Vikan


Vikan - 22.12.1977, Síða 13

Vikan - 22.12.1977, Síða 13
)ömin 99 vegurinn eftir Mosfellsdalnum ekki kominn, og lá leiðin niður áreyrarn- ar og farið yfir ána aftur og aftur. Þú getur nœrri, hvort þetta hafi ekki verið mikil skemmtiferð fyrir mig, enda gerði ég mér enga grein fyrir alvöru stundarinnar. Þegar komið var heim að brekkunni fyrir neðan kirkjuna, var kistan borin upp í kirkjugarð. Mamma hafði lofað Ölafi gamla, að hún skyldi dreypa brennivíni yfir kistuna, áður en mokað yrði yfir hana, og hún stóð við það. Ég fór nú að ókyrrast og stefndi inn í bæ og sá þar kaffibolla á langborði, ætlaða líkmönnum, og staup með brenni- víni við hvern bolla. Þá hverfur nú minnið hjá mér, þvi þegar þeir voru Hjónin Ólafur og Rósa Jakobsdóttir, með tvö af barnabomum sínum, Olaf Magnús Einarsson og Kristínu Ásu Einarsdóttur. Ólafur og Rósa eiga þrjú böm, elst er Valgerður, sem er gift Gylfa Sigurjónssyni, verslunarfulltrúa SlS i Hamborg og eiga þau tvö börn, næstelstur er Einar, radíóvirki, sem er kvæntur Emu Freyju Oddsdóttur, og yngstur er Magnús, viðskiptafræðingur, en hann starfar hjá fjárveitingarnefnd alþingis. búnir að jarða karlinn og syngja ,,Allt eins og blómstrið eina” og komu inn, þá hittu þeir fyrir heiðurslíkmanninn ofurölvi, og var hann snarlega borinn upp í rúm. JÖLIN Á MOSFELLI — Jólin á Mosfelli standa mér fyrir hugskotssjónum sem einn dýrðarljómi. Mjög mikið var lagt upp úr jólahelginni heima, og við fengum ekki að sjá neinn undir- búning við skreytingu á jólatrénu. Það var ekki fyrr en hátiðin rann upp, að dymar voru opnaðar og við fengum að sjá tréð, kertaljósin og skærhtaða sælgætispokana, en við fótstallinn var raðað jólagjöfunum. Alltaf var til siðs að syngja, auk annarra jólasálma, „Jesús, þú ert vort jólaljós,” en faðir minn hélt sértaklega upp á þennan sálm. — Var komið orgel þá? — Ekki fyrst þegar ég man eftir mér, en það voru meiri samtök í söngnum, eftir að Kristín systir lærði að leika á orgel um það bil sextán ára gömul. Systkini mín höfðu mjög mikla ánægju af söng, einnig pabbi og mamma. — Manstu eftir nokkurri jólagjöf, sem þú fékkst á þessum tíma? — Jú, færeyskur maður, sem einhverra hluta vegna kynntist heimili mínu, hef jafnvel grun um, að hann hafði verið að líta Kristinu systur mína hýru auga, sendi mér kassa með smíðatólum, og þú getur rétt hugsað þér, að það þótti mér mikil gjöf og merkileg. Annars fengum við alltaf fallegar gjafir. því foreldrar mínir umgengust mikið fólk í Reykjavík, sem hafði yfirleitt meiri ráð til gjafa en þau, og þau hafa liklega ekki viljað sýnast minni en aðrir. „Kanntu nokkrar „prestasögur" af pabba þínum? — Nei, ekki annað en það, að hann var einstakt ljúfmenni, og við fengum svo til aldrei höstugt orð af hans vörum. Ég held hann hafi aldreisagt ljótara orð en: „Ja, hver röndóttur !” Hann þótti tóna ágætlega og hafði miúka röngrödd, sem hann beitti alltaf af smekkvísi. Mamma hafði mjög góða rödd, en hún sagði, að eftir að hún ól Þorstein, sem var 22 merkur og fæðingin mjög erfið, hefði hún ekki átt eins létt með að syngja og áður. Eftir að orgelið kom, var miög oft sungið, og ég man eftir því á sumrin, þegar búið var að borða. að pabbi átti til að segja: ..Heyrðu. Stína mín, spilaðu nú fyrir okkur „Um sumardag, er sólin skín." Eldri bræður mínir og systur sungu með, og við litlu krakkarnir lærðum smátt og smátt nokkur lög. Söngur var stór þáttur í lífi okkar. og stundum, þegar við vorum komin Kertasniki fannst miklu betra að sitja utan á farartækjunum en inni i þeim. Sérstaklega fannst honum þægilegt að sitja á flugvélarhrey flunum. qfandð ndi við 51. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.