Vikan

Útgáva

Vikan - 26.06.1975, Síða 6

Vikan - 26.06.1975, Síða 6
frekar okkur til ánægju. En svo var þaö snemma á árinu 1960, þegar Donny var smápatti, að þetta skeði allt með nokkuð at- vikakenndu móti og lif okkar allra tók skjótum breytingum. — Við þurftum að horfast i augu við það, að börnin okkar urðu að breyta lfferni sinu, þau gátu ekki sótt venjulega skóla, þegar viö vorum á ferðalögum mikinn hluta ársins. En við George ákváðum að láta þau njóta sín og haga lífi fjölskyldunnar eft- ir þvi. George sagði upp starfi sínu, og svo fórum við bæði með börnum okkar út á þjóðvegina, eiginlega I bókstaflegri merk- ingu. Slðan höfum við verið með þeim á öllum þeirra ferðalögum, bæði utanlands og innan. Við er- um oft spurð að því, hvort viö höf- um ekki áhyggjur af því, að börn- in okkar lifi ekki eðlilegu llfi, séu á feröalögum flesta mánuði árs- ins. Við getum svarað því með sanni, að við tökum heimilið með okkur. Það skiptir mestu máli, við erum alltaf öll saman. — Við erum þvi alls ekki heim- ilislaus. Börnin verða að hlýta sömu reglum, hvort sem við erum heima eöa heiman, rétt eins og við værum heima I Utah. Engin fýluköst, enga duttlunga og engan æsing. Og hverjar eru svo þessar regl- ur? Hverjar eru þær, fyrir utan venjulegar trúarreglur mor- móna, eins og að neyta hvorki tóbaks né áfengis? — Aðalatriðið er að sýna á- byrgðartilfinningu og virðingu hvert fyrir öðru, sagði Olive. — Viö erum ein eind,' eins og þú sérð. Við verðum að lifa i sátt og samlyndi, annars fer allt út um þúfur. Þess vegna getum við ekki leyft neinum að eyðileggja sam- búðina með fýluköstum og duttl- ungum. Ég held reyndar, að þetta sé höfuðatriði i öllum stórum fjöl- skyldum. Það er ekki lengi að smita frá sér, ef einhver lætur eftir sér duttlungaköst, og það er einlægur vilji okkar allra, að láta ekkert skyggja á fjölskyldufrið- inn. Pabbi hefur lika sett þær reglur, að við leyfum ekki fýlu- köst, duttlunga eða æsing, og allir virða boð hans og bönn. — Eg veit, að fólki finnst þetta nokkuð undarlegt, eins konar Utopia, finnst þér það ekki? Það hendir llka, að einhver er með ó- lund eða leiðindi.en þá er það föst regla, sem ekki verður umflúin, aö sá hinn sami verður að hverfa inn á sitt eigið herbergi og vera þar, þangað til kastið er liðið hjá oghann eða hún eru aftur komin I jafnvægi. Ef einhver af Osmondfjölskyld- unni stendur frammi fyrir vanda- máli, þá þarf hann aldrei að horf- ast I augu við þaö einsamall. Það eru alltaf vikulegar ráðstefnur, þar sem málin eru rædd, og venjulega leysast þá allir hnútar af sjálfsdáðum. Olive og George hófu þessar vikulegu ráðstefnur sinar fyrir mörgum árum, og þær hafa gefist svo vel, að margir af vinum þeirra hafa farið að þeirra dæmi. Fjölskyldufundirnir eru alltaf á föstudögum. — Þá söfnumst við öll saman, sagði Olive, — og ekki eingöngu við, sem erum heima, heldur llka þau hin, Virl og Tom, tveir elstu synir minir (þeir eru komnir undir þrltugt), konur þeirra og börn. — Þessir föstudagsfundir eru nokkuðmeð sérstökum hætti, þvi aö við heiðrum þá einhvern sér- stakan fjölskyldumeðlim, borö- um uppáhaldsmatinn hans og sýnum honum einhver sérstök vinahót. A eftir höfum við alls konar skemmtiatriði, sem hver velur eftir sinum smekk. Aður en við skiljum, tökum við fyrir vandamál vikunnar á undan. Við tölum um viðskiptahliðina, ræð- um um hvort þessi eða hinn söng- urinn sé liklegur til að slá i gegn, eða hvort hann kemur betur út með einsöng, — hvort við eigum að taka ákveðnum tilboðum.I ná- inni framtið og allt þessháttar. — En við ræðum lika persónu- leg vandamál, til dæmis hvort við eigum að taka af fjölskyldusjóön- um —allar tekjur fara i sameigin- legan sjóð) til að kaupa flugvél fyrir Wayne, eða hvort Jimmy eigi að fá nýtt reiðhjól. — Þegar við erum öll búin að segja skoðun okkar, þá er gengið til atkvæða, en venjulega er það pabbi, sem kveður upp foka- ákvörðun. Já, það er eins og ég sagði, það er pabbi, sem valdið hefur, og orð hans eru lög. Margir hugsa eflaust sem svo, að þessi eining og yfirleitt lífs- venjur Osmondfjölskyldunnar séu ekki raunveruleg. Það er mjög erfitt að trúa þessu nú til dags, þar sem svo algengt er, að börn rlsi gegn boðum og bönnum for- eldranna. — Þetta byggist allt á aga frá bamæsku, sagði Olive til skýring- ar. — Ég veit vel, að margir for- eldrar gefast upp, eru jafnvel hræddir við að leggja börnum sin- um lífsreglurnar, af ótta við að verða óvinsæl. En að minu áliti er það uppgjöf, sem sundrar fjöl- skyldum og getur aldrei orsakað annað en óánægju. Reglur veita öryggiskennd. — Ég veit með vissu, að börnin okkar eru ánægð meö þetta fyrir- komulag, þau vita hve langt þau mega ganga, og það skapar líka öryggi. Að sjálfsögðu hafa þau oft verið óþekk og brotið settar reglur, og þá verður pabbi að koma til skjalanna og refsa þeim. Hann hefur oft danglað svolítið I þau, en það geri ég aldrei. — Pabbi ætlast til, að þau taki refsinguna til greina, en það er aldrei minnstá þessi atvik siðar. Ég held, að börnin beri virðingu fyrir þessum lögum. Reglur uin stefnumót eru mjög á- kveðin. — Eitt erfiðasta vandamálið er, þegar börnin vilja fara á stefnumót. 1 því máli eru mjög á- kveðnar reglur. Enginn fær að fara slikar feröir fyrr en sextán ára aldri er náð, og frá þeirri reglu er engin undantekning, sagði Olive. — Að sjálfsögðu eiga bömin vini af báðum kynjum, en rómantisk stefnumót eru bönnuð til sextán ára. Ef eitthvert barn- anna undir sextán ára hefur farið út aðkvöldi til, þá er skilyrðislaus krafa að vera kominn heim fyrir klukkan tíu, og að sjálfsögðu verða þau að segja pabba og mér, hvert þau ætla að fara. En ef Marie, sem er lagleg og prúö hnáta, fimmtán ára, vill fara I bió eða á einhverja Is- sjoppu? — Þá fer hún með vinkonu sinni eða einhverjum bræðra sinna, sagði Olive. — En vinur á föstu er ekki leyfður innan sextán ára. En dreymir hana ekki um rómantiskan elskhuga? Olive hló. — Vitaskuld dreymir hana um slikt. Það gerir allar stúlkur á hennar aldri. Hún festir ráð sitt, þegar þar að kemur, gift- ist góðum mormóna og eignast mörg born, að minnsta kosti von- ar hún það. Hún er reyndar búin að sauma allt, sem hún þarf til búsins, og eignast bæði rúmfatn- að, borðbúnað og marga fallega muni. Við mæðgurnar förum oft i búðir, þegar við erum á ferðalög- um, og kaupum þá ýmsa hluti, sem geta komið að gagni fyrir hana í framtiðinni. Það vekur undrun mina, að Marie skuli taka þessu öllu með jafnaðargeði og vera ánægð með sitt hlutskipti. Ég hefi aldrei heyrt getið um stúlku á hennar aldri, sem þegjandi og hljóða- laust tekurtil eftir bræður sina og þjónar þeim eftir megni, án þess að nöldra yfir mismun kynjanna. Hún hlýtur að vera leið á þvi ein- staka sinnum? — Reyndar ekki, sagði Olive. — En þá verður maður llka að taka það með I reikninginn, að hún hef- ur aldrei verið f skóla með öðrum stúlkum eða öðrum unglingum. Hún er að sjálfsögðu lika undir miklum áhrifum frá mér og reyndar allri f jölskyldunni. Þannig viljum við lika hafa það, og ég hefi alltaf haldið þvi fram, að konan eigi að vera á heimilinu og alltaf með börnum sinum. Öll börn hafa þörf fyrir einkalif að einhverju niarki. — Það getur verið, að ég sé sérstaklega heppin meö dóttur mlna. Ég veit, að mér væri óhætt að fara i burtu og skilja Marie eina eftir til að sjá um heimilið, hún myndi leysa það af hendi með prýði. Hún er lika mjög hneigð fyrir hannyrðir. Hún saumar oft sjálf fötin sin og saumar mikið út. Hún hefur saumað og merkt dótið sitt, þegar við erum á ferðalög- um. Við mæðgurnar erum mikið einar, þegar við erum á ferðalög- um, og þá sitjum við oftast við einhverja handavinnu. Okkur mæðgunum kemur mjög vel sam- an. Hm...m.. Þetta hljómar eitt- hvað einkennilega. Kemur hún aldrei með nein mótmæli? Olive brosti glaðlega. — Það er reyndar eitt, sem við erum ekki sammála um, og það held ég að allar mæögur reyni. Mér finnst hún smyrja heldur miklu maki framan I sig. Þessi litli kjáni var farinn að klistra á sig gerviaugn- hárum, þegar hún var aðeins átta ára! — Lengi vel reyndi ég að telja hana ofan af þessu, sagði henni, að hún myndi alveg eyðileggja húðina. En svo datt mér annað betra I hug, ég kallaði hana vax- brúðu og sagði henni, að mér fyndist hún ætti að fara að hugsa til þess að setja upp snyrtistofu. Þetta reyndistvel, þvlaðnú hefur hún svo mikinn áhuga á hörunds- rækt, að hún er farin að nota miklu minna af þessu fegrunar- drasli. Svo er það eitt, sem Olive heldur fram: — Hverju barni er nauösyn að hafa eitthvað út af fyrir sig, geta horfið inn i sinn eigin krók, ekki sist börnin okkar, sem eru svona mikið I sviðsljós- inu. Heima i Utah, þar sem raun- verulegt heimili okkar er, (húsið i Los Angeles notum við aðallega, þegar við þurfum að vera I Kali- fomlu) hefur hvert barn sitt eigið herbergi, sem þau geta svo skreytt eftir eigin smekk og eng- inn getur farið inn I, án þess að drepa á dyr. — Herbergi Marie er mjög kvenlegt, og hún læsir þvi alltaf. Donny er allur i raftækni, og það má sjá það á herbergi hans, sem er búið hinum furðulegustu hlut- um. Siðasta uppfinning hans er rúm, sem hann getur látið svifa i loftinu,með þviaðýta á takka, en þá hefur hann lika meira gólf- rými! Það virðist ganga á ýmsu á heimili fjölskyldunnar i Utah. Morgunverður stendur alltaf á boröinu klukkan átta á morgn- ana, og eftir matinn setjast þau öll kringum hringborðið og ræða um starfið, sem er framundan þann daginn. Timi til alls, — jafnvel náms. — Mestur hluti dagsins fer i æf- ingar f stúdiói, sem er áfast við húsin (I Utah og Los Angeles). Svo verðum við að sjá til þess, að börnin fái kennslu i venjulegum námsgreinum. Þar sem fjöl- skyldan er svo mikið á faralds- fæti, var ekki mögulegt fyrir börninað sækja venjulegan skóla og I fyrstu reyndu þau að bjarga sér með bréfaskólum, en svo vor- um við svo heppin, að Merrill kvæntist kennara. Mary, fallega, dökkhærða kon- an hans Mttrill, hafði verið há- skólakennari, og hún þauðst strax til að annast kennslu yngri barn- anna, sem eru Donny, Marie og Jimmy. Þau reyna að koma þvi þannig fyrir, að stunda námið fimm klukkutima á dag. Hádegisverður er ekki tekinn alvarlega, og börnin geta fengið sé snarl í eldhúsinu, þegar þau vilja. En aðalmátið dagsins er klukkan sex, og þá verða allir að mæta við hringborðið. A föstu- dagskvöldum er borðað I stórri borðstofu, en þar eru þrjú hring- borð, svo sæti séu fyrir alla. — Við erum svo mikið á ferða- lögum, að við þráum að koma heim til Utah, sagði Olive. — Þar erum við lika frjálsari, þurfum ekki að góna á klukkuna og getum gert ýmislegt, sem við höfum ánægju af. Við eigum búgarð rétt hjá borginni,og börnin fara þang- að oft, fara á hestbak eða þeysa á 6 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.