Vikan - 21.08.1975, Blaðsíða 5
Glerplata /
i
hellna
Raftækjdeild Gunnars Asgeirs-
sonar er einn sýningaraðila og
kemur m.a. fram með nýstár-
legar hugmyndir varðandi
eldhústæki. Ein þeirra er eldavél
frá Husqvarna, sem er að þvi
leyti óvenjuleg, að i stað raf-
magnshellna, sem viö eigum að
venjast, hefur hún glerplötu.
Þessi glerplata þolir mikinn hita,
og hitnar hún á merktum hringj-
um, sem ætlaðir eru fyrir pott-
ana. Þessi vél hefur það lika fram
yfir aðrar gerðir eldavéla, að hún
sparar gifurlpga hreinsun, þar
sem ekki þarf annað en rétt að
strjúka yfir plötuna þegar búið er
að elda.
Stefán Valur deildarstjóri,
sagði okkur lika, að ný saumavél
frá Husqvarna væri i i,yista
skiptið til sýnis á vegum versl-
unarinnar á þessari sýningu.
Þessi nýja vél — Husqvarna 2000
— hefur marga kosti umfram
eldri gerð vélarinnar, svo sem
fleiri mynstur, lengra þræðingar-
spor, hún tekur upp þráöinn sjálf,
og svo er hún lika i nýjum lit,
dökkbrúnum. Verðiö á þessari
vél, er ekki ákveðið enn, en kem-
ur liklega til með að verða um 66
þúsund krónur.
Fyrirtækiö hefur undanfarið ár
selt Polaris eldhúsinnréttingar
frá Noregi, en þær eru plast-
klæddar og fáanlegar i öllum
litum. Stefán sagði plastklæðn-
inguna vera mjög áferöarfallega
og áþekkaviði viðkomu. I hurð-
unum væru spónaplötur, sem
væri fremur óvenjulegt. Nýlega
fékk fyrirtækið einnig umboð
fyrir aðra norska eldhúsinn-
réttingu Sigdal og verða þær i
fyrsta skipti til sýnis nú. Þær eru
úr viöi, en mikil eftirspurn er eftir
hnotu og palisander innréttingum
nú, að sögn Stefáns. Innrétting-
arnansem hér er talað um^ru af-
ar ólikar og verður bæöi fróðlegt
og gagnlegt fyrir gesti að bera
þær saman. Verð á þessum inn-
réttingum er um 275 þús. miðað
við meðálstórt eldhús.
Þau tæki, sem aldeilis þykja
ómissandi i eldhúsið eru eldavél
með grilli, kæliskápur, vifta og
uppþvottavél. Allt þetta kostar
dágóöan pening, eöa um hálfa
milljón, svo að það er eðlilegt aö
fóik vilji eyða tima i að skoða og
kynna sér gæði varanna, en til
þess eru svona sýningar heppi-
legastar.
Grænn litur hefur verið óhemju
vinsæll á eldhústækjum, en i ár
kemur Husqvarna meö spiunku-
nýjan lit á markaðinn — Lion —
sem er fallega gulbrúnn litur, og
fjl
í ^ 1 - - > :
• ;
fer ljómandi vel viö viöarklæðn-
ingar. tsskáparnir frá Husqvarna
eru dálitið sérkennilegir, þvi að
þeim er ætlað að þjóna sama hlut-
verki og búrin i gamla daga, eins
og Stefán sagði, enda 185 cm.
háir.
Margt fleira, svo sem strau-
járn, vöfflujárn, kaffikönnur og
hrærivélar verða á sýningunni, og
kemur þá sjálfsagt mikið af ný-
ungum fram á sjónarsviðið.
Auk þessa verða Bosch hand-
verkfæri á sýningunni, en þau eru
jafnt notuð til iðnaöar og til
heimilisnotkunar. Þá verður
sýnikennsla á prjónavélar i deild-
inni og margt annað, sem gestir
munu sjálfir sjá og heyra.