Vikan

Issue

Vikan - 26.06.1975, Page 12

Vikan - 26.06.1975, Page 12
BÍLALEIGA AKUREYRAR AUGLÝSIR: Leigjum híla án ökumanns. Afsláttur veittur af lengri leigutíma. Volkswagen 1302 og 1303. Mazda 818 station. Volkswagen sendiferðabifr. Volkswagen 9 manna. Land Rover 7 og 10 manna. Blazer 6 manna. Ford Bronco. Sérstök flugvallarþjónusta. Bílaleiga Akureyrar Tryggvabraut14 Símar 21715 og 23515 hox 510 Akureyri. © King Feature* Syndicate, Inc., 1973. World righta reaerved. -Við ætlum að breyta til í sumar og sencla börr.in í sumarbúðir en vera s.jálf heima. Ðósturinn Hornsteinar eða hornrekur Þórshöfn 23 mai ’75. Um daginn las ég i Vikunni of- urlitinn pistil, sem bar yfirskrift- ina „Er i þér vorþreyta”? Já, nú er sem sagt komiö vor, eftir fá- dæma snjóþungan vetur og ill- viörasaman. Þaö er kominn 23. mai. Allur snjór farinn, nema litilsháttar i giljum og daldrögum móti norðri. Og sem aðrar „góöar” húsmæður sit ég hér á lárviðarsveig minum og hugleiði af takmörkuðum skilningi lifið og' tilveruna. Minn lárviðarsveigur er ibúð, sem ilmar af Ajax eftir erfiði mitt við hreingerningar, skápar, sem i er snyrtilega raðað hreinum og viðgeröum fatnaði uppvaxandi skattgreiðenda, viðruð og þvegin gluggatjöld, sápufreydd gólfteppi. Og hvað svo? Ekki fá þeir þrælar þjóðfélagsins, sem heita húsmæð- ur, kaup. Þar af leiðandi ekki orlof. Jú, einhverjir opinberir aöilar hafa gengist fyrir svo- nefndri húsmæðraorlofsdvöl hér og þar i skólum eða öðrum stofn- unum vitt og breitt um landið. Þangað er okkur ráðstafað, svip- að og óskilarollum forðum, okkur til andlegrar og likamlegrar hressingar. Þaðan eigum við að koma eins og nýhreinsaðir hund- ar, tilbúnar til átaka við annir hversdagslifsins. Nú segir kannski einhver: Þið eruð giftar og ykkar eigin hús- bændur. Já, við gerðum skrifleg- an samning við karlmenn. Atvinna okkar heitir þvi hjóna- band. Hefði lesning prestsins ekki komið til, héti þessi atvinna öðru og óvirðulegra nafni. Kona, gift, fer út á atvinnu- markað, á meðan rikislaunuð fóstra elur að einhverju leyti upp börnin hennar. Það er gott og blessaö. Fóstran fær vonandi sæmileg laun. En anriist móðirin sjálf þessi sömu börn, fær hún engin laun, önnur en þau sem starfið felur i sér, og hvorki eru þau gjaldgengur miðill hjá verslun eða skattstofu. Samt er það blásið út fjálglega, að heimilin séu hornsteinar þjóð- félagsins. Nei, þau eru hornrekur þjóðfélagsins. Nú þykir mér sýnt, að lands- byggðin fái að láta i litla pokann, hvað snertir uppbyggingu. Niður- skurður á fjárveitingum kemur hart niður á iandsbyggðinni, ef á að byggja blendiverksmiðju á Suðurlandi, hafnarmannvirki á Suðurlandi, brú yfir Borgarfjörð etc. alltá Suðurlandi, meðan börn i dreifbýlinu fá ekki viðbótar- byggingu við skólann sinn og þurfa gagnfræða'skóla hingað og þangað og losna við það úr tengsl- um við heimili sin, þessa „horn- steina” þjóðfélagsins. Og gamla fólkið grætur, þvi þaö fær ekki elliheimili i sinu byggðarlagi og verður þvi að fara i fjarlæg héruð. þegar það getur ekki lengur séð um sig sjálft, ef það þá kemst þar inn á slika stofnun. Og svo koma hingað ihaldsgæðingarnir fjórða hvert ár,vel að merkja fyrir kosn- ingar, og ætla að fá atkvæði út á andlitin á sér? Þess á milli standa þeir vörð um peningavaldið i Reykjavik, ásamt öðru óþarfara, og á all- sæmilegu kaupi. Mikill er and- skotinn? Jæja, margt hefur verið rætt og ritað um mismunun og hægt að halda áfram i það endalausa. Reykvikingar finnst mér vera i eilifri streitu. Þeir eru i þrot- lausu kapphlaupi við að afla sér lifsgæða, sem þeir hafa svo ekki tima til að njóta. Þeir fá sumir kánnski sumarfri og reyna þá að skreppa út á land til að njóta friðar, eða senda okkur börnin sin i smátima til að losa þau við borgarysinn og létta á sjálfum sér. En við i dreifbýlinu verðum lika að vinna, og kostnaður hjá okkur er að ýmsu leyti meiri en hjá ibúum á Suðurlandi, t.d. dreifingarkostnaður allur. t þvi tilliti erum við stórfelldir at- vinnurekendur. Heimsókn höfuð- borgarbúa er okkur ekki eintóm ánægja, þó oft sé gaman að gest- komu. Þetta áttu nú ekki að verða nein áróðursskrif, en mér hitnar oft i hamsi, ef ég læt það eftir mér að hugsa innan um mina bolla og diska. Gott væri ef maður gæti eingöngu bundið hugann við þessa guðsgrænu, eða það af henni, sem sést út um gluggabor- una i eldhúsinu. Lika væri gott að halda áfram yoga æfingum, sem blessunin hún Ásta Guðvarðardóttir kenndi okkur. t þessu minu menningar- vannærða byggðarlagi brá fyrir ofurlitilli glætu við komu hennar i héraðið. Hún stofnaði með konum héraðsins hreilsuræktarfélag og hefur af takmarkalausum dugn- aði æft þær i bilskúrnum sinum og barnaskólanum, og konur, bæði hér og annars staðar hafa alltaf viljaö viðhalda heilbrigði sinu og annarra. Við erum þvi aö byggja okkur ofurlitiö hús, þar sem við riyggjumst halda starfseminni áfram. Með sjálfboðavinnu, gjöf- um góðra manna og ofurlitilli lán- töku vonum við, að þetta takist. Ég vona, að fleiri konur fari að dæmi okkar.sem búum.að ýmsra mati,á mörkum hins byggilega heims. Það er ótrúlega afslapp- andi að loknum degi að fara i heilsuræktarleikfimi, komast að- eins út og hitta aðrar konur. Ég segi ekki, að þá sé bráö nauðsyn- legt að ræða um barnauppeldi, eiginleika þvottadufts, eða endingu prjónagarns, það er hægt að finna skemmtilegri umræðu- efni. Ég sendi ykkur hjá Vikunni þennan pistil, af því að þegar vor- ar fæ ég ritræpu eða eiröar- 12 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.