Vikan - 31.03.1977, Page 50
einhver sefur á þeim dreymir hann það sem
hann vill, þegar sólin er lægst á lofti."
XVIII. Svefnþorn: „Þessa stafi skal rista á
eik og leggja undir höfuð þess sem sofa á, þá
mun sá ekki geta vaknaö fyrr en táknið hefur
ýerið fjarlægt." Sbr. Þjóðsögur I, 449.
XIX. ,,Gegn svefnleysi og slæmum draum-
um, Ristu stafi þessa með seguljárni á
surtarbrand."
X)f: Drottningarsignet. „Það ver mann fyrir
öllum draugum."
XXI. Himinsbarnahjálmur. „Hann er vörn
gegn öllu óhreinu úr lofti og láöi. Hann er
tekinn rétt ðftir Snorra."
XXII. Gimsteinn Jónasar. „Hann er gegn
göldrum, kominn frá Ekvator eigi hann
nothæfur aö vera. Þennan staf notaði
Þorvaldur í Sökku (óþekktur galdramaður,
Sakka er býli í Svarfaðardal), þegar hann
höndlaði anda sólarinnar. Hann sat sjálfur á
kirkjuportinu, en andinn komst ekki nær en 800
faðma yfir jörð vegna stærðar sinnar, og því
olli máttur táknsins, að Þorvald sakaði ekki,
þegar jarðskjálfti átti sér stað og andinn
fjarlægðist. Þessa er hvergi rétt getið nema í
formála eftir Snorra á grískri tungu."
XXIII. Til varnar tófubiti: „Ristu staf þennan
í eik og komdu honum fyrir yfir bæjardyr-
unum."
XXIV. „Gegn heimakomu. Ristu nafn
hennar með hníf á eikarfjöl þar sem þetta er:
heimakoma og meinakoma. Sprettu upp sári
þar sem verkurinn er og ritaðu táknin með
blóði því er út kemur og leggðu þau við."
XXV. Lukkustafir. „Sá sem þessa stafi á
henda engin óhöpp hvorki á sjó eða landi."
XXVI. Salómons innsigli. „Það ber maöur
sér til halds og trausts."
XXVII. Davíðs innsigli. „Það bermaðurásér
gegn illum öndum." irska skriftin þýðir Jesus
Christus, rúnirnar þýða Amen. L.H. eru
upphafsstafir í Jesus Christus.
XXVIII. og XIX. Róðukross: „Innsigli Ólafs
konungs helga, sem maður ber á sér til
verndar."
XXX. og XXXI. Vegvísir: „Sá sem hefur
þessa stafi með sér villist ekki í roki né vonsku
veðrum þótt hann ferðist um ókunna slóð."
XXXII. „Sé þetta tákn borið á sér er það
vörn gegn öllum göldrun." Það verður ekki séð
hvað „itts" þýðir.
XXXIII. Sáttgjafar: Ef einhver ber haturshug
til þín, þá skrifaðu þennan staf á pergament og
legðu hann undir höfuð hans án þess að hann
viti."
XXXIV. Herslustafir: „Berðu þessa stafi við
brjóst þér til að efla kjark þinn."
XXXV. „Hafðu þessa stafi í hægri hendi til
varnar ótta við galdra."
XXXVI. Astros: „Varnarstafur sá, sem nú
kemur, heitir Astros. Hann er vörn gegn öllum
rúnum og ristum hverrar tegundar sem er, og
fyrir augu kunna að bera." „Eftir Snorra."
XXXVII. „Hafðu staf þennan á kálfsskinni
við brjóst þér, þegar þú vilt koma sendingu
aftur til þess, er þér hefur sent. „Hér er án efa
átt við draugasendingar eða uppvakninga.
XXXVIII. „Svo þér verði ekki til vansa virt,
það sem þig hefur hent: Markaðu staf þennan
með baugfingri hægri handar úr hráka þínum á
ennið."
XXXIX. „Gegn fyrirboða þegar þú ert á ferð
í myrkri:,,Ristu staf þennan á hríseik (óvíst, hér
er átt við einhvers konar trjátegund) og berðu
hann undir vinstri handlegg.
XL. Varnarstafur Valdemars: „Hann eykur á
hylli og hamingju allra þeirra, sem meðhöndla
hann vel. Hann hefur hingað borist frá
Þýskalandi og er einn besti stafur fyrri tíma.
Hann á ekki að rista eða skrifa, en þegar
einhver ætlar eitthvað illt að aðhafast, á að
merkja hann á himnu hænueggs með
skarkolaþarmi og koma honum fyrir í höfuðfati
mannsins."
XLI . Óttastafur;: „Ristu staf þennan á
eikarspjald og kastaðu því fyrir fætur óvinar
þíns til að hræða hann."
XLII. „Ef einhver er i illu skapi: Ristu staf
þennan á blý og stingdu honum á krossi í klæði
þess."
XLIII. Dreprún: „Viljir þú koma fyrir grip
óvinar þíns;þá legðu þennan staf í hesthúsið."
Hér er aðeins gefin leiðbeining um hvernig
hægt er að drepa hest með dreprún, en gripur
getur einnig táknað kú, nautgripur. Tel að hér
sé átt við búfénað allan. H.S.
XLIV. Feingur: „Viljir þú að stúlka verði
50VIKAN 13. TBL.