Vikan - 24.07.1975, Blaðsíða 2
• ■ . « • ■ ..'■■ * '. - .'";■ •*“fw- 'V'- ’f* ' t
OLD | 5
1 #% i P
IsJf' S m, fi »1
m
f
HÓ
t gamla fangelsinu i Taylors Falls
hefur verið sett upp matsala, þar
sem gestirnir afgreiða sig sjálfir.
Þessi mynd af Everett Moberg
var tekin þar á staðnum.
Ki—Chi — Sagavatnið að vetrar-
lagi. Kofarnir á isnum eru dæmi-
gerðir fyrir ameriska velmegun.
Eigendurnir sitja þar inni I hlýj-
unni og þurfa ekki að slátra uxum
tilaðhalda lifinu I börnum sinum.
Myndin að ofan sýnir styttu af
Kristinu og Karli Óskari sem
Vilhelm Moberg segir frá þvi i
sögu sinni um Vesturfarana, að
eitt sinn, þegar Karl óskar var að
vetrarlagi á heimleið frá Taylors
Falls, slátraði hann uxanum og
vafði húðinni um einn dreginn
sinn til þess að bjarga lifi hans.
En hvernig er umhorfs i
Taylors Falls I dag?
Taylors Falls er litil verslunar-
miðstöð i kringum fimmtiu kiló-
metra norðaustan við tvibura-
borgirnar Minneapolis og St.
Paul, og fimmtiu kilómetrum
norðan við Stillwater, þar sem
Úlrika settist að me.ð prestinum
sinum. Bærinn stendur á bakka
hins mikla St. Croixfljóts, sem
fellur á landamærum Minnesota
Bæjarstjórinn i Taylors Falls
heitir Stuart Olson. Þessi mynd
var tekin af honum utan við nýjk.
og Wisconsin. I bænum sjálfum
búa ekki nema 587 manns.
Þangað komu sænsku innflytj-
endurnir i kringum 1850 eftir
erfiða ferð gegnum skógana. En
nú er ekki annað eftir af skógun-
um en sögurnar einar. Svo langt
sem augað eygir teygja sig
ræktaðir akrar.
Sé ekið i tiu til fimmtán minút-
ur til vesturs er komið að
Ki—Chi—Saga, sem á máli
chippewaaindiána þýðir stórt og
fagurt. Nafn þessa stöðuvatns
hefur verið stytt, eða
amerikanisérað og er nú kallað
Chisago Lake. Þar lét Vilhelm
Moberg þau Karl óskar og
Kristinu setjast að.
pósthúsið i bænum, sem er óneit-
anlega nýtískulegra, en það, sem
Karl óskar sendi bréf sin frá.