Vikan - 06.11.1975, Blaðsíða 13
Linguaphone
Þú getur lært nýtt tungumál á 60 tímum
LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt
tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku.
Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hefur meófædd-
an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. Aótrú-
lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til
gagns og ánægju. — Þetta er RÉTT og ÞÚ getur
sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu
upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió
ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió
í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra.
ítzufobus KUM*&/o5b' s'cur
LINGUAPHONE tungumálanámskeid
á hljómplötum og kassettum
Hljóófærahús Reykjavíkur- Laugav.96 -sími 13656
Þú ættir ekki að taka neitt mark á manninum mínum þegar hann
er hífaður!
Dósturinn
HRÚTUR I SLÆMU SKAPI
Elsku póstur!
Ég er hérna með vandamál eins
og allir hinir. Nú er ég orðin
vinalaus. Besta vinkona mln er nú
I svo vondum félagsskap að ég þori
ekki að vera með henni af ótta við
að lenda í sömu ógöngum og hún.
Allar stelpur sem ég þekki eiga vin-
konu og ég vil ekki spilla á milli
þcirra. Ég er svo feimin að ég þarf
marga mánuði til að kynnast nýjum
vinum. Það eina sem ég geri er að
hanga heima og vera I vondu skapi,
svo allir þar eru hsettir að þola mig.
Hvaða merki hsefir hrútnum best
(stelpa og stelpa)? Hvernig eiga
hrúturinn (stelpa) og steingeitin
(strákur) saman? Mér líkar mjög
vel við Vikuna og flest það sem
í henni er. Ég er ekki áskrifandi,
cr pósturinn bara fyrir áskrifendur?
Geturðu lesið eitthvað út úr skrift-
inni? En hvernig er stafsetningin?
Hvað heldur þú að ég sé gömul og
hvað þýðir nafnið mitt? Er talið
Ijótt að vera með spangir? Afsakaðu
krotið og villurnar.
Bless, bless,
Hrúturinn.
P.S. Hvenaer fær maður fasta skrift?
Þú ert greini/ega dœmigerÖur
hrútur. BréfiÖ hefur þú skrifaÖ í
svartsýnis og geðvonskukasti, sem ég
vona að sé nú liöið hjá. Þú œttir
aö reyna að þjálfa meÖ þér meiri
lífsgleði og vera jákvteðari í viÖhorfi.
Hvers vegna telur þú sjálfri þér trú
um aÖ þú sért lengi að kynnast?
Ef þú gerir þaÖ máttu vera viss um
aö þér gengur ekki vel að kynnast
fólki. Það er Ijótur ávani að láta
þaÖ bitna á öðrum þegar þú ert í
slæmu skaþi og Pósturinn hefur
ríka samúð meÖ fjölskyldu þinni.
Þau geta líka átt við erfiðleika að
etja og þá er ekki fallega gert af
þér að ergja þau. Ef þér tekst ekki að
temja þér sjálfsögun á meðan þú ert
unglingur. getur það orðiÖ til þess
að enginn geti búið meÖ þér þegar
þú ert orðin fullorðin. Minnstu
þess að það þarf ekki nema einn
fýlupúka til þess aÖ eyðileggja fyrir
öllum hinum á heimilinu. Póstur-
inn telur að innst inni sért þú glað-
lynd og sáttfús. en hœttir til þess aÖ
krefjast þess af öðrum að þeir rétti
fyrr fram sáttarhönd. SambúÖ
stráks sem fceddur er í merki stein-
geitar og hrútsstelpu grundvallast á
því hversu vel stelþunni tekst að láta
af sínum kröfum. Hrúturinn getur
oröið vinur flestra merkjanna. en
verður þó að temja sér meiri tillits-
semi við mörg þeirra. Nafnið þitt
rnerkir alda. Skriftin er aÖ mótast
alla ævina en mestum breytingum
tekur hún þó fram að tvítugu.
Spangir eru að vísu sjaldan til prýÖt
en þær eru ekki það Ijótar aÖ ekki sé
hægt að þo/a þær í nokkum tíma.
Tennumar eru fallegrí á eftir. Bréfið
þitt er að vísu ekki villulaust en
alls ekki slæmt. Ég giska á að þú
sért ekki nema í kringum fjórtánda
árið. Pósturinn er fyrir alla sem
þurfa að létta á hjarta sínu, áskríf-
endur sem aðra. Vikunni þykir
hólið gott, en hún hefur heldur
ekkert á móti réttmætri gagnrýni.
Kæri póstur!
Þannig er mál I vexti að ég er ansi
dugleg að læra og svoleiðis og allir
strákar á eftir mér en ég er ansi
kynfræðis ófróð að mér langar að fá
svar við nokkrum spurningum.
1. Hvað er að vera á túr, og til
hver er það
2. Hvað er að vera með mórall?
3. Hvernig er hægt að losna við
freknur?
4. Hvenær finnst þér að stelpa eigi
að leifa að hleypa upp á sig.
Ég vona að þetta byrtist fljótt en
lendi ekki í körfunni. Hvenig er
skriftin og stafset. og hvað lestu úr
henni.
Sissa
Þetta bréf er svo dæmigert fyrir mörg
bréfanna, sem Póstinum berast, að
hann getur ekki stillt sig um aÖ
birta það óbreytt. Lesendur verða svo
að reyna að gera sér í hugarlund
útlit bréfsneþilsins, sem notast var
við í stað pappírsarkar. Já, mtn
kæra Sissa. Pósturinn efast stórlega
um, að þú hafir veriÖ eins dugleg
aÖ /æra og þú heldur sjálf. Kunn-
átta þtn er t algjöru lágmarki hvað
snertir stafsetningu og málnotkun.
Þú ert nú að verða fimmtán ára og
ættir aÖ vera orðin fróðari um sttlun
sendibréfa. Hættu að hugsa um
þessa stráka. sem eru aÖ elta þig,
og legðu þig þess meira fram viÖ
námtð. Strákarnir verða ennþá til
staÖarþegarþú hefur aldur og þroska
til að snúa þér að þeim. BlæÖingar
hjá konum eru stundum kallaÖar
að vera á ,,túr". Þær hefjast á
kynþroskaskeiði, sem byrjar venju-
lega á aldrinum ellefu til fimmtán
ára hjá konum. Að vera með móral
er þaö sama og hafa samviskubit.
Freknur á bara alls ekkert aö losa
sig við. þær eru oftast til prýði frem-
ur en hitt. Þær verÖa útlitseinkenni,
sem þér fer að þykja vænt um þegar
þú eldist. Stelpa á alls ekki að
vera með strák. fyrr en hún veit
hvað hún er að gera og hvemig koma
má í veg fyrír óvelkomið bam.
OrðalagiÖ, sem þú notaðir t spurn-
12 VIKAN 45. TBL.
ingunni, sannfærði Póstinn um að þú
ættirað bíða meÖþaÖ um sinn. Skrif-
aðu aftur þegar þú hefur lært meira í
tslensku og þá skal ég birta bréftð
þitt óbreytt, þannig að þú getir sjálf
séÖ muninn. Skriftin er alls ekki
svo slæm, hún bendir til þess að þú
sért hugmyndarík og að þú getir
vel lært, ef þú leggur þig fram. ÞaÖ
getur enginn lært án þess aÖ reyna
þaö sjálfur.
MÓÐIR TERESA.
Kæri póstur.
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en
oft verið að hugsa um það. Þannig
er mál með vexti, að ég hef heyrt
mikið talað um „Móður Teresu” og
lesið mikið um hana, en þó ekki
nærri nóg. Ég er mjög hrifin af
gæsku þessarar konu og því sem
hún gerir. Nú langar mig að komast
I samband við hana (er hún lifandi
ennþá?) eða þá þann sem gegnir
hennar starfi. Getur þú nú sagt mér
hvernig eða hvert ég get skrifað
henni, því ég hef áhuga á að komast
til hennar og hjálpa, og læra um
Krist eins og hún trúir á hann. Nú
heldur þú að ég sé eitthvað vitlaus
og það mundu allir hér halda líka,
- og kannski ég sé það líka? En
viltu vera svo góður að gefa mér upp-
lýsingar um „Móður Teresu”? Ég
bið þig að birta allavega svar við
bréfi mínu og ekki birta mitt rétta
nafn.
Virðingarfyllst, Tiddó
E.S. Hvernig er skriftin? Hvað
lestu úr henni? Vonast eftir svari
sem fyrst.
Þaö verður síðan allt sent saman til
Barkleys Bank of England. Þeir
sem vilja styðja beiðnina um friðar-
verðlaun henni til handa geta ritaÖ
nafn sitt á undirskríftarlista, en þeir
eru fáanlegir hjá sömu aÖilum og
bæklingurinn. Heimilisfang hennar
sjálfrar er: Mother Teresa, Mission-
aries of Charíty, 54 A, Lower
Circu/ar Road, Calcutta 16, India.
Pennavinir
Rðsa Jðhanna Guðmundsdðttir,
Neðra - Seli, Landssveit, Rang.
vill skrifast á við 12 - 13 ára stúlkur
úr Reykjavík og nágrenni. Helstu
áhugamál eru: Hestar, kindur, bækur
og frjálsar íþfóttir.
Nína Krístín Guðnadðttir, Miðstræti
18, Vestmannaeyjum, óskat eftir að
skrifast á við fólk á aldrinum
30 - 40 ára.
By/gja Ragnarsdóttir, MiÖstræti 28,
Vestmannaeyjum, óskareftirað skrif-
ast á við stráka, 16 - 20 ára.
Sigurlaug Björnsdóttir, Byrgisskarði,
Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði, vill
skrifast á við fólk á öllum aldri.
Hún óskar eftir mynd með fyrsta
bréfi.
Fríða DðraJúlíusdóttir, Nýlendugötu
39 Rvík., óskar eftir að skrifast á
við stráka á aldrinum 13 - 16 ára.
Elsta og reyndasta málningavöruverzlun landsins i
nýjum húsakynnum að Grensásvegi 11 — simi
83500. Erum einnig á gamla staðnum Bankastræti 7
simi 11496.
Það hvarflaði ekki að Póstinum viÖ
lestur þessa bréfs að bréfritarí værí
á einhvem hátt veill á geði. Hins
vegar gengurþú kannski aðeins rösk-
legar fram viÖ framkvæmd hugsjónar
þinnar en flestir aðrir. Úr skriftinni
les ég einmitt andlegan þroska og
tildurleysi. MóÖir Teresa er enn á
lífi og aðdáendur hennar vinna nú
að þvt aö henni verði veitt friðar-
verðlaun Nóbels fyrir störf aÖ mann-
úðarmálum. Hér á landi hefur
verið gefinn út bæklingur, sem Torfi
Olafsson þýddi. Bókaverslanir hafa
haft bæklinginn til sölu, en
einnig er hægt aÖ snúa sér beint
til Torfa í síma 14302, eftir
venjulegan vinnutíma. Það sem inn
kemur við sölu ritsins verður sent
beint til ,,Móður Teresu" en kostn-
aðinn við útgáfuna gretÖtr kaþólska
kirkjan á íslandi. Þeirsem vilja styðja
starf hennar meÖ fjárframlögum,
geta sent þau t pósthólf 141, eða
snúið sér til útgáfuaÖila bækltngsins.
HólmfríÖur Sólveig Haraldsdóttir,
Jaðri, Reykjadal, Suður-Þing., óskar
eftir bréfaskiptum við stráka og
stelpur á aldrinum 12 - 14 ára.
Aðaláhugamál eru: dýr, lestur bóka,
poppmúsík og fleira.
Ég sagði ekki að þú værir
fullkominn fáviti.
Enginn er alveg
fullkominn.
Kannski það taki sig betur út á þessum vegg þarna?
45. TBL. VIKAN 13