Vikan

Issue

Vikan - 26.06.1975, Page 26

Vikan - 26.06.1975, Page 26
Geir ólafsson deildarstjóri fjarskiptadeildar og Hilmar Norðfjörð starfsmaður deildarinnar við fjarritana. Hrafn Karlsson rannsóknarmaður á veðurstofunni sendir veöurskeyti islensku veöurathugunarstöövanna til London. Sem deildarstjóri veðurspádeildar verður Markós A. Einarsson að fjalla um fleira en veðrið. Hér ræðir hann reikninga viö Sunnu Karlsdóttur bókara. tækjum til veöurathugana en þar sem þau eru iðulega f siglingum langt frá landinu, senda þau ekki veöurskeyti til veöurstofunnar eins reglulega og landstöövamar. Ahaldadeild veöurstofunnar, en deildarstjóri hennar er Flosi Hrafn Sigurðsson, sér um eftirlit meö veðurathugunarstöðvunum og annast viðgerðir á tækjum þeirra Ahaldadeild annast einnig innkaup á nýjum tækum. Flosi Hrafn sagði, að verksvið áhaldadeildar væri smám saman að vikka, þvi að það hefði færst i vöxt að leitað væri aðstoöar veðurfræðinga þegar væri verið að undirbúa mannvirkjagerð, eins og til dæmis brýr og flugvelli, og það hefði komið i hlut áhalda- deildar að veita slika þjónustu. Einnig sagði Flosi þá grein veðurfræðinnar, sem kalla mætti búveðurfræði hafa fallið undir verksvið áhaldadeildar. Beint samband við Bracknell tslensku veðurskeytin berast gegnum landssfmastöðvarnar viðs vegar um landið til ritsima- stöðvarinnar i Reykjavik, sem siðan sendir skeytin til veðurstof- unnar, þar sem tekið er á móti þeim á fjarskiptadeild stofnunar- innar. Fjarskiptadeildin tekur einnig á móti öllum erlendum veður- fregnum til afnota fyrir veður- spádeiíd veðurstofunnar og flug- veöurstofuna á Keflavikurflug- velli. Jafnframt sendir hún öll veðurskeyti frá íslandi og Græn- landi áfram til útlanda. Þá er tekið á móti margs konar veður- kortum á fjarskiptadeildinni, en allar stærstu veðurstofur Evrópu og Ameriku senda loftleiðis eða á simalinum allar tegundir veður- korta, sem gerðar eru, og fjar- skiptadeildin er búin tækjum til Flosi Hrafn Sigurðsson deildarstjóri áhaidadeildar.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.