Vikan


Vikan - 31.03.1977, Page 27

Vikan - 31.03.1977, Page 27
til að gera meira en klípa, án þess að valda sársauka. Mér virtist þetta vera fremur snoturt litið dýr, og þar sem Montgomery sagði, að það eyðilegði aldrei grassvörðinn með þvi að grafa í hann og væri mjög hreinlegt í lifnaðarháttum sínum, get ég hugsað mér, að það kynni að reynast heppileg tilbreyting frá hinum venjulegu kanínum, sem eru í skemmtigörðum heldra fólks. Við sáum líka á leið okkar bol trés, sem börkurinn hafði flagnað af í lengjum og sem var klofið. Mont- gomery vakti athygli mina á þessu. ,, Að klóra ekki börk af trjám; það er Lögmálið,” sagði hann. „Sumir þeirra gæta þessa sérlega vel!” Það var eftir þetta, að ég held, að við hittum skógargoðið og apamann- inn. Skógargoðið var vottur af klassisku minni Moreaus, því að andlit hans var sauðarlegt á svip — eins og hin grófari manntegund Hebrea — rödd hans var óþýtt jarm, og fæturnir voru djöfullegir. Hann var að naga hýði frækennds ávaxtar, þegar hann fór fram hjá okkur. Báðir heilsuðu þeir Mont- gomery. „Komdu sæll,” sögðu þeir, „þú þarna, sem ert hinn maðurinn með svipuna!” „Nú er þriðji maðurinn með svipu,” sagði Montgomery. „Svo að það er best fyrir þig að gæta þín!” „Var hann ekki búinn til?” sagði apamaðurinn. „Hannsagði — hann sagðist hafa verið búinn til.” Skógargoðs-maðurinn leit for- vitnislega á mig. „Sá þriðji með svipuna, sá, sem gengur grátandi út í sjóinn, hefur grannt, hvítt andlit.” „Hann hefur mjóa, langa svipu,” sagði Montgomery. „í gær blæddi úr honum, og hann grét,” sagði skógargoðið. „Það blæðir ekki úr þér, og þú grætur ekki. Það blæðir ekki úr húsbóndanum, og hann grætur heldur ekki.” „Þú, sem ert beiningamaður!” sagði Montgomery. Það mun blæða úr þér, og þú munt gráta, ef þú ert j ekki á verði.” „Hann hefur fimm fingur; hann er fimm-maður eins og ég,” sagði apamaðurinn. „Komdu nú, Prendick,” sagði Montgomery og tók undir handlegg minn, og ég hélt áfram með honum. Skógargoðið og apamaðurinn stóðu og horfðu á okkur og sögðu eitthvað hvor við annan. „Hann segir ekkert," sagði skógargoðið. „Menn hafa raddir.” „I gær spurði hann um mat til að borða,” sagði apamaðurinn. „Hann vissi ekki um mat.” Svo töluðu þeir saman, svo að ekki heyrðist, og ég heyrði skógargoðið hlæja. Það var á leið okkar til baka, að við rákumst á dauða kanínu. Rauður líkami þessa vesahngs, htla dýrs hafði verið rifinn í tætlur, mörg rifbeinin voru ber og hvít, og hryggurinn hafði óneitanlega verið nagaður. Þá stansaði Montgomery. „Drottinn minn!” sagði hann og laut niður og tók upp nokkra af moluðum hryggjarliðunum til þess að rannsaka þá nánar. „Drottinn minn!” endurtók hann, „hvað getur þetta táknað?” Einhver kjötætan ykkar hefur munað eftir fyrri venjum sínum,” sagði ég eftir stutta þögn. „Þessi hryggur hefur verið bitinn i sundur.” Hann stóð og starði og var hvítur i framan og hafði teygt vörina á ská. „Þetta líkar mér ekki,” sagði hann hægt. „Ég sá eitthvað sams konar,” sagði ég, „daginn sem ég kom hingað.” „Fari það bölvað! Hvað var það?” „Kanína, sem hausinn hafði verið snúinn af.” ,, Daginn, sem þú komst hingað? ’ ’ „Daginn, sem ég kom hingað. í kjarrinu, bak við garðinn, þegar ég kom út um kvöldið. Höfuðið var alveg slitið af.” Hann blístraði lágt og lengi. „Og það, sem meira er, ég hef hugmynd um, hvert af manndýrun- um ykkar gerði þetta. Það er aðeins grunur, eins og þú skilur. Áður en ég rakst á kanínuna, sá ég eina af ó- freskjunum ykkar, þar sem hún var að drekka úr læknum.” „Saug hann vatnið upp í sig?” „Já.” „Að sjúga ekki drykk upp í sig; það er Lögmálið. Manndýrin skeyta ekki mikið um Lögmálið, — þegar Moreau er ekki nærri, eða finnst þér það?” „Þetta var manndýrið, sem elti mig.” „Vitanlega,” sagði Montgomery; Canon Ef þér kaupið Canon- vasavél/ þá er ekki tjaldað til einnar nætur. Sendum i póstkröfu Einkaumboð, varahlutir, ábyrgð og þjónusta. KRIFVÉLIN Suðurlandsbraut 12, simi 85277. Fermingargjöfin fæst hjá okkur 40 mismunandi teg- undir myndavéla Hafnarstræfi 1 7 og Suðurlandsbraut 20 13. TBL. VIKAN27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.