Vikan - 26.06.1975, Page 24
ÚRKOMA í Gl
Veðrið hefur ómæld áhrif á andlega og
líkamlega velferð okkar, enda mun rflds-
útvarpinu enginn timi jafnheilagur og
veðurfregnatiminn. A árum áður spáðu
sjómenn sjálfir fyrir gæftum og ógæftum
og bændur fyrir þurrki og rosa, en nú
hefur Veðurstofa íslands löngu tekið við
veðurspám og spáir veðri jafnt fyrir alla.
A dögunum heimsótti Vikan Veðurstofu
íslands og fékk að kynnast starfsemi
stofnunarinnar.
...austrið og vestrið lætur þú
fagna.
t»ú hefur vitjað landsins og
vökvað það,
biessað það rikulega með
læk Guðs, fullum af vatni:
þú hefur framleitt korn
þess, þvi að þannig hefir þú
gjört það úr garði.
Þú hefir vökvað plógför þess,
jafnað plóggarða þess:
með regnskúrum hefir þú
mýkt það, blessað gróður
þess...
(65. Daviðssálmur.)
VEÐRIÐ í ÞJÓÐTRtJNNI OG
ANNARRI TRtJ
Ef i heiði sólin sest
á sjálfa Kyndilmessu,
snjóa vænta máttu mest
maður upp frá þessu.
,,,hann lét austanvindinn taka
sig upp i himninum
og leiddi sunnanvindinn að
með mætti sinum...
(78. Daviðssálmur.)
Veðurstofa islands viö Bústaöaveg. í forgrunni myndarinnar sjást nokkur þeirra tækja,
sem veöriö IReykjavik er mælt meö.
Til þess að vita, hvernig
viðrar á vetrum, er gott að
taka nýtt kindarmilti, skera i
það átta samsiða þverskurði
og leggja það svo einhvers
staðar, þar sem enginn nær i
það. Þannig skal það liggja
heilan dag. Þegar menn svo
skoða það eftir daginn, skal
nákvæmlega gæta að, hvort
skurðirnir hafi glennst i
sundur eða ekki. Ef þeir hafa
glennst í sundur, verður góð
veðurátta næsta vetur, en séu
skurðirnir fast saman, eins og
þegar þeir voruskornir i miltið,
þá mun illa viðra.
(Þjóðsögur Jóns Árnasonar.)
Ef að Harpa heilsar vel,
höldar hafa i minni.
Sólarlitið samt ég tel
sumarið sig kynni.
24 VIKAN 26. TBL.