Vikan


Vikan - 31.03.1977, Síða 15

Vikan - 31.03.1977, Síða 15
Hópur á vegum Útivistar á kræklingafjöru, en þessi mynd er á forsíðu árbókar Útivistar nr. 2. M (Irval (Jtivist LANZAROTE „Ég er nú búinn aö svara þessari spurningu áöur," segir Steinn Lárusson hjá Úrvali, ,,og þá var þaö Grænland og Færeyjar, sem mig langaði að heimsækja. Það hef ég nú þegar gert, og ætli ég kjósi ekki núna að heimsækja Lanzarote, sem er ein af Kanarí- eyjunum og sú, sem er sennilega líkust Islandi. Eyjan liggur austast í eyjaklasanum, næst Sahara, og er kortérsflug þangað frá Las Palm- as. Þetta er mikið eldfjallaland, en fólkið þar lifir mest á landbúnaði, þrátt fyrir hrjóstrugan jarðveg. Eyjan er tiltölulega ósnortin , en þó eru ferðamenn farnir að sækja þangað ( auknum mæli, bæði vegna hinnar sérstæðu náttúru- feguröar og góðra baðstranda." „ERTU MEÐ TIL IBIZA" Úrval flytur flesta farþega til Mallorka, en nýjasta blómið í hnappagatinu er Ibiza, sem er eyja um 70 sjómílur frá Mallorka. íbúarnir eru um 40 þúsund, einkar vingjarnlegtfólk, enda hefur eyjan verið í þjóðbraut og um hana leikiö straumar frá flestum menningar- rlkjum sögunnar. Steinn sagðist ekki búast við minnkandi aðsókn til Mallorka, þangað færu sömu farþegarnir aftur og aftur, en skryppu til annarra landa inn á milli. Verðið mun hækka ( ár um 20-25%, en ca 12% af þeirri hækkun er af völdum gengissigs. Meöalverð fyrir hálfsmánaðar dvöl án fæðis er 75—80 þúsund krónur, en með fullu fæði 87-98 þúsund krónur. Úrval fer með hópa til Mallorka um páskana, og 4 ferðir verða til Kanaríeyja. Þessar ferðir verða sennilega fullbókaðar, þegar þetta blað kemur fyrir sjónir lesenda. Annars eru Kanaríeyjaferðirnar fyrstog fremst á vetraráætlun, eins og flestum er þegar kunnugt. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, má búast við, að eftir- spurn í sólarlandaferðir verði meiri í ár en í fyrra. HOFFELLSDALUR Einar Guðjohnsen hjá Útivist, landsþekktur ferðagarpur, sagðist óska sér að fara í Hoffellsdal dagana 11.-17. júlí í sumar, en sú ferð er í sumarleyfisferðaáætlun Útivistar. „Þetta er ferð, sem getur verið róleg, og hún getur líka verið erfið, allt eftir því hvað menn vilja leggja á sig. Hugmynd- in er að fara austur ( Hoffellsdal, sem erfyrir norðan Hornafjörð, og tjalda þar. Tjöldin verða kyrr allan tímann. Þarna er eitt mesta steinaríki íslands, og jafnvel von í rauðum ópölum, ef menn nenna að ganga svo langt. Það er hægt að ganga á jökla, þar á meðal Goðaborg, og jafnvel hægt að ganga norður í Lambatungur og á Sauðhamarstind. Ég hef aldrei farið um þetta svæði, en verið víða þarna í kring. Þetta er samskonar landslag og er í Lóns- öræfunum, en miklu léttara að komast þangað. Ef ég ætti annað val, þá myndi ég kjósa mér ferðina Fljótsdalur—Snæfell, dagana 15.- 23. ágúst. Þarna inni í botni á Fljótsdal er eitt mesta meginlands- loftslag á íslandi og öruggt, gott sumarveöur. Fólk gerir sér al- mennt ekki grein fyrir þessu, því að það heldur, að austfjarðaþokan nái langt inn til fjalla. Þarna er hægt að ganga inn með Jökulsá á Fljótsdal, sem fellur í fossum og flúðum niður í dalinn á löngum kafla. Svo er hægt að ganga upp á fjöllin fyrir ofan, og þar er yfirleitt alltaf eitthvaö af hreindýrum. Þá er hægt að ganga á Snæfell, en þar eru sæluhús og leitarmanna- hús á leiðinni. Þetta er semsagt önnur kjörferð. Páskaferð Útivistar er á Snæ- fellsnes og gist í félagsheimilinu Lýsuhóli, en þar er aðstaðan mjög góð og ölkeldusundlaug rétt viö hliðina. Gönguleiöir eru óþrjót- andi, en flestir munu eflaust hugsa til jökulsins, ef veöur verður gott, og sömuleiðis munu ein- hverjir ganga á Helgrindur. Lagt verður af stað á skírdagsmorgun, og við búumst við fjölmenni. Svo verða styttri feröir alla páskadag- ana og þar á meöal ein kræklinga- ferð. FERÐIR Á HORNSTRANDIR VERÐA VINSÆLAR Þær sumarleyfisferðir, sem ætla má að verði vinsælastar, eru 10 daga ferðir í Aðalvík og Horn- strandir, en þarna er um að ræða tvískiptingu á sömu ferð. Verðið er lágt, aðeins 15.700 krónur. *

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.