Vikan - 14.10.1976, Side 19
R TRÚ
Jack Nicho/son er súperstjarna, sem vaknaði upp við það einn góðan
veðurdag, að hann var frægur. Á þrjátíu og sjö ára löngum lífsferli hefur
hann lent í fjötdamörgum ástarævintýrum og tæmt ennþá fleiri bjórglös.
En sá tími er Höinn. Nú er hann fiuttur tii kærustunnar sinnar,
fyrirsætunnar Anjelicu Huston, og nýtur frægöarinnar, svo iengi sem hún
endist.
Margir muna Jack Nicholson í
myndinm ,,Síðasta sendiförin"
sem sýnd var nýlega i Stjörnubíói.
fá svo mikið sem að snerta þær.
Það er ekki mín aðferð. Ef ég er
með stúlku, þá á hún völina.
Þessi ameríski leikari var kvænt-
ur leikkonunni Söndru Knight í sjö
ár. Þau eiga tíu ára gamla dóttur,
sem heitir Jennifer, og kemur hún
í heimsókn til föður síns um hverja
helgi.
Eftir skilnaðinn, sem varð fyrir
fimm árum, hefur Nicholson átt
margt ástarævintýrið. Mesta
athygli vöktu ævintýrin, sem hann
átti með Candice Bergen og Fay
Dunaway. í fyrra batt hann trúss
sitt við tuttugu og þriggja ára
gamla dóttur auðkýfings, Anjelicu
Huston, sem er afar fögur.
— Hún er eins og rósir og vín,
segir hann um sambúð þeirra. —
Anjelica var ein frægasta fyrir-
sæta Bandaríkjanna, en hefur nú í
Úr Gaukshreiðrinu.
stjarna hefur það ekki sjálfkrafa í
för með sér, að allar konur falli að
fótum þér. Það er tómt þvaður.
Sú, sem þú hefur mestan áhuga
á, er alltaf ein af þeim, sem halda
sig í fjarlægð. Þar fyrir utan áttu í
vandræðum með að halda henni,
hafi þér tekist að krækja í hana.
Kvikmyndastjörnum er alveg eins
hætt við að missa ástmeyjar sínar
og öðrum. Ég hefi orðið fyrir því,
að sú, sem ég áleit „rnína stúlku",
fór út með öðrum. Og þegar ofan
á bætist, að það er með bestu
vinum manns, þá líður manni nú
ekkert sérlega vel.
— Ég krefst þess af konu, að
hún sé mér trú. Ef hún vogar sér
að líta á annan mann yfir öxlina á
mér, má hún sigla sinn sjó. Ég er
ekkert hrifinn af allragögnum. Ég á
ekki við, að nokkur maður skuli
eiga annan, en þegar málið snýst
um hjónaband, þá er ég býsna
gamaldags.
— Sumir menn eru svo strangir
við konurnar sínar, að engir aðrir
Ur Gaukshreiörinu.
huga að snúa baki við starfi sínu.
Hún er ekki metnaðargjörn að
mínu áliti. Við njótum lífsins og
skemmtum okkur mikið. Okkur
finnst báðum gaman að klæðast
fallegum fötum. Mér finnst, að
fólk ætti að klæða sig betur en
það gerir. Við þurfum svolítið
meira glys í tilveruna.
Hvorugt þeirra hefur látið sér
detta hjónaband í hug.
— Við höfum það fínt eins og
er. Samfélagið hefur ekki lengur
neitt á móti óvígðri sambúð.
Nicholson er raunsæismaður.
Hann er sonur miðstéttarfólks.
Faðir hans var málai og móðir
hans rak snyrtivöruverslun.
Jack stóð sig vel i skóla og hefði
auðveldlega getað fengið styrk til
háskólanáms, en eftir að hann
hafði einu sinni troðið upp á
skólaskemmtun gat ekkert fengið
hann ofan af því að vinna á
sviðinu.
Til þess að geta verið innan um
leikara og leikhúsfólk sótti hann
um vinnu skrifstofumanns í kvik-
myndastúdíói, og hann Ijómaði af
hamingju, þegar hann var spurður
að bví einn góðan veðurdag, hvort
hann vildi láta prófa sig framan við
kvikmyndatökuvélarnar.
— En þegar til kastanna kom
mundi ég ekki rulluna. Þar með
var draumurinn búinn. Eftir þessa
raun var Nicholson enn ákveðnari
en fyrr, og þegar hann hafði
stundað nám í leiklistarskóla um
skeið fékk hann smáhlutverk ann-
að slagið.
— Ég hafði verið með í 10—12
myndum, þegar ég datt í lukku-
pottinn ,,Easy Rider". Ég varð
stjarna á einni nóttu.
— Árum saman hafði ég nán-
ast betlað hlutverk, en nú hef ég
hvað eftir annað orðið að neita
hlutverkum.
Nicholson dregur enga dul á
það, að hann hefur lifað storma-
sömu lífi.
— En nú hef ég í eitt skipti fyrir
öll ákveðið að lifa lífi mínu
opinskátt. Ég sjkammast mín ekki
fyrir neitt, sem ég hefi gert...
♦
42. TBL. VIKAN 19