Vikan

Útgáva

Vikan - 26.06.1975, Síða 27

Vikan - 26.06.1975, Síða 27
aö taka loftleiðis öll þau veöurkort, sem óskað er eftir. A f jarskiptadeildinni er einnip tekið við flugveðurspá flugveður- stofunnar i Keflavik fyrir þær flughafnir, sem óska að fá spána hér i Reykjavik. Þá tekur fjar- skiptadeild veðurstofunnar einnig við gervitunglamyndum frá flug- veðurstofunni i Keflavik. Deildarstjóri fjarskiptadeildar er Geir Olafsson og sagði hann, að f jarskiptatæknin hefði batnað mjög undanfarna áratugi. Allt til ársins 1960 tók fjarskiptadeildin við erlendum veðurskeytum á morsi, en siöan árið 1960 hafa radiófjarritar verið i notkun á veðurstofunni, og siðan 1974 hefur veðurstofan haft beint ritsima- samband við bresku veðurstofuna i Bracknell, og hefur það aukið mjög öryggi móttöku og sendingu veðurskeyta. 75 — 80% áreiðanleiki Þegar starfsmenn fjarskipta- deildar hafa tekið við veður- skeytunum, fá rannsóknarmenn veðurspádeildar þau i hendur og skrá upplýsingar þeirra inn á veðurkort. Veðurkortin fara siðan beint til veðurfræðinganna, sem greina kortin og gera spá sam- kvæmt þeirri greiningu. Alls eru á þennan hátt greind fjögur stór veðurkort á sólarhring, byggð á veðurathugunum klukkan 6.00, 12.00 18.00 og 24.00, og spá byggð á þeim send frá veðurstofunni. A millitimunum, kl. 3.00, 9.00, 15.00 og 21,00 eru greind kort yfir minna svæði og spáin endur- skoðuö samkvæmt þeim og breytt, ef ástæða þykir til. Allar þessar spár eru miðaðar við sólarhring, en einu sinni á sólar- hring er gerð lausleg spá fyrir næstu tvo sólarhringa. Að sögn Markúsar A. Einarssonar deildarstjóra veður- spádeildarinnar hefur ekki verið gerð könnun á áreiðanleika spánna hérlendis, en miðað viö sambærilegar aðstæður erlendis, þar sem slikar kannanir hafa ver- ið gerðar, ætti að vera óhætt að gera ráð fyrir þvi, að 75—80% sólarhringsspánna standist. Auk þess sem spár veðurstof- unnar eru lesnar I útvarp, eru þær sendar út á ensku á morsi frá Gufunesradiói og eru þær send- ingar einkum ætlaðar skipum umhverfis landi$. Veðurspádendin á veður- stofunni er jafnframt flugveður- stofa fyrir Reykjavikurflugvöll, og á morgnana er oft gestkvæmt á deildinni, þvi aö þá koma flug- menn litlu flugfélaganna, sem hyggja á flug til ýmissa minni flugvalla úti á landi og á Græn- landi, á deildina og fá upplýs- ingar um veðrið á áfangastað næstum frá fyrstu hendi. Auk framantalinna verkefna er það hlutverk starfsfóiks veður- spádeildar aö gera veöurathug- anir i Reykjavik en veðurathug- unartækin eru hjá veðurstofunni. Þá safnar veðurspádeildin einnig upplýsingum um hafis. Katrln Karlsdóttir rannsóknarmaður skráir veðurskeyti á kort. Markús A. Einarsson veðurfræöingur og deildarstjóri veðurspádeildar. Ragnar Stefánsson deildarstjóri jaröcðlisfræðideildar veöurstofunnar. Jaröeölisfræöideildin annast rekstur I kringum tuttugu jaröskjálftamæla viðs vegar um landiö I samvinnu viö Orkustofnun og Raunvisindastofnun háskólans.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.