Vikan - 27.01.1977, Page 5
|Hér er snjöll kjallarahugmynd — þú stúkar af eitt horn í Rjallaranum meö
spónaplötum og hækkar upp gólfið þannig að þú fáir þægilegt sæti, svo
þú getir notið tónlistar í þægilegum stellingum. Nauðsynlegt er að hafa
heyrnartól, ef aðrir í fjölskyldunni hafa ekki áhuga á tónlistinni, sem þú vilt
hlusta á. Ef þú vilt vera alveg einn út af fyrir þig, þágrípurðu í rennihurðina
og skellir í lás !
HÉR ER BYSNA SNIÐUG
LAUSN á fatahengi í þröngri
forstofu. Þú útvegar þér á
einhvern hátt 10 sterka króka
(er ekki einhver smiður í fjöl-
skyldunni?) og festir þetta á
tryggilegan máta í loftið. Eins
og myndin sýnir má hengja á
krókana létta og þunga hluti.
*
GJAFRJÖRUR
í ÚRI44LI
o
Mikið og vandað vöruúrval.
Handskorinn, mótaður og litaður
kristall.
Glervörur — Onix vörur — Keramik
styttur og margt fleira.
Ef þig vantar gjöf, líttu við í
TÉKK-KRISTAL.
Vörur fyrir alla. — Verð fyrir alla.
TEKE^
4. TBL. VIKAN 5