Vikan


Vikan - 22.05.1974, Page 32

Vikan - 22.05.1974, Page 32
HÚN SMÍÐAR BÁTINN SINN SJÁLF í Nauthólsvíkinni starfar á veg- um Æskulýðsráðs Reykjavikur siglingaklúbburinn Siglunes. Starfsemi klúbbsins á sér oröið rúmlega tiu ára langa sögu og nú eru meðlimirnir orðnir i kringum fimm hundruð. Klúbbfélagar eru á aldrinum frá tólf ára og upp undir tvitugt. Þeir sigla seglbát- um, róa kajökum og kanóum út á Fossvoginn undir eftirliti tveggja manna á vélknúnum báti, sem fylgjast með ungviðinu og gæta þess að ekkert verði aö krökkun- um, þó að þau lendi i sjónum eða hlekkist eitthvað annað á. Æskulýðsráð er nú aö undirbúa rekstur skólaskips, sem er átta tonna bátur. Ætlunin er að dreng- ir, og vonandi stúlkur lika, fái að fara i sjóferðir á bátnum og renna fyrir fisk og freista þess, hve afla- sæl þau eru. Skipstjóri hefur verið ráðinn á skólaskipið, en enn hefur ekki verið ákveöið, hvenær farið verður i fyrstu ferðina. Siglingatiminn hjá félögum I siglingaklúbbnum er að sjálf- sögðu á sumrin, en þó kemur það fyrir, að farið sé út á bátunum að vetrarlagi, ef gott er veður og stilltur sjór. Samt er veturinn, einkum not- aður til bátasmiða, en þá eru haldin tvö námskeið i bátasmíöi á vegum Æskulýðsráðs. Hið fyrra hefst í október og stendur til ára- móta, en hið siðara hefst upp úr áramótunum og stendur fram á vorið. Á hvoru nám'skeiði geta með góðu móti komizt að tólf ung- ir bátasmiðir. Ingi Guðmonsson, skipasmiðameistari, hefur leið- beint bátasmiðunum frá árinu 1967, en hann rak áður skipa- smiöastöö á Akranesi. Algengast er, að þátttakendur i 32 VIKAN 21. TBL. Margar formæður okkar stóðu sig vel i sjósókn og fiskiveiðum, en fæstar þeirra munu hafa smiðað báta. En nýlega hafði Vikan spurnir af stúlku, sem er að smiða sér bát, og fékk að lita á smiðina hjá henni. Það er gaman að handleika heOlinn. Ingi Guðmonsson leiðbeinir .Sigrúnu við smiðarnar. námskeiðunum glimi við smiði svokallaðra „slskáta” (af enska orðinu seascout, en ekki hefur verið Islenzkað öðru visi enn sem komið er) en þaö eru einsegla bát ar, rúmur metri á breidd og ellefu fet á lengd. Seglið er fjórtán feta hátt. „Siskátarnir” eru að mestu leyti smiðair úr sex mm þykkum furukrossviði og allt efni til smiðinnar — að meðtöldu segl- inu, sem er úr næloni og afar létt og lipurt i meöförum — kostar I kringum tiu þúsund krónur. 1 flestum tilfellum tekur smíðin um það bil tvo mánuði, þó að vita- skuld sé misjafnt, hvað smiðirnir eru fljótir og hve mikinn tima þeir hafa aflögu frá skólanáminu og öðrum skyldustörfum. „Sishótarnir”, sem smiðaðir

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.