Vikan - 18.01.1979, Blaðsíða 41
2/56
Loksins Camelotl Það slær þögn á glaðværa ferðalangana
frammi fyrir mikilleik og fegurð staðarins. Þarna rís
kastalinn, og hnígandi sólin sveipar hann gullnum
bjarma. Galdramaðurinn, sem byggði hann, hafði lagt svo
á og mælt svo um, að þessi kastali skyldi hverfa, ef
ágirndin yrði ærunni yfirsterkari.
© King Features Syndicate, Inc., 1978. World rights reserved.
Nœsta vika: örn prins.
6-4
Sagan: Það er enn löng leið til Camelot, en nú skín sól í
heiði. Sir Maxwell virðist ekkert yfirmáta gáfaður, en
vænsti maður, og Aleta gleðst yfir augljósri aðdáun hans.
Þau hitta hóp riddara ásamt frúm á leiðinni, og hjá þeim
frétta þau, að Arthur hefur boðið til burtreiða. Það verður
mikill viðburður, þar sem hefðarfrúrnar geta sýnt sitt
besta púss og riddararnir krafta sína og snilli.