Vikan - 22.02.1979, Blaðsíða 52
GLA UMGOSINN
skutu gneistum þegar hann íhugaði
þetta. Hann hafði tortryggt hina góðu
trú Beverlys alveg síðan hann hafði
verið neyddur til þess að taka Jimniy
Yarde sem félaga sinn. Nú lá málið Ijóst
fyrir. Beverly og Yarde höfðu verið I
samsæri um að svíkja hann um sinn
hluta af þýfinu. Þegar Beverly hafði
reiðst honum fyrir að hafa mistekist —
reiði hans hafði verið mjög sannfærandi
— þá hafði hann verið með nienið I vas-
anum allan tímann. Jæja, hr. Brandön
átti eftir að læra að það borgar sig ekki
að reyna að gabba Horace Trimble. og
því síður borgaði það sig að skilja
óinnsigluð bréf eftir I almennum
drykkjustofum. Hvað sir Richard
varðaði, þá fannst kafteininum mjög
erfitt að sjá hvaða þátt hann ætti í þessu
flókna máli. Hann virtist vita eitthvað
um demantana, en að því er kafteininum
fannst, var hann alltof auðugur maður
til þess að geta haft nokkurn áhuga á
verðmæti þeirra. En sir Richard hafði
vafalaust á einhvern hátt flækst inn í
málið og kafteinninn óskaði þess af öllu
hjarta. að hann fyndi leið til þess að ná
sér niðri á honum fyrir afskiptasemina.
Kafteinn Trimble var ofbeldis-
hneigður maður að eðlisfari. En þó svo
hann hefði notið þess að afmynda fallegt
andlit sir Richards, þá eyddi hann ekki
meira en tveim minútum í þessa
ánægjulegu drauma. Ef til handalög-
mála kæmi, myndi sir Richard hafa mun
meiri skemmtun af þvi heldur en árásar-
maðurinn. Hörkulegri árás um nótt,
með tveim kröftugum mönnum, sem
væru vopnaðir kylfum, var ntun líklegri
til árangurs. En jafnvel þessi áætlun
hafði sína galla. Sir Richard hafði
tvisvar orðið fyrir árás ruddamenna sem
ætluðu að ræna hann. Þeim hafði ekki
tekist það og hann varð ekki fyrir árás
framar. Hann var á lista hvers einasta
morðingja og ræningja sem hættulegur
maður. Maður sem bar á sér
skammbyssur og gat miðað og skotið af
á svo miklum hraða og með svo mikilli
nákvæmni, að hann var á allan hátt
hinn óæskilegasti til þess að ráðast á.
Raunamæddur ákvað kafteininn að
SZVlkan 8.tbl.