Vikan

Issue

Vikan - 27.02.1975, Page 28

Vikan - 27.02.1975, Page 28
Æskuþrek og bemskubrek í Stjörmibíói Höfundur handrits, byggðu á My Early Life eftir Winston Churchill — Carl Foreman. Leikstjóri — Richard Atten- borough. AOalhiutverk: Robert Shaw, sem fer með hlut- verk Randolphs Churchiiis lá- varðar. Anne Bancroft, sem fer með hlutverk lafði Jennie Chur- chill, og Simon Ward, sem fer meö hlutverk Winstons Chur- chills. Auk þeirra fara Jack Haw- kins, Ian Holm, Anthony Hopkins, Patrick Magee, Edward Wood- ward og John Mills með meiri háttar hlutverk I myndinni. Stjörnubló er aö hefja sýningar á kvikinyndinni Bernskubrek og æskuþrek, sem byggð er á endur- minningabók Winstons Churchills My Early Life, sem reyndar hef- ur komiö út á íslensku undir sama heiti og kvikmyndinni hefur verið gefið. Eins og nafnið gefur til kynna fjallar myndin um æsku Churchills, brösótta skólagöngu, meöal annars f Harrow, og liðs- foringjanám hans I Sandhurst, þaðan sem hann útskrifaöist með frábærum vitnisburöi. Slðan er greint frá hermannsárum hans, þegar hann var strlðsfrétta'ritari fyrir Morning Post og Daily Tele- graph. í striðsfréttum Churchills komu greinilega I ljós afburða stilhæfileikar hans og frásagnar- þróttuf, og hugrekki hans á vig- völlunuin i Indlandi, Súdan og Suður-Afriku var dæmafátt. Fréttapistlar hans af vigvöllun- um nutu mikilla vinsælda lesenda og eru nú taldir meðal öndvegis- bókinennta á enska tungu, enda eru greinar hans frá vígvöllunum þekktar og vinsælar hvarvetna i heiminum. 1 17 i ■ Wmt' I.j ’í' MBKfljF*p¥yfy| Ji Það er Simon Ward, sem leikur Churchill ungan, og þykir Ward vera mjög áþekkur Churchill, eins og hann leit út ungur. Simon Ward var valinn úr hópi 4000 leik- ara til þess aö_ fara með þetta hlutverk, og þykir valið hafa tek- ist frábærlega vel. Ward hafði að- eins komiö fram I einni kvik- mynd, áður en hann lék hlutverk Churchills, og þá I litlu hlutverki, en Carl Foreman framleiðandi .myndarinnar og höfundur hand- ritsins settu það ekki fyrir sig. Og þá þótti leikstjóranum Richard Attenborough ekki slður gott aö vinna með Ward, ef marka má þau ummæli hans, ,,aö jafngóðum leikara hef ég sjaldan unnið með”. Kannski einhverjum þyki gaih- an aö vita, að það var .Winston Churchill sjálfur, sein stakk þeirri hugmynd að Carl Fore- man, að hann ætti að kvikinynda bókina. En þá þótti Foreinan hann tæpast maður til þess að ráðast i svo erfitt verkefni, svo aö ekki varö úr kvikmyndatökunni fyrr en löngu seiiina. En nú þykir 28 VIKAN 9. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.