Vikan

Útgáva

Vikan - 14.10.1976, Síða 29

Vikan - 14.10.1976, Síða 29
NY FRAMHALDSSAGA EFTIR QLAIRE RAYNER mamma. Það verður svo gaman að sjá allt fólkið og fínu vagnana, og þeir segja að það eigi að vera flug- eldasýning við ána í kvöld... Ö þakka þér fyrir mamma mín!” Á leiðinni heim voru þau sam- mála um að þetta hefði verið afar ánægjulegur dagur. Þegar þau komu aftur heim í vinalega htla húsið, fór Friðrik sjálfviljugur og borðaði kvöldverð inni í eldhúsinu undir eftirliti Ellíar, gömlu þjónustustúlkunnar, áður en hann fór í rúmið. Abbý skipti um kjól. Klukkan var aðeins átta, og mikið eftir af kvöldinu ennþá. Hún ætlaði að borða kvöldverð og fara yfir bókhaldið áður en hún færi að sofa. Hún gekk niður í litlu setustof- una sem var uppáhaldsherbergið hennar vegna þess að glugginn snéri að garðinum bak við húsið, og hún gat séð móta fyrir þaki verk- smiðjunnar sem stóð á horni Iron- gate Uharf Road þar sem hún mætti Harrow Road. Stór hluti öryggis hennar var tengdur þessu litla húsi, og litlu lyfjaverksmiðjunni, og stór hluti hinnar stuttu sambúðar henn- ar með James var tengdur þeim báðum. Á meðan hún var að ljúka við bökuðu eggjakökuna, sem EIlí hafði fært henni, var bankað á dymar og síðan heyrði hún fjarlægar raddir frammi í anddyrinu. Dyrnar opnuð- ust og hann stóð brosandi fyrir framan hana. Þegar hún ætlaði að standa upp, sagði hann hratt: ,,Nei, sittu kyrr. Það er ófyrirgefanlegt að trufla þig svona seint vegna við- skiptaerinda, en þú varst ekki heima í allan dag, svo að ég freistaði þess að koma í kvöld í staðinn í þeirri von að þú yrðir ekki allt of reið við mig.” ,,En kæri Gideon, eins og þú gætir nokkurn tíma truflað mig. Það er alltaf jafnánægjulegt að sjá þig” Hann settist í stólinn við hlið hennar, með látbragði þess sem þekkir vel til á heimilinu. Abby sat og horfði á hann, og kunni mjög vel við það sem hún sá. Gideon Henriques var hár maður og grannur, með fína beinabygg- ingu og liðlega fingur. Litarfar hans var hraustlegt, augun voru dökk og umkringd dökkum þéttum augn- hárum. Hárið var þykkt, dökkt og liðað. Hún taldi sig heppna að eiga hann að vini. Hann leit upp, eins og hann hefði getið sér til um hugsanir hennar og brosti. ,,Og hvar hefur þú verið i dag má ég spyrja?” sagði hann. ,,Mig grunar hvert svarið verður. Ég get ekki imyndað mér að Friðrik hafi látið annað eins tækifæri og gafst í dag sleppa.” , .Auðvitað hefurðu rett fyrir þér. Hvar hefðum við átt að vera annars staðar en úti að dást að hátíðar- höldunum?” sagði Abby og hló. „Ö, Gideon þú hefðir átt að sjá hann. Hann var svo hamingju- samur.” 42. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.