Vikan


Vikan - 22.12.1977, Page 43

Vikan - 22.12.1977, Page 43
Sólarfilrria hefur gefið út kort með jólasveinun- um þrettán og hefur Bjarni Jónsson, listmálari, gert myndirnar. Við rifjum hér upp kafla úr þjóðsögum Jóns Árnasonar sem heitir: Fjölskylda Grýlu: ,,Þess var getið að bóndi Grýlu hét Leppalúði, hann var að öllu samboðinn henni I háttum sínum, en ekki fullt eins skrýmslislegur ef til vill. Þau áttu saman tuttugu börn sem þulan segir: Grýla var að sönnu gömul herkerling bæði á hún bónda og börn tuttugu. Eitt heitir Skreppur, annað Leppur, þriðji Þröstur, Þrándur hinn fjórði, Böðvar og Brynki Bolli og Hnúta, Koppur og Kyppa, Strokkur og Strympa, Dallurog Dáni, Sleggja og Sláni, Djangi og Skotta. Ól hún í elli eina tvíbura, Sighvat og Syrpu, og sofnuðu bæði. Þau Grýla og Leppalúði áttu og fleiri börn en þau sem hér eru talin ( þulunni, það voru piltar þeir sem venjulega hafa verið kallaðir jóla- sveinar. En þótt þeir séu fortakslaust kallaðir synir Grýlu og Leppalúöa i Grýlukvæði því sem prentað er í Snót er það sumra manna mál aö Grýla hafi átt þá áður en hún giftist Leppalúöa, og greinir þó ekki frá faðerni þeirra. Jólasveinar heita svo eiginlegum nöfnum: 1. Stekkjarstaur, 2. Giljagaur, 3. Stúfur, 4. Þvörusleikir, 5. Pottasleikir, 6. Askasleikir, 7. Faldafeykir, 8. Skyrgámur, 8. Bjúgnakrækir, 10. Gluggagægir, 11. Gáttaþefur, 12. Ket- krókur og 13. Kertasníkir. En því eru þeir þrettán að tölu að hinn fyrsti kemur þrettán dögum fyrir jól, síðan einn á hverjum degi og sá síðasti á aðfangadag jóla. Á jóladaginn fer hirin fyrsti burt aftur og svo hver af öðrum, en hinn síðasti á þrettánda dag jóla. Jólasveinar hafa verið eins og foreldrarnir, haföir til að hræða börn með, en einkum um jólaleytiö. Áttu þeir þá að koma af fjöllum ofan til mannabyggða til að fremja þá iðn er hver þeirra tamdi sér og flest nöfn þeirra eru við kennd, en allir voru þeir eins vísir til að taka börn þau er hrinu mjög eða voru á annan hátt óstýrilát. Þó það virðist eftir áðursögðu engum efa bundiö að jólasveinar hafi verið þrettán að tölu hefur þó ekki öllum borið saman um það atriöi heldur en um faðerni þeirra; segja sumir aö þeir hafi ekki verið fleiri en níu og bera fyrir sig þulu þessa: „Jólaveinar einn og átta ofan komu af fjöllunum . i fyrrakvöld þá fór ég að hátta þeir fundu hann Jón á Völlunum. En Andrés stóð þar utan gátta, þeir ætluðu að færa hann tröllunum. En hann beiddist af þeim sátta, óhýrustu körlunum, og þá var hringt öllum jólabjöllunum." KETKROKUR ’ KERTASNÍKIR Auk tuttugu hinna fyrrtöldu barna og jólasveina segir ein þula enn að hún eigi nítján til; þulan er þannig: Grýla kallará börnin sín þegar hún fer að sjóða til jóla: ,,Komið hingað öll til mín, Nípa, Típa, Næja, Tæja, Nútur, Pútur, Nafar, Tafar, Láni, Gráni, Leppur, Skreppur, Loki, Poki, Leppatuska, Lánlgileggur og Leiðindaskjóða, Völustallurog Bóla." 51. TBL. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.