spurningum fyrir þig. 1.—2. Þroskaþjálfun er kennd viö Kópavogshæliö og til þess aö geta hafiö nám þarf viökomandi aö vera oröinn átján ára og hafa lokiö landsprófi eöa gagnfræöa- prófi meö góöum einkunnum. Námiö tekur hálft þriöja ár og er einkum fólgiö i verklegu námi á hælinu og auk þess nokkru bók- legu námi, einkum i uppeldis- og sálarfræöi. Nemar fá greidd nokkur laun meöan á námi stend- ur. 3. Frekari upplýsinga er væn- legast að leita hjá forstöðumanni Kópavogshælisins, sem heitir Björn Björnsson. Menningarbylting Halló Vikupóstur! Ég ætla aö biðja þig að gera mér þann greiða að segja mér, hvað fyrirbærið menningarbylt- ing er. Bless og þökk fyrir. S.L. Þarna kemuröu Póstinum i nokkurn vanda, þvi aö menn- ingarbyltingu er mjög erfitt aö skýrgreina, aö minnsta kosti i stuttu máli og sjálfsagt má deila endalaust um skýrgreiningar á þessu hugtaki. En til þess aö þú farir ekki alveg bónleiö(ur) til búöar, er rétt aö gera tilraun: Menningarby lting er róttæk breyting á viöhorfum fjölmennr- ar samfélagsheildar til rikjandi skipulags og viötekinna skoöana og leiöir af sér gagngera breyt- ingu á Hfi samfélagshcildarinnar. Af tilefni vill Pósturinn geta þess, aö hann birtir ekki danslagatexta, nema i örfáum undantekningartilfellum og ráöleggur þvi þeim lescndum sinum, sem eru á höttunum eftir slikum textum, aö leita þeirra i danslagatextaheftum. Of lítið samband Kæri Póstur! Ég hef aldrei leitað ráða hjá þér áður, en nú ætla ég að reyna það. Þannig er mál meö vexti, að ég eignaðist son fyrir stuttu og er reyndar mjög ánægö með það, nema hvaö ég og barnsfaðir minn erum ekki saman, þvi að meðan ég gekk með barnið fékk ég óbeit á honum og gat ekki séö hann frá þvi að ég var kominn þrjá mánuði á leið, svo aö við hættum aö vera saman þá. Hann kom i heimsókn til min viku eftir aö ég kom heim af fæö- ingardeildinni til að sjá drenginn og við sátum saman heilt kvöld og töluðum um daginn og veginn, en hann reyndi ekki hið minnsta viö mig. Nú, þegar tæplega tveir mánuðir eru liðnir, frá þvi að ég átti barnið, hringir hann til min á hverju kvöldi, en hann spyr aldrei, hvort ég vilji taka upp samband okkar aftur. Ég er alveg aö gefa upp alla von um að ná honum aftur. Ég elska hann. Og nú spyt- ég, hvaö ég eigi að taka til bragös. Hvaö heldur þú, að ég sé göm- ul? Getur þú lesið eitthvaö úr þessu krassi? Einstæö móðir. P.S. Þetta er ekkert „blöff”. Þér er óhætt aö halda áfram aö lifa I voninni á meöan hann heldur áfram aö hringja til þfn og spjalla viö þig. Þaö bendir ekki til ann- ars, en hann hafi áhuga á aö halda sambandi viö þig. Kannski þaö sé bara þér aö kenna, aö þiö hafiö ekki tekiö upp fyrri hætti. Hann á sjálfsagt erfitt meö aö gleyma þvi, aö þú visaöir honum á bug meöan þú gekkst meö barn- iö. Reyndu nú aö bæta fyrir þaö og vita, hvort allt kemst þá ekki I gott lag ykkar á milli. Þú ert á- tján eöa nitján ára. Skriftin bend- ir til þess, aö þú sert alls trausts verö og Póstinum kemur ekki til hugar aö halda, aö bréfiö þitt sé „blöff”. Mikið úrval af skólaritvélum. Sendum í póstkröfu. SKRIFVÉLIN, Suðurlandsbraut 12 — sími 85277. Auðvitað vill konan yðar laga gott kaffi fyrirhafnarlítið. Gefið henni því Remington kaffilagara. Helstu kostir: Samstæða með könnu og trekt. Hægt að stilla rennsli heita vatnsins (þér getið notað eigin kaffikönnu) — Hitavatns- geymir tekur 1.3 lítra og er með skiptingu fyrir 1—10 bolla — Sjálfvirkur hitastillir varnar ofhitun — Hitaplatan heldur kaffi hæfilega heitu allan daginn — Fallega hannað heimilistæki — Árs ábyrgð oa&si Laugavegi I78 simi 38000 SPERW^REAAINGTON — merki sem tryggir gæðin. 21. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.