Vikan


Vikan - 31.03.1977, Page 10

Vikan - 31.03.1977, Page 10
sólarferóir! 1977 Mallorca Brottfor: 01. april 2 vikur 22. júlí 3 vikur HÖTEL. Pax, Magaluf 15. apríl 6 vikur 29. júlí 3 vikur Flamboyan, Magaluf 13. mai 3 vikur 12. ágúst 3 vikur Playa Marina, llletas 27. maí 2 vikur 19. ágúst 3 vikur IBUÐIFt 03. júní 3 vikur 02. september 2 vikur Apolo, Magaluf 10. júní 3 vikur 09. september 3 vikur Le Daulphine, Magaluf 24. júní 2 vikur 16 september 3 vikur Acapulco, Santa Ponsa 01. júlí 3 vikur 30. september 2—3 vikur Villa Mar, Palma Nova 08. júlí 3 vikur 07. október 20 dagar Melia, Magaluf Eigin skrifstofa í Magaluf Úrvals barnaverö Brottfór: ' 24. maí 3 yikur 14. júní 2 vikur 28. júní 3 vikur 19. júlí 3 vikur 09. ágúst 3 vikur 30. ágúst 3 vikur 20. september 2—3 vikui Komdu meó til Ibiza ísl. fararstjórar Aóeins Úrvalsgisting Úrvals barnaveró Gististaóir: Hotel San Diego, San Antonio ibúöarhótel Lido, Figuretas íbúðarhverfió Penta, San Antonio Júgóslavía Brottfor: Gististaóir: Hálft fæði 31. mai 3 vikur Hotel Grand Palace. Góó fararstjórn 21. júní 2 vikur Hotel Neptun Otal ferðamöguleikar 05. júlí 3 vikur Hotel Apolo Feneyjar 26. júlí 3 vikur Bled 16. ágúst 3 vikur Alparnir o.fl 06. september 3 vikur 27. september 2 vikur FERÐASKRIFSTOFAN Ró og friður URVAL Eimskipafelaqshusinu simi 2fi900 PÓSTIRIW MEGA FRÆNDSYSTKINI GIFTAST? Elsku besti Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður og vona, að vinkona þín sé ekki svöng. Mig langar til að spyrja þig aö svolitlu. 1. Flver er mesta stáliönaðar- borg Bandaríkjanna? 2. Hvað þarf að gera til að fá ekki unglingabólur? 3. Af hverju mega börn ekki blóta eins og fullorðnir? 4. Eru til lög fyrir því, að frændsystkini eða eitthvað skylt fólk megi ekki giftast? Verða afkvæmi eitthvað vansköpuð? 5. Hvert er best að fara að loknu barnaskólanámi? (í gagnfræða- skóla?). 6. Hvernig eiga saman (sem hjón) vogarstelpa og tvíburastrák- ur? En vogarstelpa og sporðdreka- strákur? 7. Hvenær má maður fara að sofa hjá? 8. Hvað á ég að gera til að grennast? 9. Hvernig er skriftin, og hvað lestu úr henni, og hvað heldur þú, að ég sé gömul? Ein forviða Reyndar ætlaði ég al/s ekki að svara þessu bréfi, þar sem það var nafnlaust, en þar sem bréfiö var skemmtilegt, ákvaö ég að birta það. Þá er best að byrja að svara þessu ,,svo/it/a" sem þú spyrð um! 1. Eftir því sem Pósturinn best veit, mun Chicago vera mesta stáliðnaðarborg Bandaríkjanna. 2. Það er víst ekkert óbrigðult ráð til að forðast unglingabólur, þær koma hjá sumum og öðrum ekki. 3. Fullorönir mega bara alls ekki blóta neitt frekar en börn, svo næst þegar þú heyrir einhvern fullorðinn blóta, láttu þá heyra ærtega til þin. 4. Samkvæmt lögum mega systkini ekki giftast né önnur skyldmenni I beinan legg. Árið 1972 voru einmitt afnumin lög, sem bönnuðu systkinabörnum að giftast og þá var einnig óheimilt að giftast systkinum foreldra sinna. Síðari liður spurningarinnar er að vísu læknisfræðilegur, og get ég ekki gefið þér algilt svar við þessari spurningu, en eitt er víst, að það er talið mjög óæskilegt, að svo náin skyldmenni sem systkini eignist saman barn. 5. Þessari spurningu ertu reynd- ar búin aö svara sjálf með þessu, sem er innan sviga. Ef þú ert að spyrja um einhvern sérstakan gagnfræðaskóla, þá er enginn betri en annar, sem ég veit um, farðu bara i þann skóla, sem er næstur þér. Kennsluefniö er alls staðar það sama (/ 1. og 2. bekk). 6. Vogarstelpu og tvíburastrák er spáð ágætu sambandi, ef þú leggur áhers/u á aö sýna ski/ning og hann blíðu. Hins vegar gæti þér þótt sporðdrekastrákurinn of ,,heitur" á köflum. 7. Þú mátt fara að sofa hjá, þegar þú ert orðin nægilega þroskuð til að vita hvað þú ert að gera, og það er senni/ega ekki á næstunni hjá þér, ef ég get mér rétt til um aldur þinn. 8. Borðaðu minna af fitandi mat.... 9. Skriftin er sæmi/eg, og úr henni má /esa mjög mikla forvitni og löngun til að vita allt. Eg held, að þú sért i mesta /agi svona 10-11 ára. Á MÓTI ÁFENGI Kæri Póstur! Ég ætla að byrja á því að þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Ég hef aldrei skrifað þér áður. Þannig er mál með vexti, að ég er hrifin af strák, sem er fjórum árum eldri er ég. Hann er svo feiminn, að hann þarf alltaf að drekka sig fullan til að þora að tala við mig. En hann þorir að tala við systur mína og marga aðra, sem ég þekki, ófullur. En þó hann sé fullur segir hann aldrei neitt merkilegt. Veistu af hverju hann þarf að drekka sig fullan til að þora að tala við mig? Heldurðu að það geti verið að því að hann þolir mig ekki? En ég er algjörlega á móti áfengi. Hvernig fara bogmaður (kvk) og krabbinn (kk) saman? Hvað lestu úr skriftinni, og hvað heldurðu, að ég 10VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.