Vikan - 21.08.1975, Qupperneq 14
Stúlkurnar
ekki
kvenlegar
áóur
Fegurðardrottning íslands 1955
var Arna Hjörleifsdóttir frá
Akureyri. Hún er önnur frá
vinstri I efri röö. Hinar stúlkurnar
tóku líka þátt I keppninni.
— Nú sér maður sjaldan vel snyrta og
„elegant” stúlku, og sams konar klæðn-
aður er notaður við öll tækifæri. í gamla
daga þótti sjálfsagt, að ung stúlka ætti
sunnudagsföt, en það þekkist varla leng-
ur, segir Einar Jónsson, sem hjálpaði
Vikunni við að rifja upp sögu fegurðar-
samkeppni á íslandi.
Fegurðarsam-
keppni ekki nei-
kvæð áhrif á kven-
réttindabaráttu.
Fegurðarsamkeppni kvenna á
sér langa sögu með þjóöum
heims, en þó eru aðeins 26 ár liðin
frá þvi að fyrsta fegurðar-
samkeppnin var haldin hér á
landi. Fór hún fram i Tivoli 1949. 1
mörg ár var fegurðarsamkeppnin
einn helsti árlegi viðburöurinn i
Reykjavik og „veitti i senn góöa
tilbreytingu og æsileik hinna
tvisýnu úrslita”-, eins og segir i
bæklingi um fegurðarsamkeppn-
ina árið 1962.
Einar A. Jónsson, gjaldkeri i
Sparisjóði Reykjavikur, umboðs-
maður ýmissa fegurðar-
samkeppna viða um heim og auk
þess dómari i alþjóöa keppninni
frá 1957, sá um framkvæmd
Mynd tekin i TIvoli, þegar feg-
urðarsamkeppni tslands fór fram
1958. Sigriður Þorvaldsdóttir,
sem þá sigraði I keppninni, er nr.
1. Þvi miður veit Vikan ekki nöfn-
in á hinum stúlkunum.
keppninnar — Ungfrú tsland — á
árunum 1954—64, en á árunum
1949—54 sá hann um fegurðar-
samkeppni með ööru sniði.
Frá árinu 1965 hefur keppnin
veriö i umsjá hinna ýmsu aðila,
en svo virðist sem áhuginn hafi
dvinað eitthvað siðustu ár, þvi að
engin keppni var háð 1974-5. Þó
litur út fyrir að áhugi á fögrum
konum sé ekki með öllu úrkulnað-
ur, þrátt fyrir breyttan tiðaranda
og mörg mótmæli, þvi að vænt-
anlega munu þeir Guðni i Sunnu
og Einar A. Jónsson endurvekja
fegurðarsamkeppnina á næst-
unni, og er ætlunin að hefja hana
til vegs og virðingar á ný.
Til að rifja örlitið upp sögu
fegurðarsamkeppninnar á
Islandi, fengum við Einar Jóns-
son I lið meö okkur, og segir hann
m.a. svo frá:
— Fyrsta keppnin var haldin i
Tivoli 1949, að frumkvæöi mlnu,
Einars Pálssonar forstjóra mála-
skólans Mimis og Fegrunarfélags
Reykjavikur. Viö auglýstum eftir
þátttakendum, og nær einu skil-
yröin, sem við settum þá fyrir
þátttöku var fallegt útlit.
Fallegasta stúlkan fékk flugferð
til Kaupmannahafnar i verðlaun,
en henni stóð ekki til boða að taka
14. VIKAN 34. TBL.