Vikan - 06.07.1978, Blaðsíða 48
SUMAR - SUMAR - SUMAR
Þegar koma
óvæntir gestir
Þetta er tilvalið
að eiga á lager
Skinka, tartalettur, nokkur
glös sveppir, grænmeti.
Rjómi, og aldrei að gleyma
eggjum, agúrkum, tómötum,
smjöri, osti og brauði,
beikoni. Bollur eða horn í
frystinum og marengsbotnar í
kökukassanum, þeir koma að
góðum notum með ís eða
rjóma og ávöxtum.
Af dósamat er hentugt að
eiga aspas, kræklinga, súpur,
lifrarkæfu o. fl.
Og í frystinum: Rækjur,
hamborgara, pylsur, kjúklinga
í bitum.
Gleymið ekki síldinni.
Brauðsneiðar
Lifrarkæfa með beikonten-
ingum er mjög gott ofan á
brauð. Brauð með eggjum og
tómötum, skreytt með
agúrkusneið — sumarlegt!
Nokkrar uppástungur
um rétti að sumrinu
Skinka með
sveppatartalettum
Hvort sem þú ert heima eða
í sumarhústaðnum að
sumrinu, getur þú átt von á
vinum og ættingjum í
heimsókn, og þá vilt þú að
sjálfsögðu eiga eitthvað
fljótlegt og gott að bjóða þeim
upp á ... og hvað verður þá
fyrir valinu? Að vísu eru til
margir heppilegir réttir til að
bjóða upp á, á, þó með því
skilyrði, að nóg sé til í búrinu,
ísskápnum eða frystikistunni.
Skinkuskifur látnar á fat og
við hliðina heitar tartalettur
fylltar með sveppajafningi: 2
glös sveppir, 2 dl rjómi, 1 stór
msk. smjör, salt, sitrónusafi,
1 msk. sérrí, hveitijafningur.
Sveppirnir látnir í pott
ásamt sveppasoðinu, í þetta
er bætt rjóma, smjöri, salti,
sítónusafa og sérríi, látið sjóða
upp og jafnað með hveitijafn-
ingi. Auðvelt og fljótlegt og
hægt að nota út á t.d. eggja-
köku. Með skinkunni er borið
soðið grænmeti t.d. gulrætur,
blómkál og strengjabaunir.
Labbakútarnir . EFTIR Bud Blake
4SVIKAN27. TBL.