Vikan - 08.02.1979, Blaðsíða 5
Á Týrólakvöldi •kemmti fólk sór A öHum aldrt, þó sumir yrðu dAHtió
þreyttir undir lokin.
Týrólakvöld i Obemdorf.
tveimur dögum og upp i tvær vikur. Kostar
tveggja daga passinn t.d 380 AS, en
vikupassi 1020 AS (Austurrískur
schillingur. í kr. 26.14) Passamir gjlda einnig
fyrir þá skíðabila, sem taka þarf til að
komast að lyftunum, og sem aðgangur að
sundlauginni í Kitzbiihel. Myndar er
krafist í passann, og ef fólk vill spara sér
350 kr. í myndatöku, ætti það að hafa
mynd með að heiman.
Á Hahnenkamm voru austurrískir
hermenn önnum kafnir við að undirbúa
brunkeppnina frægu, sem fram fer í janúar
og lesendur Vikunnar verða væntanlega
búnir að sjá í sjónvarpi, áður en grein þessi
kemst á prent. Þessi braut þykir einhver sú
erfiðasta í heimi, og keppa ekki í henni
nema færustu skíðagarpar. Enda virðist
hún afar hrollvekjandi jafnvel í fjarlægð.
Og allir fínna eitthvað við sitt hæfí.
En það er ekki skíðaiðkan eingöngu, sem
lokkar ferðamenn til Kitzbuhel, því þessi
gamli bær með sínar þröngu götur er
töfrandi fallegur. Kitzbúhel var á
miðöldum mikilvægur verslunarstaður, og
enn getur að líta þar skrautmálaðar
byggingar allt frá 13. öld. Þarna er líka
mikil fjölbreytni í skemmtanalífinu, mikill
fjöldi veitingahúsa og skemmtistaða auk
spilavítis. Þeir, sem minna úthald hafa á
skíðum, eru ekki í neinum vandræðum
með að stytta sér stundir, bæði í bænum
sjálfum og fjöllunum umhverfis. Þangað er
hægt að fara í sleðaferðir. eða einfaldlega
liggja í leti og sleikja sólina við einhvern af
hinum fjölmörgu veitingastöðum, sem
bjóða upp á öndvegisveitingar. í Kitzbúhel
er og góð aðstaða til skautaiðkana á stóru
og nýtískulegu skautasvæði.
Þó að kóngafólkið hafi nú flutt sig yfir í
Gstaad í Sviss, sækir enn mikið af auðugu
frægðarfólki þennan glæsilega skíðastað,
enda virðist verðlagið i verslunum helst
miðað við það. Föt eru þarna um það bil
þrisvar sinnum dýrari en í þorpunum í
kring.
Litið inn hjá Heinz
Einhver eftirminnilegasti „veitinga-
staðurinn” sem við litum inn á, var þó
6. tbl. Vikan 5