Vikan

Útgáva

Vikan - 26.06.1975, Síða 17

Vikan - 26.06.1975, Síða 17
— Eruö þið triílofuð? spurði Dorothy. — Engar skuldbindingar, sagði Jón ákveöinn. — Við látum hverj- um degi nægja sina þjáningu. Seinna reyndi hann að lýsa þessu nánar fyrir þeim.' — Við deilum öllu jafnt, sagði hann. Með öllu átti hánn viö allt frá kuldaflfkum til naglaþjala, öll út- gjöld — leiguná, rafmagnið, hit- ann, slmann og matinn. Þau hrif- ust á margan hátt af þvl lifi, sem sonur þeirra lýsti fyrir þeim. — Ég þurrka af, hún ryksugar og býr um rúmið. Rúmiö. Hann langaði til þess, að þau skildu, hvernig þetta var. En Dorothy skildi það alls ekki. Dorothy hugsaði um stúlkuna, sem ryksugaði og piltinn, sem þurrkaði af, og sagði bllðlega: — Við hlökkum til aö kynnast Chloe. Ég skrifa henni og segi henni það. Hvorugt foreldri Jóns þorði aö biðja hann um að segja Susan ekki frá þvi, hvernig lífi hann lifði. En þau höfðu áhyggjur. Þvi að tæki Jón sér eitthvað fyrir hendur, vildi Susan gera eins. Susan kom ekki heim fyrr en þremur dögum fyrir jólin. Hún og Jón töluöu saman hálfa nóttina, og morguninn eftir kom hún inn til foreldra sinna með tebolla meðferðis. — Er þaö ekki dásamlegt með Jón og Chloe? — Það vona ég, sagði Dorothy. Susan hafði hár eins og móðir hennar, nema hún hafði það sltt og slegiö. Hún var átján ára, og þetta var fyrsti veturinn hennar i litlum háskóla I Wáles. Hún lagðist endilöng á teppiö I svefnherberginu og lét tebollann hvlla á maganum á sér. — Hugsið ykkur að vera frjáls og elska hvort annað, deila öllu jafnt — og vera óbundinn. Dorothy svaraði alvarleg I bragöi: — En Jón sagði harla fátt um ást. — Auðvitað er það ást. Jón er hættur að drepa tittlinga I sifellu, og hann hefur þyngst um nokkur pund. Var þetta ást? Að hætta við taugaveiklunarkæk og þyngjast? Dorothy spurði ekkí frekár. Það hljómaöeins og að hafa oröiðeftir á örkinni hans Nóa að spyrja of oft: Já, en er það ást? Hvíllkur óravegur getur ekki verið milli þankagangs tveggja mannvera? Susansagði: — Ég vona, aöþau eyöileggi það ekki með þvl að fara að gifta sig. — Hvað hefurðu á móti gift- ingu? Susan vildi ekki særa tilfinning- 26. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.