Vikan - 19.04.1979, Blaðsíða 3
Uhhmml!
ítiejt
um FÓLK
Jú, það er hœgt að fá islenskt
lambakjöt á veitingahúsum í
Stokkhólmi, sagði Hermann
Vorhöfer, þýskur matreiðslumeistari
sem nú er búsettur i Sviþjóð. — En
það er yfirleitt framreitt á annan hátt
en hérna. Við snúum þvi gjarnan yfir
eldi að argentínskum hætti, en hver
veit nema við breytum til núna eftir
að hafa smakkað hversu dásamlega
gott þetta er hórna. Gestrisni ykkar
Íslendinganna er ómæld, ég hef
aldrei séð svona margar tegundir af
bmbakjöti áður, — þetta er stórkost-
legt og bragðið eftir þvi, sagði
Hermann og vætti varimar.
— Þetta fólk sem er að koma i
veisluna tii okkar hér í kvöld er
fóikið sem býr til besta mat i heimi,
þannig að mikið er í húfi, sögðu þeir
Agnar Tryggvason og Gunnlaugur
Bjömsson fré S.Í.S. en þeir voru
gestgjafar í þessari miklu lamba-
veislu.
— Við erum vongóðir um að augu
frænda okkar muni nú Ijúkast upp
fyrir þvi að á íslandi sé líka til góður
matur, og að Ísland sé i raun mikið
matarland. Við höfum flutt út
lambakjöt til Norðurlanda í langan
tíma, en fram að þessu hefur
Noregur verið besti markaðurinn.
Norrænu yfirmatreiðslumeistararnir
tóku ekki myndir hverjir af öðrum,
heldur matnum.
16. tbl. VlKan 3