Vikan


Vikan - 20.01.1977, Síða 3

Vikan - 20.01.1977, Síða 3
Rætt við Hilmar Kristjánsson, bóka á hverju ári og lifir á því góðu lífi. rertingjar lendingar óþægilega mikið af svörtu þjón- ustufólki hjá okkur í þessu húsi, því lóðin var stór og góð og þurfti mikla umhirðu. Svo var þetta einnig mjög langt frá þeim skólum, sem krakk- arnir voru í, þannig að ég þurfti alltaf að aka þeim fram og tilbaka í skólann. I þessu hverfi gengu engir strætisvagnar, sem börnin gátu farið í, svo að ég varð að vera nokkurskonar einkabílstjóri fyrir þau... — Gengu alls engir strætisvagn- ar um þetta hverfi? — Nei... að vísu voru strætis- vagnar þarna fyrir svertingja en við gátum ekki notað þá. - Nú? — Nei. Það er svo margt sem kemur til greina, og ég held að það sé ógerlegt að útskýra það fyrir íslendingum í stuttu máli. Það er bara eitt af því sem ekki er gert, þarna suðurfrá. Ég er líka hræddur um, að slíkar útskýringar mundu bara valda misskilningi hérna. — — Er kynþáttahatrið svona mik- ið þarna? — Nei, það er ekkert kynþátta- hatur, en það er bara einföld staðreynd, sem mönnum verður ekki ljós, fyrr en eftir töluverða reynslu, en auðskilin, þegar maður gerir sér ástæðurnar ljósar. Svert- ingjarnir, þetta fólk, sem býr þarna, er einfaldlega á svo lágu þroska- og menningarstigi, að það er ekki mögulegt að telja það í okkar hópi. Þar hefir liturinn sjálfur ekkert að segja. Mér væri alveg sama, hvort fólkið væri grænt, blátt eða rautt, það er ekki það sem skiptir máli. Sannleikurinn er einfaldlega sá, að þetta fólk er á mikið lægra þroskastigi, og við þekkjum það strax frá öðru, vegna þess að það hefur sinn sérstaka litarhátt. Ég segi þetta alls ekki í neinni niðrandi merkingu, þvi margt af þessu fólki getur verið prýðisfólk að mörgu leyti. En það hefur öðruvísi uppeldi og annan þroska, sem ekki er hægt að breyta á stuttum tima. Yfirleitt er það barnalegra, ef svo mætti segja, og hefur vanist því að haga sér öðruvísi i samvistum við aðra heldur en vestrænt — og hvítt — fólk. Til að mynda hefur það litið að segja fyrir svertingja, hvort hann fer i strætisvagni eða gangandi. Fari hann gangandi, þá tekur hann lífinu með stökustu ró. Verði hann þreyttur, þá leggst hann bara niður, þar sem hann er kominn, og fær sér blund. Það er því alls ekki óalgengt að sjá svertingja liggjandi á gang- stéttinni, steinsofandi í allri um- ferðinni um miðjan dag, og ennþá algengara er, að þeir setjist niður flötum beinum, þar sem þeir eru niður komnir. Týndir nágrannar — Nú, þið bjugguð i þessu húsi í 3 ár segirðu. Hvað skeði svo? — Þá var ég orðinn þreyttur á að vera þarna og keypti mér annað litið hús í öðru hverfi. Þar erum við nálægt skóla fyrir börnin. Þetta er nýlegt hverfi, fullt af ungum krökk- um og mikið líf og fjör. Húsið er lika töluvert minna en hitt, og þannig losnuðum við við að hafa þjónustu- fólk í kring um okkur. Börnin eru miklu ánægðari með að vera þarna, og það sama má segja um okkur hjónin lika. Á þessum þrem árum, sem við vorum í hinu húsinu, sá ég held ég ekki einn einasta af nágrönnum minum. Þar hafði ég líka mjög stóra lóð, svo að lengra var auðvitað á milli húsa heldur en þar sem við erum nú. — Og nú losnið það alveg við svertingjana? — Já, það var nú einmitt aðal- tilgangurinn. — Eru þeir svona erfiðir í umgengni, eða hvað? — Nei, ekki beint. Þeir lifa bara allt öðru lífi. Við, þetta hvita fólk, höfum ýmsum skyldum að gegna og kvöðum, sem við ferðum að fram- fylgja. Við höfum t.d. kosningarétt, sem að sjálfsögðu leggur okkur vissar skyldur á herðar. Við borgum okkar skatta o.s.frv., en svert- ingjarnir losna alveg við allar slikar áhyggjur, enda álit ég, að þeir lifi miklu skemmtilegra lífi og óhyggju- lausara. Þeir hugsa aðeins um daginn í dag og hafa engar áhyggj- ur af morgundeginum, öfugt við okkur. Þeir mundu t.d. aldrei búa í 3 ár í sama hverfi án þess að þekkja nokkurn þar. Eftir hálftíma mundu þeir þekkja alla i nágrenninu. Nei, það hefur oft hvarflað að mér, hvort það séu ekki þeir, sem eru á réttri leið, en við á rangri. Svartir/Hvítir — Hvernig er með kaupmismun- inn á milli svertingja og hvítra? — Hann er óneitanlega mikill, peningalega séð, en fer alltaf minnkandi. Þess ber lika að gæta, að okkar lífsviðhorf útheimtir óneit- anlega meiri peninga. Svertinginn getur í sjálfu sér haft það alveg eins gott og við — kannski betra á þeirra vísu — því þeir eru að eðlisfari og uppeldi mikið nægjusamari en við. — Og hvaðan eru þessir svert- ingjar komnir? -- Það er varla hægt að gefa eitt Hilmar Kristjánsson hefur fitnað dálítið, en hann brosir ennþá á íslensku. svar við þessu. f Jóhannesarborg er sennilega einna mest sambland kynflokka. sem um getur. Hvitir menn eru t.d. um 60% búar, sem nú telja sig meðal innfæddra þarna, því þarna hafa þeir svo lengi verið. Þarna er mikið af englendingum, og svo eru um 12% annarra hvítra, sem hafa flutst þangað á síðari árum, og þeir koma hreinlega allstaðar að. Þar eru kínverjar, indverjar og hver veit hvað. jafnvel slangur af íslendingum. Kínverjarn- ir eru flestir komnir, vegna þess að menn voru hreinlega svo þreyttir á svertingjunum. því þeir þóttu svo lélegur vinnukraftur, einkanlega i námunum, en kínverjar reyndust aftur á móti mjög duglegir þar. Svertingjarnir vilja halda sinum einkennum og eru mjög stoltir af þeim. Þeir vilja ekki sjá vestræna menningu, eins og það er kallað. Það eru t.d. 11 útvarpsstöðvar i Suður-Afríku. sem senda út efni. sem einungis er ætlað svertingjum. 3. TBL. VIKAN3

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.