Alþýðublaðið - 22.02.1923, Page 1
Einokun.
Fimtudaginn 22. febrúar.
Leikfélag Reykiavíkur.
42. toiubláð.
Dag eftir dag og ár eftir ár
hafa blöð auðvaidsins íslenzka,
hins auðlausa og auðnulausa,
stagast á einokun, þegar þau
hafa minst á einkasölur ríkisins
til bjárgráða þjóðinni í von um,
að alþýða væri svo hugsunarlaus
og fávís, að hún léti hraeðast til
íjándskapar við eigin heill af
því, að hún kynni ekki að dæma
um rétta notkun orða í móður-
máli sínu.
En alþýðan hefir brugðist von-
um þeirra, sem betur fer. Hún
hefir séð i gegn um blekkinga-
vefinn og vqit nú, af hvaða toga
f hann var spunnið. Hún veit,
að þessi blöð haía haldið uppi
þessu einokunarstagli eingöngu
af því, að eiukasölurnar voru
alþýðu til hagsbóta og að sama
skapi til þess að draga úr taum-
lausu okri þeirra manna sem
halda uppi þessum blöðum. Hún
veit líka, að þau hefðu þagað,
þótt um einokun hetði verið að
ræða, ef hún hefði að eins verið
í höndum auðvaidsins, enda hefir
þáð nú sýnt sig í reynd.
Öll alþýða á nú við slíka ein-
okun að búa.
Nú vill svo til íyrir vanhirðu
og óstjórn í landinu, að erlendur
gjafdeyrir, sem fæst fyrir helztu
framleiðslu þjóðarinnar við sölu
I útlöndum, lendir aðallega í
höndum fárra einstakra manna.
Með þessu fá þeir einkarétt á
sölu þessa gjaldeyris, og þeir
spara ekki að nota sér hann.
Þeir neyða bankana til að gjalda
okurverð fyrir hann, en selja hann
ella okurverði fram hjá þeim.
Þetta er einokun, alveg sams
kouar einokun sem alþýðan átti
við að búa, er útlend yfirþjóð
seldi érlendum möngurum einka-
rétt tii áð féfletta hana. Því einu
munar, 'sem munar á tímum.
En nú þegja áuðvaldsblöðin.
Nú er ekki stagast á einokun
í þeim. Nú er ekki að ræða um
einkasölu ríkisins almenningi.til
hagsbóta, heldur um einokun for-
vígismanna hinnar svo kölluðu
frjálsu samkepni til féflettingar á
alþýðu, og hún er þeirra ær og
kýr, sem verið hafá dropsamar
auðvaldsblöðunum undanfarið og
fylt tóma belgi þeirra.
Þess vegna þegja þau nú.
Hjartans þakkir fyrir allar
hlýjar kveðjur frá vinum og
kunningjum heima á silfur-
brúðkaupsdegi okkar í dag, f°/s.
Augusta og Ditlev Thomsen.
Eiguist „Kveiihataraun“. Á-
skriftum veitt móltaka í síma
1269.
Nýjársnóttin,
verður leikin á fðstudaginn kl. 8 síðdegis. 1
Aðgöngumiðar verða seldir á fimtudag kl. 4
til 7 og á föstudag frá kl. 10 -1 og ettir 2.
Spánskar nætur
verða ieiknar í kvöld, fimtudag 22. þ. m., í Iðnó kl. 8.
17. sinn.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag kl. ’io—1 og eftir kl. 3.
Kirkjuhljtinileikar
verða haldnir í dómkirkjunni fimtudaginn 22.
og föstudaginn 23. þ. m. kl. 8^/3 síðdegis.
Blandað kór (60 manna) syngur undir stjórn
Páis ísóltssonar. Orgel; Páll ísólfsson.
Prógram:
Bach, Handel, Brahms, Dvorrak, Regei,
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverz'un ísa
foldar og Sigfúsar Eymundssonar.
Dagshrnnarfnndur
verður haldinn í G. T. húsiuu fimtudaginn
22. þ. m. kl. 71/2 sfðd. — Stjórnin.