Vikan


Vikan - 22.05.1974, Page 7

Vikan - 22.05.1974, Page 7
M John á erfitt með að trúa þvi sjálfur. aö honum hafi fallið ham- ingjan iskaút á nýjan leik. „Volli fyllti lff mitt nýjum tilgangi,”-' segir hann. John Card með John son sinn, sem er að verða tveggja ára og Rachel dóttur sína, sem er fimm ára. „Ég á aðeins dásamlegar minningar. Ég hef einskis aö iör- ast og ekkert til að ásaka sjálfan mig um. Ef svo væri, væri Hfið mér erfitt.” ► spyrja svo margs og nú fæ ég aldrei svör við spurningum mlnum. Ég veit að með timanum hverfa sárindin og söknuðurinn, en ég þarf einhvern veginn að komast gegnum þennan tima. Stundum segir fólk við mig, að ég kynnist annarri konu, en þegar svoleiðis er sagt við mig, langar migmest af öllu tilað kasta upp.” „Börnin hafa verið dásamleg og þau hafa sýnt undraverðan skilning. En ekki yngsti drengur- inn. Stundum sé ég það i augunum á honum, að hann skilur ekki hvers vegna móðir hans er ekki lengur hjá okkur. Ég er vel fær um að sjá um húsið og börnin. En þegar börnin eru að heiman, yerður einmanaleikinn þung- bærastur. Þegar þau eru farin i skólann, langar mig alltaf til að fara út og ganga og ganga. Herbergi barnanna eru snotur og þokkaleg. Hann sýnir húsið og er greini- lega hreykinn af þvi, hvernig hann hefur málað allt sjálfur og haldið öllu við. Herbergi barn- anna eru einkar snotur og þokka- leg og bera það greinilega með sér, að einhver litur eftir þvi, að þau haldi þeim hreinum og snyrtilegum. „Ég reyni að hafa alltaf nóg að gera,” segir hanri. „Mér gengur alltaf illa að sofna, þegar ég er háttaður. Og þó veit ég, að ég þarf að mæta hverjum nýjum degi endurnærður eftir svefninn. Það er ekki vegna þess, að ég vilji ekki hefjast handa að nýju. Mig langar einmitt til þess. En einhvern veginn á ég svo erfitt með aö einbeita mér að starfinu. Mér finnst allt svo tilgangslaust. Þegar komið er til Axbridge, er hún ósköp áþekk öðrum gomlum þorpum. Dæmigert enskt þorp, hugsar ferðalangurinn, en þó er Axbridge ekki þorp, þvi að hún fékk borgarréttindi á þrettándu öld. Og að einu leyti er hún frábrugöin öðrum viðlika stöðum. Beint á móti markaðstorginu við West Street er letrað stórum stöfum á dyr einar — Disaster Coordination Centre. (Slys- hjálparmiðstöðin). Þar hafa samastað konurnar tvær, sem hafa haft umsjón með Framhald á bls. 40 21. TBL. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.