Vikan - 14.10.1976, Side 33
hann vœri jafnþreyttur og raun bar
vitni. En þetta var hans framlag til
fjölskyldunnar.
Og aldrei, í þessi niu ár, haföi
Nahum álasað skapara sínum. Fyrr
en nú. Og hann hafði gert það vegna
Gideons, og Gideon leið illa.
Það varð löng þögn.
Að lokum sagði Nahum þurrlega:
,,Þú verður að fyrirgefa mér skap-
ofsa minn, en þú verður að skilja
Gideon að ég hef ekki mikið að gera
þar sem ég sit hér, annað en að
hugsa. Ég tek eftir öllum breyt-
ingum og þar sem veggimir í kring-
um mig breytast ekki tek ég eftir
þér, móður þinni og fólki sem
kemur hingað inn. En best fylgist
ég þó með þér.
,,Og eftir hverju hefurðu tekið
hjá mér, pabbi?”
,,Að þú ert ágætis maður og það
er tími til kominn að þú eignist
konu og heimili. Þú ert tuttugu
og fimm ára Gideon. Það er ekki
rétt að heilbrigður maður eins og þú
lifir einlífi.”
, ,Pabbi, ég skil að þú vilt mér vel
En stundum verð ég að velja milli
þess, sem þú vilt að ég geri, og þess
sem ég verð að gera. Það skeður
sjaldan og hingað til hefur eingöngu
verið um viðskiptamál að ræða. í
þetta skipti get ég ekki farið að vilja
þínum. Frú Caspar hefur beðið mig
að koma og hjálpa sér. Það verð ég
að gera.”
,,En á föstudagskvöldi, Gideon,
á föstudagskvöldi!”
„Ég veit, pabbi. Mér þykir —
fyrir því. En hjá því verður ekki
komist.” Hann roðnaði, og faðir
hans tók eftir því þrátt fyrir
rökkrið, sem umlukti þá. ,,Og ég er
glaður yfir að hún skuli þarfnast
mín.” bætti hann við.
Nahum þagði augnablik, en sagði
síðan hljóðlega: „Hún hefur alltaf
þarfnast okkar drengur minn.
Hvemig gat það öðruvísi orðið?
Ung ekkja með barn og án hjálpar
föðurs nébræðra...”
Hann andvarpaði og svipur hans
lýsti undrun hans á að nokkur
fjölskylda gæti snúið baki við ungri
konu í þvílíkum aðstæðum.
„Og með rekstur fyrirtækis á
herðunum. Hvað hefði orðið um
hana, ef ekki hefði verið um okkur
að ræða. Ég man hve góðir vinir
eiginmaður hennar og faðir hans
reyndust, þegar aðrir snéru i okkur
baki vegna trúarinnar — auðvitað
stóð Henriques fjölskyldan með
henni þegar hún þurfti á hjálp að
halda.
„En Gigi — elsku drengurinn
minn — líttu upp og sjáðu hvar þú
stendur. Hún þarfnast aðstoðar við
viðskiptin, jafnvel bróðurlegrar um-
byggju, ef þú vilt. Blekktu ekki
sjálfan þig með þvi að imynda þér
neitt meira. Gerðu ekki þá stóru
skyssu að — að bjóða meira en þú
ert beðinn um.”
Gideon varð hrærður þegar hann
heyrði að faðir hans notaði gamla
gælunafnið Gigi. Hann klappaði
Nahum á axlimar.
„Þú hefur of miklar áhyggjur
pabbi. Ég hef stjórn á lífi minu
— og skynsemi minni. En ég ber
mjög vinveittar tilfinningar til
Abby — frú Caspar — og ef hún
þarfnast mín þá fer ég til hennar,
hvort sem það er föstudagur eða
ekki. Það getur ekki verið til ills að
gera góðverk á hvíldardaginn.”
Það sem eftir var dagsins, rikti
mikil spenna milli feðganna og
Gideon þótti ákaflega fyrir því.
Slíkt brot á friðhelgi hvíldardags-
ins olli foreldrum hans miklum
áhyggjum. En Abby hafði beðið
hann að koma. Og til Abbyar ætlaði
hann að fara.
~ Abby hafði verið að vinna í verk-
smiðjunni frá því klukkan átta um
morguninn, en hún byrjaði að vinna
aðeins klukkustundu seinna en
verkamennimir. Einu sinni höfðu
verkamennirnir búið nálægt verk-
smiðjunni. Þegar James stofnaði
fyrirtækið höfðu fáir atvinnumögu-
leikar verið á staðnum og fátækl-
ingamir í grenndinni — sem vom
margir — höfðu sóst eftir þeirri
atvinnu sem hann bauð. En siðan
kom gufuvélin til sögunnar og
með henni járnbrautin og með henni
höfðu aftur komið nýjar teikningar
af svæðinu kringum verksmiðjuna,
og á þeim var ekki gert ráð fyrir
litlu verkamannaheimilinum.
Áður en það gerðist hafði ekki
verið erfitt að hefja vinnu klukkan
sjö á morgnana, og vinnudagurinn
hafði verið til klukkan átta á
kvöldin eins og lög gerðu ráð fyrir.
Verkamennirnir höfðu verið ánægð-
ir og þóst ágætlega stæðir þegar
þeir fengu launin greidd — stund-
um allt að tuttugu skildinga —.
Nú héldu margir þeirra áfram að
vinna fyrir Abby, jafnvel þó þeir
yrðu að ganga í þrjá stundarfjórð-
unga til og frá vinnu. 1
Abby var góður vinnuveitandi,
og það vissu þeir. í staðinn kunni
hún vel að. meta tryggð þeirra,
og hún sá um að þeir fengju
mjólkurte með sírópi á hverjum
morgni (en hjá henni unnu tuttugu
og fimm manns, karlar, konur og
börn). Þau fengu aftur te klukku-
stund eftir að vinna hófst, um
hádegi og einu sinni eftir hádegi.
! dag hugsaði hún um Gideon,
þar sem hún stóð og drakk te ásamt
þeim. Gideon, sem hafði komið til
hennar þegar hún bað hann og
hlustað á hana ræða vandamál
Jonahs.
Bróðir hennar hafði snúið sér til
hennar með áhyggjur sínar vegna
uppeldi barnanna í því háværa um-
hverfi sem kráin bauð upp á, og
misjafnra viðskiptavina. Sérstak-
lega hafði hann áhyggjur af Phoebe.
Celiu þótti sem hann gerði úlfalda
úr mýflugunni, en það jók aðeins
áhyggjur Jonah.
Framhald í næsta blaði.
Myndrænar veggfóðursmyndir sem gera skemmtilega breytingu á heimilinu,_rúmlega 4 metra breiðar,
full lofthæð.
Einnig fjöldi mynda á innihurðir.
Skemmtileg nýjung.
Grensásvegi 11 — sími 83500. Bankastræti 7 — sími 11496.
42. TBL. VIKAN 33