Vikan


Vikan - 31.03.1977, Síða 29

Vikan - 31.03.1977, Síða 29
kom; og svo komu í ljós svínskonan og tvær úlfskonur; svo nornin, sem gerð var úr ref og birnu, með sín rauðu augu í oddmjóu, rauðu andlitinu, og svo hinir — og flýttu þeir sér allir mikið. Þegar þeir nálguðust, fóru þeir að hneigja sig fyrir Moreau og syngja, án þess að taka nokkurt tillit hver til annars, brot úr síðari helmingi Lögmáls- söngsins: ,,Hans er höndin, sem særir, Hans er höndin, sem græðir,” og svo framvegis. Þegar þeir voru komnir í minna en svo sem þrjátíu metra fjarlægð, námu þeir staðar, beygðu sig fram á hendurnar og olnbogana og fóru að strá hvitu rykinu yfir höfuð sín. ímyndið ykkur þessa sjón, ef þið getið. Við þrir bláklæddu mennirn- ir, ásamt vanskapaða þjóninum okkar með svarta andlitið, stóðum á stóru svæði þöktu gulu ryki, sem sólin skein á frá eldheitum, bláum himninum, og vorum umkringdir af þessum hópi flaðrandi og patandi ófreskja, sem sumar voru næstum mennskar, að undanskildum hinum fíngerðari tjáningar- og látbragðs- háttum, en sumar eins og kryppl- ingar, og sumar svo undarlega afmyndaðar, að þær líktust engu öðru en verum þeim, sem við sjáum í hinum villtustu draumum okkar. Og lengra í burtu voru öðrum megin hinar grönnu línur reyrþykknis, og þykk flækja pálmatrjáa hinum megin, og var hvort tveggja á milli okkar og gilsins með kofunum, en í norðri var hinn þokukenndi sjón- deildarhringur Kyrrahafsins. , .Sextiu og tveir, sextíu og þrír,” taldi Moreau. ,,Það eru fjórir í viðbót.” ,,Ég sé ekki hlébarðamanninn,” sagði ég. Bráðlega blés Moreau aftur í stóra gjallarhornið, og þegar í því heyrðist, undu öll manndýrin sig og skriðu í duftinu. Svo kom hlébarða- maðurinn; hann laumaðist út úr reyrþykkninu, og var ákaflega álútur og reyndi að slást i hóp þeirra, sem sáldruðu duftinu, að baki Moreau. Og ég sá, að hann var marinn á enninu. Síðastur mann- dýranna á vettvang var litli apamaðurinn. Dýrin, sem áður voru komin, heit og þreytt á skriðdýrs- hætti sínum, gáfu honum illgimis- legt hornauga. „Hættið”, sagði Moreau með sinni festulegu, háu rödd, og manndýrin settust og hvíldu sig á tilbeiðslunni. „Hvar er flytjandi laganna?” sagði Moreau, og hin loðna, gráa ófreskja beygði andlit sitt í duftið. „Segðu orðin,” sagði Moreau, og óðara fóru allir í þessum krjúpandi hópi að syngja enn einu sinni sinn einkennilega lögmálssöng, sveigðu sig til beggja hliða og þeyttu upp brennisteininum með höndunum, fyrst með hægri hendi, svo kom rykhviða, og síðan með vinstri hendi. Þegar þeir komu að orðunum „Ekki éta kjöt eða fisk; það er Lögmálið,” rétti Moreau upp sína löngu, grönnu og hvítu hönd. „Hættið!” hrópaði hann, og alger þögn færðist yfir þá alla. Ég held, að þeir hafi allir þekkt og óttast það, sem í vændum var. Ég leit aftur fyrir mig á hin undarlegu andlit þeirra. Þegar ég sá, að þeir kveinkuðu sér og leyndur Húsgagnadeild Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Thorex- pakkaraðhúsgögn Nýjasta nýtt! og aðeins í J.L húsinu. Thorex - pakkaraðhúsgögn. Húsgögn, sem hver maður getur raðað að eigin vild og flutt og breytt eftir þörfum. Thorex-pakkaraöhúsgögn, hönnuö af Siguröi Karlssyni. Sófi, stólar, hillur, borð, bekkir, skrifborð, skápar, hjónarúm. Fást lökkuð eða ólituð, þér getið ráðið litnum sjálf. Ódýrt- einfalt- fyrir unglinga á öllum aldri. Simi 10600 13. TBL. VIKAN29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.