Vikan - 14.10.1976, Side 15
veita þeim fyrirtækjum, sem þarna
eru samankomin.
Til frekari skýringar má benda á,
að húseignin þarf auðvitað aðila,
sem sér um viðhald hennar,
annast innheimtu á þeim gjöldum,
sem greiða þarf vegna hennar,
ásamt húsaleigu. Þá eru og ýmsir
kostnaðarliðir sameinginlegir, sem
Heild h.f. sér um.
Frum h.f. er aftur á móti all
frumleg stofnum, sem Heild átti
frumkvæðið að. En hún sér um
þjónustuhliðina. Má þar til nefna,
að nú þegar hefur verið tekin upp
sameiginleg vörudreifing þessara
heildverslana, sem fer fram með
þeim hætti, að reykjavíkursvæð-
inu er skipt í fjögur aðal-dreifingar-
svæði, og hefur hver heildverslun
að sjálfsögðu yfirlit yfir það, hvaða
hverfi þetta eru. Eitt hverfanna er
merkt með rauðum lit, annað
gulum, þriðja grænum og það
fjórða bláum. Þurfi einhver að
senda vörur í bláa hverfið, er blátt
merki sett í glugga vöruskemmu
hans, sem í öllum tilfellum er í
kjallara hússins, og blái bíllinn þarf
þá ekki annað en keyra fram hjá
öllum skemmunum og athuga, í
hvaða glugga blátt merki er.
Það er athyglisvert, að þótt
Frum h.f. hafi fjórar bifreiðar í
útkeyrslu að staðaldri, þá eru það
allt leigubílar. Enginn í þeirra eigu.
Árni sagði, að þeir hefðu reynslu á
því sviði, sem hefði leitt í Ijós, að
það væri alls ekki hagkvæmt að
eiga og reka þessa bíla sjálfir. Þeir
hefðu því snúið sér að eigendum
leigubíla og samið við þá, þannig
að þeir tækju algerlega að sér alla
þessa þjónustu fyrir umsamið
verð. í Ijós hefði komið, að slíkt
borgaði sig vel. Þannig eru það
alltaf sömu bílstjórarnir, sem fara í
ákveðin hverfi, viðhald bílanna sjá
þeir algerlega um sjálfir og allan
rekstur.
Önnur þjónusta Frums h.f. er
póstþjónusta. Tvisvar á degi
hverjum fer maður um öll fyrirtæk-
in og safnar öllum þeim pósti, sem
á að fara út. Pósturinn er síðan
frímerktur í sérstakri vél, sem um
leið reiknar út póstburðargjöldin
hjá hverjum aðila. Að því loknu fer
maðurinn með bréfin í pósthúsið,
og tekur um leið öll bréf, sem
aðilarnir eiga þar. Þetta fer fram
tvisvar á dag.
Einn innganganna í sameigin/egt
42. TBL. VIKAN 15