Vikan


Vikan - 03.03.1977, Blaðsíða 46

Vikan - 03.03.1977, Blaðsíða 46
LENTI í FLÓÐBYLGJU. Kæri draumráðandi! Nýlega dreymdi mig draum, sem mig langar að biðja þig að segja mér hvað merkir. Hann var á þá leið, að mér fannst ég vera að ganga niður á bryggju til þess að sækja eitthvað (ég man ekki hvað) um borð í bát, sem lá við bryggju. Þegar ég kom niður á bryggjuna, sá ég að báturinn var að leggja frá landi. Mér var illa við það, þótt ég vissi ekki af hverju, en sjórinn var örlítið úfinn og eitthvað slæmt, að mér fannst, lá í loftinu. Ég leit því í kringum mig og varð mjög illt við, þegar ég sá þrjá báta á hvolfi við bryggjuendann. Þeir lágu allir hlið við hlið og sá í miðið var ekki með kjöl eins og önnur skip, heldur var hann eins og kassi í laginu. Þetta gerðist allt á mjög stuttri stundu og um leið og ég sá bátana vissi ég, að eitthvað hræðilegt mundi gerast. Ég vissi það án þess að sjá nokkuð, að brotsjór, flóðalda eða eitthvað því um líkt myndi skella á bryggjunni. Þannig hátt- aði til, að bryggjan myndaði vinkil og utan með henni var lágur kantur alls staðar nema í innr'a horni vinkilsins. Þar myndaðist eins konar renna út í sjó. Það fyrsta, sem mér kom til hugar, var að reyna að varna því að mér skolaði út af bryggjunni. Ég henti mér því á magann, rek hendur og fætur út i loftið og þannig hentist ég á milli bryggjukantanna á meðan sjórinn ólgaði þar. Flóðið stóð ekki langa stund og þegar það var í rénum hugsaði ég með mér, að ég yrði að vara mig á rennunni. Mér tókst það þó ekki og mér til mikillar skelfingar flaut ég með höfuðið á undan niður rennuna og út í sjó. Um leið og ég var að fara í kaf heyrði ég einhvern segja: ,,Hún nær sér aldrei eftir þetta." Mig hélt áfram að dreyma smástund í viðbót og fannst eins og mér hefði verið bjargað. Ég var þó ekki búinn að missa vitið algjörlega, einsog fólk hélt, því ég lék mig vitlausari en ég var í rauninni. Litir voru allir mjög óljósir í draumnum, nema kassa- lagaða skipið var mjög dökkt. Með fyrirfram þökk fyrir svarið, Inga. Þú mátt búast við góðum fréttum innan skamms, ef til vill frá útföndum. Auðugur maður eða kona verður þér hættulegur óvin- ur. Gættu þín einkum á auðugum nágrönnum. Þeir munu reynast þér erfiðir ef þú gætir ekki að þér. Mig dreymdi Varaðu þig á þvi að sigla ekki um of undir fölsku fiaggi, því að það er aidrei giftusamlegt. Draumur- inn er l/ka fyrir góðri heiisu, ef þú ert nógu einbeitt til þess að standast minniháttar freistingar. SKRÍTIN TRÚLOFUN Kæri draumráðandi! Ég hef aldrei skrifað þér áður og hafði í rauninni ekki hugsað mér að skrifa þér, en í nótt dreymdi mig svo skýran draum og fæ ég hann ekki út úr höfðinu á mér. Þegar ég tók svo upp Vikuna, sem ég hef ekki gert í eitt ár, því að ég hef verið erlendis, rak ég augun í draumaþáttinn og langar til þess að vita hvað þú getur gert fyrir mig. Ég vona að þú getir svarað þessu fljótt, því að ég er aftur á förum til útlanda. Hér kemur svo draumurinn: Ég var stödd úti í landinu, sem ég hef dvalið í og það var eins og ég væri nýlega komin þangað aftur. Enginn tók á móti mér og fannst mér ég mjög óvelkomin. Samt kom strákurinn, sem ég var með, og tók mjög vel á móti mér og virtumst við mjög ánægð með að hafa fundið hvort annað aftur (við erum hætt saman). Gleði okkar náði þó ekki til vina hans né minna. Mér fannst hann hálf furðulegur og með falskt yfir- bragð. Svo einn dag kom hann til mín og bað mig að trúlofast sér. Mér til mikillar undrunar sagði ég já. Við vorum bæði klædd bláum fötum og þegar ég opnaði litla skrínið brá mér, því að hringarnir voru svo stórir og fallegir. Ég tók upp hringinn minn og innan í honum stóð: ,,Tvö verða að einu. Dagur, ár og nafn." Ég varð undrandi á því hve mikið var letrað innan í hann, en sagði þó ekkert. Ég var langt uppi í skýjunum þegar ég fór í vinnu daginn eftir (þar sem ég vann áður) og lét sem mest bera á hringnum, en enginn virtist taka eftir honum og fólkið leit varla á mig. Varð ég þar fyrir miklum vonbrigðum. Þá tók ég eftir því, að komin var beygla á hringinn og svo brotnaði hann (samt ekki í tvennt). Ég sneri beyglunni inn í lófann, en þá var liturinn að hverfa af hringnum og hann varð allur skakkur og skæld- ur. Stafirnir voru líka næstum horfnir, en alltaf var ég samt að sýna hann, en enginn tók eftir honum. Svo gekk ég frá vinnu með tárin í augunum og það síðasta sem ég sagði var: „Hvern- ig gastu svikið mig?" Með fyrirfram þökk fyrir ráðn- inguna, ein, sem erað kveðja ísland. Þú munt verða fremur lánsöm í lifinu. Varaðu þig þó á fóiki, sem ekki fer eftir lögum og reglum, því að það getur reynst þér hættu/egt. Þú átt það á hættu að ienda í einhverju klandri ef þú sérð ekki að þér. Sérstök hætta stafar að hvers kyns gróðabralli. EITT OG ANNAÐ Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að fá að vita fyrir hverju afskorin blóm í draumi eru. i stuttu máli, þá fannst mér ég gefa konu blóm, en hún er nýbúin að missa son sinn (í raunveruleikanum). Þegar ég var að fara frá henni, bað hún dóttur sína að færa mér eitt blóm af þeim, sem ég gaf henni og fannst mér það algjör óþarfi, en komst ekki undan því og fór með blómið. Ég man ekki litinn á því, en það var annaðhvort hvítt eða bleikt. Viltu ráða þennan draum fyrir mig. Svo langar mig til þess að fá svör við nokkrum spurningum viðvíkjandi draumum. 1. Fyrir hverju er það, að dreyma að eiginmaðurinn svíki mann í tryggðum? 2. Barnsfæðingu? 3. Forsetafrúna? 4. Að dreyma full- vaxin börn sín og að þau séu orðin lítil aftur. Mig langar að gamni að segja þér draum, sem mig dreymdi fyrir nokkru og þætti mér gaman ef þú vildir ráða hann. Mér fannst ég koma heim til mín með litlar dætur, sem ég á, en þá var maðurinn minn búinn að hengja sig inni í íbúðinni og hékk í snörunni. Ég grét þessi ósköp yfir þessu óvænta atviki, en fannst að ég yrði að fá vitneskju um, hvers vegna hann framdi þetta. Mér fannst ég fara í vasa hans og hann var þá með litla peninga, því mér fannst hann hafa fengið útborgað þennan dag. Þá vissi ég að allt kaupið mundi hafa verið hirt af honum og hann tekið það svona nærri sér. Ég hljóp grátandi út og mætti þar fólki, en það gaf sig ekkert að mér nema einn meður, sem ég þekkti ekki. Hann spurði mig hvað maðurinn minn hefði gert. Hann vann hjá símanum, sagði ég (sem er þó ekki rétt). Daginn eftir að mig dreymdi þetta fengum við síma og þegar mennirnir, sem settu hann upp voru farnir í burtu, datt síminn niður af borði og brotnaði. Þetta kostaði okkur aukaútgjöld, nýjan síma, því að hinn gjöreyðilagðist. Heldurðu að draumurinn hafi verið í beinu sambandi við þetta atvik, eða fyrir einhverju öðru. Ég skrifa seinna, því mig dreym- ir oft svo einkennilega drauma. Þakka fyrirfram svörin, Ester. Fyrri draumurinn boðar þér gæfu og gleði. Að fá blóm að gjöf er ávallt fyrir slíku, ekki síst ef þau eru hvit að lit. Svik tákna yfirleitt óhamingju í ástamálum. Giftum konum er það fyrir góðu, að dreymaaðþæralibarn, en ógiftum er það fyrir erfiðleikum i ástamál- um. Það er lík/ega fyrir upphefð að dreyma forsetafrúna. Að dreyma börn sín litil aftur er þeim fyrir veikindum. Seinni drauminn er eðlilegt að setja i samband við atburðinn með simann. Hann virðist að öllu leyti vera fyrirboði þessa óhapps. Þó er ekki ólíklegt að þú verðir fyrir einhvers konar upphefð á næstunni. * 46VIKAN 9. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.