Vikan


Vikan - 22.12.1977, Qupperneq 47

Vikan - 22.12.1977, Qupperneq 47
Þetta eru fyrstu jólin sem ég á frí, síðan ég byrjaði við hjúkrun, bætti ég við. — Já — foreldrar þínir eru hér í bænum, eða er ekki svo? — Jú, sagði ég. Og þú — ætlar þú að fara heim yfir hátiðarnar? — Nei, sagði hann fljótt — nei, nei, það ætla ég ekki. — Hvar ætlarðu þá að vera á aðfangadagskvöld? — Tja — ég gæti verið jólasveinn á barnadeildinni, sagði hann og hló. Jæja já, Sigurður ætlaði ekki heim yfir jólin. Kannski var hann búinn að kynnast stúlku hér í bænum — hann átti kannski kærustu. En ég stillti mig um að spyrja. Ég var þögul. Hann hélt áfram: — Æi, ég veit ekki. Auðvitað langar mig heim að vissu leyti — en það er svo margt að. Vandamál, sem erfitt er að leysa. — Hvað áttu við með því? — Þegar búið er að skella hurðinni á eftir sér, og hrópa að maður komi aldrei aftur, er dálítið erfitt að gera það. — Hefur þú gert það? — Rétt til getið. Þetta hljómar sjálfsagt kjánalega, en mamma gifti sig aftur i haust. Ég var á móti því. Ég hefi aldrei séð manninn, en heyrt eitt og annað misjafnt um hann. Piparsveinn og kvennabósi, segir fólk. Kallar sig rithöfund, skrifar greinar í blöð. Það er bara tæpt ár síðan pabbi dó. Fyrir það fyrsta fannst mér að mamma gæti beðið hún hafði bara þekkt manninn i fáeina mánuði, í öðru lagi er hann miklu yngri en hún og í þriðja lagi er mamma vel efnuð, en þessi Tore Numland á ekki grænan eyri . Ég sagði mömmu að hún yrði að velja á milli okkar. — Ef hann er eins skelfilegur og þú vilt vera láta, gæti móðir þín þurft ó aðstoð að halda. Hefði ekki verið skynsamlegra að skilja hurð- ina eftir í hálfa gátt? — Þetta er búið og gert. Þú hefur að vísu rétt fyrir þér, en ég óttaði mig ekki ó því þá. Hann getur snúið henni um litla fingur sér. Ég þoli ekki svona menn. Fólk hefur oft dæmt ranglega af fyrstu kynnum, hugsaði ég. Og það er ekki víst að maður sjái hlutina i réttu ljósi, þegar manni er ýtt út í horn. Mig langaði til að segja Sigurði frá föður mínum. En þó þyrfti ég fyrst að segja honum frá Unni systur minni. Hún stal nefnilega fegurðinni, svo að ekkert varð eftir handa mér, þegar ég fæddist nokkrum árum síðar. Allt sem var eftir handa mér voru blógró augu, skollitt hár, dálitið langt nef og mér fannst Iítil bót í því þó húðin væri falleg, tennumar jafnar oghvítarogvöxturinn góður. Unnur hafði lítið, fallegt uppbrett nef, reglulega sniðugt — það var úr mömmu ætt og hár hennar var kastaníubrúnt og glansandi, húðin gulbrún og augun fagurblá. Ef pabbi hefði getað, hefði hann byggt hóa múra kringum hana. En Páll hefði varla látið það aftra sér, hann hefði rifið niður alla múra til að komast til Unnar. Pabbi þoldi ekki Pál, þegar hann fór að draga sig eftir Unni. En mömmu líkaði vel við Pál og mér einnig, en pabbi vildi ekkert hafa af honum að segja. Svona hafði þetta verið í eitt ár, en svo giftu þau sig í haust þrátt fyrir andmæli pabba. Þau áttu að fá íbúð núna fyrir jólin. — Vertu þakklátur fyrir það að dóttir þín hefur gefist svona indælum manni, sagði mamma. Skilur þú ekki , hvað það er dýrmætt? — Nei, ég skil það ekki, sagði pabbi og skaut fram neðri vörinni. En auðvitað varð pabbi að láta undan — og smátt og smátt batnaði samkomulagið, hann reyndi að láta sér líka vel við Pál. Á sama hátt varð Sigurður að sætta sig við hjóna- band móður sinnar. Ég leit upp því að ég fann að augu Sigurðar hvíldu á mér. Hann hnyklaði brýrnar og ég sá að hann var að brjóta heilann um eitthvað. — Jæja, sagði hann svo og brosti breitt. — Ég ætla heim um jólin þrátt fyrir allt! — Já, það er rétt af þér — — En þá verður þú að koma með... - Ég? — Já, það ert þú sem hefur talað um fyrir mér, það er því réttast að þú komir líka! — En — ég er ókunnug. Þið hafið um svo margt að spjalla. Mig langar ekki til að blanda mér í ykkar vandamál. Ég átti von ó að hann segði að ég hefði á réttu að standa, en í staðinn sagði hann: — En það er einmitt til að losna við að tala um það liðna — til að komast hjá því að vera of persónulegur... Hann sá að ég var ráðvillt á svipinn og hló. — Svona ég ætla ekki bara að nota þig skjðld. Mig langar í raun og veru til að þú komið með. Hvað segirðu? — Já, sagði ég bara. Mamma vfirð hálf móðguð, þegar ég sagðist ekki verða heima um jólin. En hún var fljót að jafna sig, þegar ég sagði henni að ég færi heim með Sigurði. Hún vissi vel hve ástfangin ég var í Sigurði og hafði verið lengi. Á aðfangadag fórum við með lestinni upp í Guðbrandsdal. Sig- urður hafði hringt til móður sinnar og sagt að hann kæfni heim með vinkonu sína. Móðir hans beið okkar með bíl ó brautarstöðinni. Hann átti litla systur, sem ég hafði aldrei heyrt getið um. Móðir hans var fjörutíu og fimm ára, en eftir útlitinu að dæma gat hún verið tíu árum yngri. Hún var klædd Við erum ávallt í yðar þjónustu með allar gerðir af skreytingum og efni. Skreytum við öll tækifæri DOGG Reykjavíkurvegi 60 Hafnarfirði. Sími 53848 DÖGG Álfheimum 6 Simi 33978 51.TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.