Vikan - 15.05.1975, Blaðsíða 5
Ted Lapidus, sem sneið þennan
kjól, segir, að hjá sér sé það ekki
siddin, sem skipti máli, heldur
viddin. Stúlkan, sem sveiflar sér
i þessum ljósa krepkjól, heitir
Eva, og hún starfar sem sýning-
arstúlka ög ljósmyndafyrirsæta
til að standa undir kostnaði við
nám sitt i fornleifafræði.
Þessi skrautlegi kjóll frá Car-
ven fer vel við dökka húð Ni-
caise. Nicaise er frá eyjunni
Guadeloupe, og þar til fyrir
skömmu vildi hún hvergi annars^
staðar vera en þar, i sólinni hjá
systkinum sinum 12. Hún skellti
skollaeyrum við bón Carven um
að koma til Parisar, en frú Car-
ven leist mjög vel á þessa ungu
stúlku. En þegar Giscard d’Est-
aing Frakklandsforseti var i
heimsókn á Guadeloupe fyrir
nokkru var Nicaise meðal
stúlkna, sem gengu um beina i
einni veislunni, klædd eins og við
sjáum á meðfylgjandi mynd.
Prúðmannleg framkoma forset-
ans breytti áliti Nicaise á frans-
mönnum til hins betra, og hún á-
kvað að verða við bón frú Carven
og koma til starfa i tiskuhúsi
hennar i Paris.
20. TBL. VIKAN 5
V>