Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 14

Vikan - 14.10.1976, Blaðsíða 14
 FVRIRMVNDA Þar hafa 26 fyrirtæki aðsetur í sama húsi, og aiiur rekstur þeirraf sem mætti kaiia sameiginlegan, fer fram hjá þeirra eigin þjónustufyrirtæki. Við það sparast mikill rekstrarkostnaður og hagræðing verður mikil. Inni í Sundahöfn hefur verið byggt einkennilegt stórhýsi. Ein- kennilegt að því leyti að sé ekið framhjá því um Kleppsveginn, sjást þar engir gluggar, heldur aðeins skreytingar í steypunni á húshliðinni, sem er óralöng, en ekki há séð frá Kleppsvegi. Og ekki heldur há, hvaðan sem á hana er litið. Af hverju kalla ég þetta þá stórhýsi? Stórhýsi þarf ekki endilega að vera háhýsi. Það getur hæglega verið stórt á aðra vegu. Þetta hús er stórt á þrjá vegu. í fyrsta lagi er það tæplega kvartkílómetri að lengd og því stórt á langveginn. í öðru lagi eru bara stórlaxar í húsinu, þessvegna er það stórt á þverveginn. í þriðja lagi liggur stór hugsjón bak við bygginguna. Þessvegna er það Árni Gunnarsson viöskiptafræó- ingur, forstjóri fyrirtækjanna Heiid h.f. og Frum h.f., sem sjá um aiia sameiginlega þjónustu þeirra heildverslana, sem eru í Sunda- höfn. Ágúst Kristmanns verslar meö snyrtivörur, enda heitir fyrirtæki hans þaö. Hann sjá/fur og hans nánasta umhverfi bera því líka greimiega vitni, aö hann hefur trú og áhuga á sínum vörum. stórt niður á við, þar sem undir- staðan er. UNDIRSTAÐAN. Undirstaðan er sú í fyrsta lagi, að fyrir nokkrum árum fengu nokkrir félagar í Félagi íslenskra stórkaupmanna þá bráðsnjöllu hugmynd að byggja sameiginlegt hús fyrir margar heildverslanir. Hugmyndin var rædd mjög alvarlega og málið síðan tekið föstumtökum. Félagarnir bundust fastmælum um þetta, lóðar- umsókn var send til bæjarráðs, nýir bréfhausar voru undirbúnir og svo framvegis. Það voru haldnir margir fundir, margar mjög athyglisverðar ákv- arðanir teknar, málin voru undir- búin, ný skrifborð keypt í heild- sölu, flatarmál rædd við teppainn- flytjendur og pantaður flutningur á síma. Svo var byggingin tilbúin einn góðan veðurdag, og vörubílalestin náði langar leiðir, alveg frá byrjun til enda. Nú er samankomnar 26 heild- verslanir í húsinu, flestar „stofn- endur", sem fluttu fyrst inn, en eins og gengur og gerist, þá eru líka nokkrir leigjendur, og þeir geta með engu móti sagt,, Ég er einn af stofnendunum", um leið og þeir bjóða vindil. i þeim tilgangi að skoða þessa fyrirmyndastofnun ,,ofan í kjöl- inn", eins og einhver pólítíkusinn sagði hérna um árið, þá tók ég mig upp með allt mitt hafurtask og ,,fór á stúfana." Innsti koppur í búri reyndist vera Árni nokkur Gunnarsson, sem nú hamast allan daginn við að forstýra kjarna stofnunarinnar, sem stofnendur nefna eðlilega ,,Heild h.f.", og er það hennar hlutverk að sjá um allan rekstur Steingrfmur Helgason eigandi og forstjóri heildverslunarinnar G. He/gason & Co. h.f. Þaö ska/ skýrt tekiö fram, að hann á jakka, enda verslar hann aöallega með vefnaöarvöru. hússins og annað það, er því viðkemur. Árni er líka forstjóri fyrirtækisins ,,Frum h.f.", sem er ætlað að sjá um alla þá þjónustu, sem sameiginiega er hagkvæmt að 14 VIKAN 42. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.