Vikan


Vikan - 22.12.1977, Qupperneq 37

Vikan - 22.12.1977, Qupperneq 37
Skugginn langi ATHUGASEMD: Nú hefur okkur orðið laglega á í messunni við birtingu þessarar ágætu framhaldssögu. Nokkrir dálkar lentu á villigötum, en þegar þeir allt í einu skutu upp kollinum i höndum okkar, var búið að prenta framhald þeirra i teimur tölublöðum. Við getum ekki betur gert en að birta hér þessa dálka og vonum, að þessu óskiljanlegu mistök spilli ekki um of spennandi framhaldssögu. Sem sagt: Sá hluti, sem hér birtist, átti að koma í 48. tbl. ,,Svo það var sannarlega ekki að ástaeðulausu, að Rory var þér reiður,” sagði Chris og brosti lítillega eins og hann væri að reyna að bæta fyrir það sem hann hafði sagt. ,,En það var eitthvað annað og meira,” mótmælti ég. ,,Ég fann það einhvern veginn á andrúmsloftinu, að þeir höfðu verið að rífast áður en ég kom. Ég heyrði að Danny og Charles áttu í einhverjum deilum. Þegar Danny M’pandu varð reiður, þá öskraði hann, en Charles talaði lágt og einhvem veginn svoleiðis, að hárin risu á höfði manns. Þeir voru enn að rifast, þegar Rory gekk með mér í átt að brúnni. Ég man það, vegna þess að Danny sló Charles út af einhverju, sem hann hafði sagt. Ég held það hafi blætt smávegis úr andliti Charles. Hringur Dannys, sem pabbi hans hafði gefið honum í afmælisgjöf, hlýtur að hafa skrámað andlit Charles, því hann fór að stríða Danny á að hann bæri hringinn eins og trúlofunarhring. Danny var argur út af þessum hring, því hann hafði reynt hann á litla fingur og þar var hann alltof stór, en eftir að hafa þröngvað honum á baugfingur, naði hann honum ekki af aftur. Ég sá ekki hvað gerðist næst, því bróðir minn teymdi mig i burtu. Rory neitaði alveg að tala við mig, og þótt ég bæði hann fyrir- gefningar, þá svaraði hann engu. Hann skildi mig eftir við brúna, og flýtti sér til baka sem mest hann mátti, eins og hann vildi ekki skilja Danny og Charles eftir eina lengi. Ég stóð eftir á brúnni ein um stund. Ég veit ekki hversu lengi.” Ég þagnaði aftur og hélt áfram að rifja upp þennan hryllilega dag. Mér fannst sem ég hefði grátið þarna dágóða stund og ýmis konar óhugnanlegar hugsanir hvarflað að mér. Nakadiubúar voru alltaf fljótir að reiðast og Charles Nanda mundi ekki taka þvi þegjandi að Danny hafði slegið hann. Myndi ég verða orsök þess að Rory kæmi of seint? Myndi hann koma að þeim í slagsmálum, annar þeirra kannski slasaður og blóð- ugur, — eða jafnvel dáinn? Þessi sektartilfinning fannst mér þungbærust. Ef ég hefði bara verið kyrr heima — En þeir hefðu samt farið að rífast. Ef ég hefði ekki sagt Charles frá leyndarmáli Rorys og Dannys — En það hefði heldur ekkert minnkað þá hættu, sem fylgdi fyrirætlunum þeirra. ..Katharine,” sagði Chris blíð- lega og um leið vaknaði ég aftur upp til veruleikans. „Varþetta virkilega svona ömurlegt þennan dag? Ég — ég veit ekki, hvað ég á eiginlega að segja. Ég hefði aldrei átt að fara að rifja þetta upp. En þú skilur, ég held, — faðir Charles Nanda heldur — að það sé eitthvað óupplýst. Ég hef reyndar alltaf verið þeirrar skoðunar, en þú mátt trúa því, Katharine, þú verður að trúa mér, ég var alveg tilbúinn að láta þetta eiga sig. Það er svo langt síðan þetta allt gerðist. En Japhael Nanda er í miklu uppnámi. Hann reynir að gera mikið úr öllu, sem hann getur fundið, til að klekkja á föður Dannys, nú þegar hann er orðinn forsætisráðherra. Hann er reiður yfir því, hve náið samband er milli Rorys og forsætis- ráðherrans. Hann taldi líka Rory alltaf bera ábyrgð á dauða Charls. Og reyndar Danny að einhverju leyti líka. En Nanda hefur ekki gengið vel að finna höggstað á M’pandu. 51.TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.