Vikan - 14.10.1976, Side 12
— Ég ætla að hjálpa pabba að hætta að reykja með nálarstungu-
aðferðinni.
erfið'möðir?
Dásamlegi Póstur!
Ég ætla að byrja á því að þakka
þcr fyrir allt gott efni og ég vona að
þú lifir bæði vel og lengi.
Svo eru hér nokkrar spurningar
handa þér:
Hvað er hægt að gera við flatar
neglur, svo að þær verðir kúptar og
fallegri?
Hvernig eiga saman stelpa úr
vatnsberanum og strákur úr meyj-
unni?
Hvað á ég að segja þegar hún
mamma spyr mig, hvers vegna ég sé
hætt að biðja hana um ,,góða nótt
koss”?
Hve þung má 165 cm há stelpa
vera?
Hverju á ég að svara henni
mömmu minni, er hún bregst hin
versta við, þegar ég læsi bað-
herbergishurðinni þegar ég er þar
inni? (Ath. það eru þrjú bað-
herbergi I húsinu).
Veistú nokkuð ráð til að tryggja
sér vinnu næsta sumar?
Veistu til þess að gallabuxur séu
að fara út tísku?
Á hvaða aldri get ég búist við því
að losna við hinar svokölluðu
unglingabólur?
Er rétt að fólk megi byrja að læra
á bíl þremur mánuðum fyrir 17 ára
aldur?
Telur þú, að ef strákur byrjar að
vera með stelpu á föstu, sé hann að
aðeins að sækjast eftir því að fá að
sofa hjá henni?
Nú er ég búin að spyrja svo
mikið, að ef þú svarar þessu öllu,
sem ég vitanlega vona, þá held ég
að ég verði alvitur!
Gcturðu eitthvað lesið úr skrift-
inni og sagt til um aldurinn?
Hafðu það svo verulega gott og
haltu áfram að vera eins dásamlegur
og þú hefur alltaf verið. Mér fellur
svo vel, þegar þú snýrð út úr og ert í
vondu skapi, því að ég veit að þú
meinar ekkert með því.
Með þökkum
Afrodite.
Hvurslagssssss... Pósturinn er
auðvitað aldrei í slœmu skapi, ef til
vill aðeins misgóðu stundum, — en
það er svo sárasjaldan. Þakka þér
annars hólið, þótt Póstinum sé það
raunar til efs að hann standi undir
því að öllu leyti. Altént örvar það
hann í baráttunni við bévt...
flensuna, sem hefur reynt að buga
hann undanfamar tvær vikur.
Platar neglur geta verið álíka
náttúrlegar og háralitur. Þó er til í
dæminu að um einhvers konar
efnaskort geti verið að rceða og um
það verður þú að tala við lækni.
Stjömuspá ástarinnar telur vatns-
berastelpu og meyjarstrák á önd-
verðum meiði á flestum sviðum.
Hún segir samt einhverja leyni-
þræði skilnings þar á milli, svo ekki
er sambandþeirra alveg útilokað.
Þyngd fer að mjög miklu leyti
eftir beinabyggingu manna og þvt
er nokkuð erfitt að segja til um rétta
þyngd eftir sentimetrum. Sennilega
væri hæftleg þyngd fyrir stelpu af
þessart hæð eitthvað á milli 54_yj
ktló.
Atvinnumál er ekki auðvelt að
leysa í gegnum bréfadálk. Ekki er
ólíklegt að þú þurfir að sækja um
vinnu fremur fljótlega eftir áramót
til þess að vera alveg örugg.
Gallabuxur fara ósennilega úr
tísku á næstunni. Ef Póstinn mis-
minnir ekki voru gullgrafarar t
Alaska fyrstir til að nota þann
klæðnað. Stðan hafa vinsældir
gallabttxnanna farið hraðvaxandi.
Ræður þar líklega mestu um, að
þetta er mjög hentugur klæðnaður.
/ okkaj' þjóðfélagi, sem að miklu
byggist á hraða, gefast fá tækifæri
fyrir hinn almenna lauþega að svífa
um í silki- og pallíettubúningum.
Ungltngabólur hverfa um leið og
kynþroskaskeiðið er að baki. Gættu
þín á að troða þig ekki t!m of út af
sælgæti þvíaðþað hefur mjög slæm
áhrif á húðina.
Þú getur örugglega fengið að
læra á bíl nokkru fyrir sautján ára
aldurinn, en prófið færðu ekki að
taka fyrr en t fyrsta lagi á afmælis-
daginn.
Hvers vegna ætti það fremur að
vera STRÁKUM kaþþsmál að koma
STELPUNNI t rúmið? Ætli jafnrétt-
isbaráttan nái ekki yfir samband
kynjanna á ÖLLUM sviðum? Ann-
ars byggist samband fólks á mörg-
um óltkum atriðum og það er engin
ástæða til að ætla, að þetta eina
tiltekna atriði valdi þar mestu.
Mörgum mæðrum reynist erfitt
aðsættasig við að börnin vaxi úrgrasi
og um leið fjarlægist þau foreldrana
um tíma eða sambandið þeirra á
milli tekur á sig aðra mynd.
Baðherbergishurðin og góðanótt-
12 VIKAN 42. TBL.