Vikan


Vikan - 27.01.1977, Síða 16

Vikan - 27.01.1977, Síða 16
koma í veg fyrir I NORSKU BLAÐI sáum við, að lesandi spyr hvað séu mörg lönd á hnettinum okkar. Blaðið gerir heiðariega tilraun til að svara, og snýr sér til norska utanríkis- ráðuneytisins, sem átti í erfiö- leikum meö rétt svar, en gaf upp töluna 150 sem mjög nálægt réttu lagi. i ERLENDUM BLÖÐUM gefur að Híta i ýmsar igjafahugmynd- ir, og hér er ein býsna skemmti- leg — kaktusinn er úr taui og er þú stingur nálunum í kaktusinn er verkið fullkomnað. Migræne er svo algengur sjúk- dómur, að allir lesendur þessarar greinar þekkja örugglega ein- hvern, sem þjáíst af honum, — eða þjást jafnvel sjálfir af honum. Undir flestum kringumstæðum er þettaleiðinlegursjúkdómur, þvíað hann kemur aftur og aftur með jöfnu millibili, og vegna þess að migræne er oft talið ólæknandi kvilli, sem maður verði að læra að lifa rneð. Migræne heitir á latínu hemi- crani, og það merkir í beinni þýðingu helmings höfuðverkur. Það er einmitt einkenni, að verkur- inn er annars vegar í höfðinu, og oft fylgir ógleði og sjóntruflanir. Migræne er ekki, eins og margir halda, sjúkleiki, sem aðeins hrjáir fullorðna. Næstum 50% af skóla- börnum líða af migræne, og oft fá þessi börn enga hjálp, annað hvort vegna þess að þau eru ekki fær um að lýsa einkennunum, eða af því að þau af ýmsum ástæðum leita ekki hjálpar. Migræne er algengari hjá kon- um en körlum, og talið er, aö það sé arfgengt. Það er margt, sem getur fram- kallað migrænekast, og má þar m.a. nefna: Hórmónabreytingar. Konur fá oft migrænekast við blæðingar. Streita. Migræne er algengt vegna andlegs álags. Líkamlegt álag. Nokkrir fá migrænekast eftir að hafa lyft þungum hlutum eða af ofreynslu. Ofnæmi. Það getur verið um margt að ræða, t.d. ost, ávexti, rauðvín, hrátt kjöt, súkkulaði, tóbaksreyk o. fl. o. fl. Migræne er einn af þeim sjúk- dómum, sem maður raunverulega getur verið svo lánsamur að koma í veg fyrir með nokkuð einföldum aðferðum. Hér á eftir höfum viö sett upp 10 atriði þannig, að þau sem þið sjálf ráðið við, koma fyrst. — Ég verð aö fara. Pabbi og mamma verða hrædd um mig, ef ég er ekki kominn heim klukkan 10 á morgnana. STÚLKAN er að rífa utan af sér fötin, af því hún er oröin leið á þeim. Fötin eru úr plastefni, sem lítur út eins og pappír, en rifnar samt ekki svo glatt. Efnið er polyáthylen og er vatns- og vindþétt og þolir að velkjast í þvottavél. Framleiöendur ætl- ast til að fók kaupi þennan klæðnaö og kasti honum síðan eftir 3—4ra mánaða notkun, enda er verðiö lágt. PLÖTU EINS OG ÞESSA er gott aö hafa á heimili til að geyma hverskonar smádót. Það er ekki minnsti vandi að gera þetta sjálfur, aöeins að útvega sér spónaplötu sem mála má ( fjörlegum lit og krókana fáið þið í næstu járn- vöruverslum. Ekki sakar að setja plötuna í myndaramma. 16 VIKAN 4. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.