Vikan

Issue

Vikan - 21.08.1975, Page 18

Vikan - 21.08.1975, Page 18
Á Vesturgötu 36A búa hjónin Sigrún Ragnarsdóttir og GIsli Amason, deildarstjóri I forsætis- ráðuneytinu, ásamt tveimur börnum þeirra. Nú eru 15 ár liöin frá því að Sigrún var kjörin feg- urðardrottning tslands, þá aðeins 17 ára gömul. Við hittum hana að máli og báðum hana að segja okkur örlltið frá þátttöku sinni I keppninni. — Nú oröið lít ég á þátttöku mlna I keppninni seni nokkurs konar bernskubrek. En í þá daga voru viðhorfin gagnvart þessu önnur en nú. Mér bauðst ljómandi tækifæri til ferðalaga og ævin- týra, sem þá voru ekki á hverju strái. Það var ekkert, sem mælti á móti þvl, að ég tæki þátt i keppninni, og ég vissi, að þarna var um einstakt tækifæri að ræöa. — Ég vann við afgreiöslustörf I versluninni Regnboganum i Bankastræti um þaö leyti sem keppnin fór fram hér heima, en hætti þar, þegar ég fór til Banda- rlkjanna i alheimskeppnina. Haustið áður varð ég 18 ára og nógu gömul til að taka þátt i Evrópukeppninni I Libanon, þar sem ég dvaldist I 10 daga. Ég hafði aldrei komið út fyrir land- steinana áöur og varð yfir mig hrifin, enda tilganginum með þátttökunni náð. Ég kynntist mörgum stúlkum i ferðinni og sá margt nýtt og framandi. Til dæmis hafði ég aldrei séð sjón- varp áður. — Eftiraðég komheim.hélt ég áfram að vinna I Regnboganum, þangað til ég hélt til Bandarikj- anna, þar sem ég ætlaði að dvelj- ast I 1 mánuð, en kom ekki heim fyrr en eftir 10 mánuði. — Keppnin á Langasandi var i senn erfið og spennandi. Við þurftum að fylgja ákveðinni dag- skrá frá morgni til kvölds, og m.a. þurfti ég að flytja ræðu á ensku um sögu tslands. En ég hafði mjög gaman af þessu, enda þótti meiri upphefð í þvi fólgin að taka þátt i keppninni ytra en hér heima. — Eftir að ég hafði náð sæmi- legum árangri, þ.e. orðið i fimmta sæti, var ekki lengur um það að ræða að halda beint heim, þvi að mér var boðið að taka þátt i tiskusýningarferðalagi til Aust- urlanda, sem ég og þáði. Það var Mr. Charlie, sem þarna var staddur á vegum International keppninnar frá Tokyo,.sem valdi 6 stúlkur til þessa af þeim 62, sem þátt tóku i keppninni. Við áttum heilmikið ferðalag fyrir höndum, og m.a. héldum við sýningar á Filippseyjum, i Kina og Tokyo. Ég hafði ágætan förunaut, frú Olive Swanson, sem er vesturis- lensk, og fyrir vikið var ferðin skemmtilegri. Góður andi var i hópnum, og allt gekk átakalaust fyrir sig, og ég iðraðist þess aldrei að hafa tekið þátt i þessu. Ferðirnar voru greiddar fyrir okkur, en auk þess fengum við eitthvað smávegis greitt fyrir sýningarnar. En peningarnir skiptu ekki megin máli, heldur ánægjan og það að fá tækifæri til að skoða sig um i heiminum og auka víðsýiyna. A heimleiðinni kom ég við á Hawaieyjum, þar sem ég átti dýrlega daga. — Þrátt fyrir freistandi tilboð, hvarflaði það aldrei að mér að setjast að úti, hugurinn stefndi alltaf heim. Ég á ánægjulegar minningar um ævintýralegt ár, sem aldrei hafa haft neikvæð áhrif á mig. Arið 1960 var Sigrún Ragnars- dóttir kjörin Ungfrú tsland. A þessari mynd sjást stúlkurnar fimm, sem þá komust I úrslit. Þær erú, talið frá vinstri: Guö- laug Gunnarsdóttir, Sigrún Ragnarsdóttir, Svanhildur Jakobsdóttir, Inga Árnadóttir og Sigrún Sigurðardóttir. 18 VIKAN 34. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.