Vikan - 12.04.1979, Blaðsíða 27
Grand Hotel Varna.
mæla með minna en þriggja vikna dvöl, ef
árangur á að nást. Við höfum reynt að
halda kostnaðinum mjög lágum, en hér
greiðir fólk aðeins 3 dollara á dag fyrir með-
ferð og læknishjálp.
Það er ekki hægt að benda á einn árstíma
betri en annan fyrir það fólk, sem kemur
eingöngu til að leita læknishjálpar. Hvað
aðra ferðamenn snertir eru heppilegustu
mánuðirnir maí-október, en þá er sjávar-
hitinn frá 18-26 gráður. Ég vil líka benda á
það, að saltmagnið við ströndina hérna er
tvisvar sinnum minna en í úthafinu, og hér
eru engir hákarlar eða önnur sjávardýr,
sem svo víða annars staðar gera sjávarböð
áhættusöm.
Og hér þarf enginn að láta sér leiðast.
Hótelið býður upp á ótal möguleika til
tómstundagamans við allra hæfi, svo sem
leikfimisal, gufuböð, úti- og innisund-
laugar, keiluspil, tennis, mini-golf, bari og
næturklúbb. Og yfirmatreiðslumaðurinn
okkar, hann Ivan Mitev, er landskunnur og
meira en það fyrir frábæra matargerðarlist,
jafnvel þó um megrunarfæði sé að ræða.
Við skipuleggjum líka héðan ferðir til
annarra staða, eins og fiskiþorpsins
Nessebar á sólarströndinni, höfuðborgar-
innar Sofiu og Istanbul.
Til gamans má geta þess, að á siðasta ári
heimsóttu okkur ferðamenn frá 37 löndum,
og þar af tæplega 1000 íslendingar.
H6r hefur Soffía Pétursdóttir (3. frá vinstri) brugðifl sér í gervi búlgarskrar
bóndadóttur. Hjá henni stendur Þórarinn Gufllaugsson, yfirmatsveinn.