Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 11

Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 11
hafi nú játað að hafa myrt foreldra sína, biö ég ykkur endilega að hafa í huga, að hann er nú orðinn munaðar- laus. Áttu enn við agavandamál að stríða, Höskuldur? I NÆSTU VIKU EBBA OG EBBI A TOPPNUM Ebba og Ebbi eru á toppnum i orðsins fyllstu merkingu. Þau búa í sérsmíðuðu draumahúsi, sem byggt er uppi á þaki Vörumarkaðarins. Vörumarkaður- inn er reyndar líka á toppnum, því þar er ,,allt I toppi" nema vöruverðið. Ebeneser Ásgeirsson er þekktur fyrir það að tvínóna ekki við hlutina, velta ekki vöngum um of,. heldur framkvæma. VIKAN heim- sótti hann og konu hans Ebbu Thorarensen í húsið þeirra á þaki Vörumarkaðarins, og frá því segir í nsestu VIKU. OFURLÍTIÐ UM ÁSTINA Ástin er eins konar brjálæði, sem Ijóðskáld, leik- skáld, sagnahöfundar, tónskáld og aðrir listamenn hafa lýst í verkum sínum öld fram af öld. Listamenn- irnir hah gert þetta „guðdómlega xði" ódauðlegt með verkum sínum og munu án efa halda áfram að gera svo, meðan maðurinn stendur uppréttur á jörðinni. Að vera ástfangin er eitt margra atferla, sem eru á valdi manneskjunnar, segja sálfræðingar. Það er fjallað um ástina í næstu VIKU. SMÁSAGA EFTIR FINN S0EBORG Konan mín skilur mig ekki heitir smásaga eftir Finn Soeborg, sem birtist í næstu VIKU. Það er bráð- skemmtileg saga, sem höfundur leggur í munn miðaldra manni, bókhaldara, sem búinn er að vera giftur í mörg ár, á raðhús og bll og meira að segja land undir sumarbústað. Eitthvað finnst honum samt skorta á lífshamingjuna og tekur það til bragðs að reyna að lífga svolítið upp á tilveruna á sinn eigin hátt. En konan hans á bágt með að skilja, hvað fyrir honum hefur vakað. ARFTAKI SPÖNSKU KRÚNUNNAR Átta ára barn er nú orðið miðdepill fjölskyldudeilna og pólitlskrar þrætu á Spáni. Felipe sonur Juans Carlos I spánarkonungs skilur þó sem betur fer lítið af þvl, sem hjalað er I kringum hann um pólitlsk mál- efni, og leikur sér ennþá nokkurn veginn áhyggjulaust I skjóli fjölskyldu og vinafólks. Hann veltir ekki vöngum yfir því, hvað það þýðir að vera prins af Asturien, en faðir hans sæmdi hann þeim titli I mal síðastliðnum. Nánar segir frá því I grein I næstu VIKU. VIKAN Otgefandi Hil mir h.f. Ritstjóri: Kristín Hal Idórsdót t ir. Blaðamenn: Trausti ölafsson. Guðmundur Karlsson, Ásthildur Kjartansdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson. Otlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn. auglýsingar. afgreiðsla og dreifing Síðumúla 12. Slmar 35320-35323. Pósthólf 533. Vcrð I lausasölu kr. 300. Askriftarverð kr 3.350 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, kr. 6.320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða ki 1 l .'OO i ársáskrift. Áskriftarverð grciðist fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, fcbrúar, maí, ágúst. 42. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.